miðvikudagur, júlí 29, 2009

Hvað er að frétta?

Svo mikið að ég veit ekki hvar ég á að byrja...

Hélt tónleika í Paxton. Snobb-lið á svæðinu og allt svaka fancy. Klukkutíma langt prógramm, mjög skemmtilega sett upp (af Sam, ekki mér) og þvílík lukka með okkur. Eftir okkar klukkutíma var hlé og svo voru aðrir ungir tónlistarmenn með klukkutíma. Við nenntum ekki að hlusta á þá, heldur ákváðum að njóta adrenalínsins og gleðinnar með vel heppnað gigg í næði. Skiptum um föt, fengum okkur smá hvítvín og héldum svo á leikvöll nálægt setrinu. Þar var mjög skemmtileg aparóla og löng rennibraut sem við urðum að prófa. Það hafði rignt um daginn svo þetta var heldur blautt en það kom ekkert að sök, það myndi þorna. Þegar við komum aftur að setrinu voru tónleikagestir að tínast út og við vorum stoppuð og okkur hrósað í bak og fyrir á posh ensku: Absolutely marvellous! I thoroughly enjoyed that! Bahbye! Og allt þetta spjall átti sér stað við rassblautan píanista (sem sást nú kannski ekki) og söngkonu sem var öll í moldarslettum! Í hárinu, á buxunum og niður vinstri kinn, öxl og handlegg. Öll í mold! Ég er heimsins versta díva hahaha!

Svo kom ég heim og hóf flutninga daginn eftir. Nú bý ég í Sólheimum og það er æðislegt! Elliheimilablokk dauðans, með panel, plastblóm og málverk á ganginum og gamalmennalykt í lyftunni, en falleg og björt íbúð sem ég bý í með sambýlismanni mínum. Og þegar ég segi sambýlismaður á ég ekki við af sama meiði og Sæberg fyrrum sambýlismaður minn sem átti sér sitt eigið herbergi. Ó nei, sambýlismaður í sama herbergi og meira að segja í sama rúmi! Ég segi það og skrifa krakkar mínir. Blessað litla flónið, hann veit ekki út í hvað hann er að fara...

mánudagur, júlí 06, 2009

Ógnvænleg ógeðisþróun

Á ferð minni og flugi á sólríkum dögum undanfarið hef ég tekið eftir ansi ógnvænlegri þróun í matarframreiðslu. Ok, kannski ekki matarframreiðslu beint, en allavega: Síðan hvenær er það í lagi að afgreiðslufólk snerti matinn sem það er að selja? Með berum höndum? Sömu höndum og það handleikur peninga, kort, ýmsa takka og tæki og tól, burtséð frá því hvað það gerir baksviðs?
Einu skiptin þar sem ég lít framhjá þessu er á barnum. Ef ég hef áhyggjur af því að verið sé að kreista súraldinið mitt með skítugum krumlum er það klárlega merki um að ég þurfi að drekka meira...
En mér finnst þetta einstaklega ógeðslegt og hef á undanförnum dögum bæði þurft að sleppa því að borða brauðformið undan ísnum mínum og þurft að syngja MJÖG hátt í huganum til að geta borðað pylsubrauð (það er mjög erfitt að sleppa því alveg að snerta það með munninum). Hér með heiti ég því skriflega að næst þegar þetta gerist, og það mun gerast, ætla ég að afþakka matinn pent. Eða fleygja honum í andlit afgreiðslumannverunnar, annað hvort.

miðvikudagur, júní 24, 2009

Á hárgreiðslustofunni
-einþáttungur

*dring dring*

Anna (nn): Halló?
Hárgreiðslukona (hrgrðslkn): Já halló, er þetta Anna?
nn: Já
hrgrðslkn: Sæl, þetta er hér á Slippnum... Ert þú á leiðinni eða?
nn: Nei, ég er komin!
hrgrðslkn: Nú? Er það?
nn: Ehm, já...
hrgrðslkn: Hvar ertu?
nn: Nú, á hárgreiðslustofunni... Ég sit hér að lesa blað
hrgrðslkn: Hvar?
nn: Bara í stólnum hérna við gluggann
hrgrðslkn: Ég sé þig ekki. Sérð þú mig tala í síma við afgreiðsluborðið?
nn: Bíddu. Hm... Nei, reyndar ekki
hrgrðslkn: Hvar ertu eiginlega?
nn: Á hárgreiðslustofu á Tryggvagötunni. Bíddu, er ég á vitlausum stað?
hrgrðslkn: Já, ég er farin að halda það
nn: En ég kynnti mig með nafni og hún bað mig að fá mér sæti... Er ekki rauð hurð á þinni stofu?
hrgrðslkn: Nei, það er Rauðhetta og úlfurinn! Ég er á stofunni 2 húsum neðar
nn: Ljómandi. Sé þig eftir hálfa

