föstudagur, desember 06, 2002

Lá í rúminu í gær með helv... mígreni allan daginn. Ömurlegt Ömurlegt Ömurlegt. Hringdi í vinnuna um kl.10 og meldaði mig veika en yfirmaður minn hringdi rúmlega eitt og spurði hvort ég væri ekki á leiðinni. Góða systemið, vonandi hafa þau samt fundið einhvern til að leysa mig af. Ég er ekki sátt þar sem ég finn ekkert sem getur hafa komið hausverknum af stað í þetta sinn, ekki hormónar, hvítvín, rauðvín, súkkulaði eða neitt slíkt. Ég var svo stillt á miðvikudagskvöldið, fór bara í heimsókn til Guðbjargar og co og svo snemma heim. Á leiðinni þangaði kíkti ég við í Odda og tékkaði á síðustu einkunninni úr Forsendunum.... 8,96 !!! Brill. Sem þýðir að ég fæ 8,5 í lokaeinkunn sem er sannarlega glæsilegur árangur í þessu leiðindafagi. Húrra fyrir mér :-)
Í dag er svo alveg stressdagur a la Anna: Söngur til 12, vinna frá 12:30 til 16:50, hljómfræði frá 17:00 til 18:30 og mæting aftur í vinnuna kl.19:00 því við erum að fara á jólahlaðborð. Af hverju á ég ekki bíl??? Gæti nú svo sem skrópað í hljómfræðina en þar sem ég skrópaði síðast og það er próf í næstu viku þykir mér það ekki mjög vænlegur kostur. Ég er alveg orðin stressuð af að skrifa um stressið sem er famundan svo ég ætla að fara og skipuleggja eitthvað...