föstudagur, júní 19, 2009

Ég treysti ekki ráðherra sem er of heimsk til að nota hjálm.

Og það er kominn nettur stressfiðringur í Hlíðina, bara vika til stefnu og allt í volli. Bölvans.

miðvikudagur, júní 10, 2009

Eva Afrekskona

Já, tvö blogg á einni viku. Krakkar mínir, þetta kallar maður afköst! 

Nú er komið að því að læra þessar blessuðu aríur mínar utanað og eitt ferlið í þeim ósköpum er gott að gera með "hálfum hug" eða þannig, láta þær síast inn á meðan maður gerir eitthvað annað. Og því þá ekki að blogga á meðan? 

Rúmar 2 vikur í fyrstu svaðilför sumarsins, í þetta sinn er það 1. umferð söngkeppni í London. Margir skilja ekki hvernig keppt er í söng, en það er ekkert ólíkt því þegar keppt er í fegurð, hundaþrautum eða hverju öðru. Í pottinum eru ákveðið mörg stig og veitt eru stig í mismunandi flokkum. Til dæmis að kunna lagið (það er mjög gott), að henta lagið, að líta rétt út fyrir hlutverkið, hafa fallega rödd (líka mjög gott), útgeislun, réttan framburð og svo mætti lengi telja. Gríðarlega spennandi að sjá hvaða kynbótadóm ég fæ fyrir herlegheitin.

Pundið er hins vegar komið yfir 200 krónur svo það verður lítið um H und M stuð í þetta sinn. Í mesta lagi nokkrir Primark bolir fyrir sumarið og einn latte á Starbucks. Bölvans. En gistingin er frí svo þetta er ekki eins hræðilegt og það leit út fyrir þegar ekkert flug fannst undir 60 þúsundum íslenskra króna. Þyngra en tárum taki þetta bésvítans ástand.

En að gleðilegri fréttum; ég er að fara að eyða næstu 5 dögum á sveitabæ á Norðurlandi við leik og störf. Störfin felast í að gróðursetja nokkrar trjáhríslur og læra músík en leikurinn í því að fara í sund og sofa og borða og lesa og dunda mér. Mér finnst eins og það séu bæði ár og dagar síðan ég hef dundað mér svo ég hlakka mikið til. Dund er klárlega vanmetið! Lengi lifi dundið!

miðvikudagur, júní 03, 2009

Tvíkynhneigð sveitt líkamsrækt

Eftir 2 ár af samkynhneigðum líkamsræktarstöðvum, galtómum líkamsræktarstöðvum og Bootey Camp þar sem kyn skiptir ekki máli, bara það að lifa af, er skemmtileg upplifun að fara í hard core tvíkynhneigða rækt. Mér áskotnaðist nefnilega mánaðarkort í Laugar og nýtti mér það í smá lyftingar í dag. Ég var búin að gleyma því hvað það er gaman að vera Massi! Og búin að steingleyma því hvað það er gaman að lyfta umkringd karlmönnum. Sérstaklega karlmönnum sem lyfta léttari lóðum en ég ;o) Reyndar er allt líka aðeins sveittara en í B-húsinu en það eru handklæði á hverju strái svo það var minna vandamál en við var að búast. Svo er ég viss um að testósterónið í loftinu hefur bætandi og hressandi áhrif. Efast reyndar um að ég framlengi kortið því mikil mannmergð hræðir mig, sérstaklega hálfnakin, en þetta er ljómandi fínt svona fríkeypis.

Annars er allt ljómandi gott að frétta úr Hlíð. Hélduð þið nokkuð að ég væri dáin Drottni mínum? Það var ég nú ekki, en þessi bloggleiði virðist vera helvíti langlífur sjúkdómur. Dauðadómur Goggsins? Jafnvel, en ekki alveg strax ;o)

sunnudagur, apríl 19, 2009

Skyld'a vera jólahjól?
(Nei, djók. Þetta var nú bara fyrir mömmu ;o) )

Í gær gerðist ykkar undirrituð áhættufjárfestir! Mig rekur allavega ekki minni til að ég hafi fjárfest í öðru eins, að frátalinni menntun og ferðalögum auðvitað. En ég keypti mér hjól! Alvöru, demparað, álstellis, 21 gíra, há-stýrað svo maður þarf ekki að beygja sig hjól! Og það er fallegasta hjól sem ég hef augum litið. Hér má sjá bróður þess, en mitt er auðvitað mun flottara; komið með körfu og verður með glæsilegt hnakkaskraut alla daga. 

Nema í dag, því um leið og hjólið var komið í hús helltist yfir mig alveg hrikalegt kvef og ég er búin að liggja fyrir síðan. Hef auðvitað sloppið einstaklega vel við kvef í vetur svo það var alveg við því að búast að það birtist með vorverkunum. Það er allt í lagi, bara svekkjandi að David sé einmitt á svæðinu. 

Merkilegt hvað maður verður orkulaus með kvefum, það tók mig hálfan daginn að finna innri kraft til að komast í sturtu og föt. Undir eðlilegum kringumstæðum myndi ég klárlega sleppa svoleiðis pjatti, en ég er að fara á tónleika í kvöld og þá er ætlast til þess að maður lykti og lúkki ágætlega. Þá er bara að kasta "less is more" reglunni út um gluggann (leiðindaregla hvort eð er) og maka á sig maskara og kinnalit. Fyrir peninginn!

Hafið augun opin þegar líður á vikuna og kannski sjáið þið stúlkukind í hvítri regnkápu á hvítu hjóli að heyja dauðastríð við Ártúnsbrekkuna... Í guðanna bænum ekki bípa á mig samt!!! :o)

mánudagur, apríl 13, 2009

Að baka sér bakvandræði

Ég er búin að vera furðu góð í bakinu undanfarið. Sem sannar kannski bara í eitt skipti fyrir öll að lækningin mín er að hreyfa mig nógu andskoti mikið. En samt verð ég að fara varlega því það er örmjó lína á milli þess að vera hoppandi hress og haltrandi hross. Því gleymdi ég aðeins í morgun.

Það var 2 tíma Bootcampæfing og í glaðasól með vor í hjarta og nautasteik í malla (NAMM!) hentist ég af stað. Æfingin var mjög erfið en ekki sársaukafull, þangað til ólánið dundi yfir. Best að skjóta því að núna að við vorum að vinna saman 2 og 2. Stúlkan sem ég var með var nú ekkert að tæta upp mölina sjálf, mér fannst við bara nokkuð vel samanparaðar, en henni fannst hún greinilega miklu duglegri en ég. Við vorum búnar hlaupa helling, gera 3000 uppstig og framstig og bjarnagöngur og ofursúpergleðifroska og ég veit ekki hvað þegar annar aðilinn átti að gera einhverja leiðinda hnébeygjuæfingu á meðan hinn hélt sandpoka fyrir ofan haus. Að vanda var parinu refsað ef sandpokinn fór neðar en í hausahæð. Þessir blessuðu sandpokar eru sleipir, þungir, asnalegir og meiða mig í bakinu. En ég snaraði samt einum fyrir ofan haus og hélt þar á meðan Fúla Múla barðist við að gera 50 leiðinda hnébeygjuæfingar. Eftir smá stund var bakið farið að fettast all-svaðalega og ég komin með kunnuglegan verk, svo ég setti pokann niður. Vinkonan varð nú alls ekki sátt við það og kærði sig (skiljanlega) ekki um að taka út refsingu fyrir mína hönd. Og í stað þess að gera það eðlilega í stöðunni -segja henni kurteislega að fara í rassgat því ég er bakveik og fara svo til þjálfarans að biðja um bakvænni æfingu- þá bara muldraði ég: Sorry! og lyfti pokanum aftur! 

Spurning mín til ykkar er nú þessi:
Hvað í hópþrýstings, hetjuláta, flónsku og fávitahætti er eiginlega að heima hjá mér???? 

sunnudagur, apríl 12, 2009

Það kvelur ei auga sem ei kemur í það

Íslenska útgáfan af out of sight, out of mind? Gef nú ekki mikið fyrir þennan málshátt. Hvað þá þann sem ég fékk í litlu eggi um daginn: Betra er að fela fiskinn en elta köttinn. Hvað er að frétta??

Búin að hlaupa 7 km og mátti því opna dökka súkkulaði páskaeggið. Bölvaður sé minn þýski agi. Ægissíðan var reyndar eins og Kringlan, ég komst varla fyrir í bleiku eldingunni (nýju hlaupabuxurnar fyrir þá sem ekki þekkja til aðstæðna my thunderous thighs...) fyrir línuskautabyrjendum, hundum og útlendingum. Er enn að hlaupa til nýju skóna og þó ég hafi alltaf vitað að ég er vond stjúpsystir eru blóðfullir sokkar og skór að verða pínu, pínu þreyttir. 

Páskarnir eru annars búnir að vera góðir. Ég var í fríi á fimmtudag og svaf allan daginn, nema þegar ég hljóp aðra 7 km. Veit ekki hvaða hlaupagleði þetta er, síðast þegar ég vissi fannst mér sko mjög leiðinlegt að hlaupa? Var með Jökull minn í gær og í fyrradag en fæ nú tveggja daga frí áður en Óðurinn til ljósritunarvélarinnar hefst á ný. Þar sem við Karonina systur eigum enga foreldra innan bæjarmarka, hvað þá tengdaforeldra eða annan óskapnað, kemur hún í mat til mín og snæðir nautasteik og sætar kartöflur. Ekkert að því...

Gleðilega páska dýrin mín xx

miðvikudagur, apríl 01, 2009

Afmælisblogg fyrir Hrönn

Klárlega nýtt met í þagnarbindindi, veit ekki alveg hvað veldur. Hef bara ekki haft neitt sniðugt að segja held ég.
En í dag á ég afmæli og hef nóg að segja! 29 ára kellingin, legg ekki meira á ykkur (lít samt ekki út fyrir að vera degi eldri en 26 sko) . Dagurinn hefur gengið vel so far, fékk subbuborgara í hádegismat, fullt af knúsum og góðar gjafir á miðnæturblóti Mávahlíðarmæðgna í gær. Vinnufélagarnir voru eitthvað að væla yfir því að ég ætlaði ekki að koma með köku í dag, en mér fannst alveg nóg að koma með köku og heimabakaðar bollur á föstudag. Ég ákvað samt að fara milliveg og búa til konfekt handa þeim, mikið urðu þau öll glöð!! Mér þótti samt leiðinlegt þegar þau spýttu því strax útúr sér. Síðan hvenær er eitthvað að súkkulaðihúðuðum gúrkubitum?!??! Laun heimsins eru og verða vanþakklæti. Annars finnst mér óhemju lítill metnaður lagður í göbb dagins í fjölmiðlum; brunasala á húsgögnum, ókeypis bjór og áheyrnarprufur -í alvöru? Vonandi verður eitthvað bitastæðara í sjónvarpsfréttum, ekkert fer framhjá haukfráu auga aprílflónsbarnsins!
Af mér er annars allt gott að frétta þrátt fyrir að brjóstin nálgist nafla á ógnarhraða. Booty Camp gengur vel og smjörið rennur af bumbusi, ég syng eins og vindurinn til að undirbúa næstu skref feril-lega séð (sem fela m.a. í sér að ég er orðin mezzó -þeir skilja sem skilja), vinn eins og ritarinn sem ég er -eins skemmtilegt og það nú er- og strætóast bara þess á milli. Hlakka til að kaupa mér hjól og fara að nota það, kvíði reyndar Ártúnsbrekkunni svolítið en smá sviti er ekkert sem ég ræð ekki við! Helst að ég hafi áhyggjur af samstarfsfólkinu...
En jæja, þá eru komnir nokkrir stafir á blað og best að ég haldi áfram afmælisdeginum góða. Eftir vinnu fer ég í söngtíma til Kristjáns nokkurs Jóhannssonar, spennandi að heyra hvað honum finnst um hávaðann. Svo fæ ég plokkfisk hjá mömmu og kannski smá hvítvín í kvöld. Hvað er hægt að biðja um meira? xx