sunnudagur, apríl 27, 2008

Sidustu dagarnir i Rottuborg

Komnir kassar og tveir theirra half-fullir. Einn fyllti eg af dugnadi i gaer og limdi svo vel og snyrtilega fyrir. Paeldi ekki einu sinni i tvi ad eg fer ekki fyrr en eftir viku, heldur lokadi sko og rumfot raekilega inni. Alltaf sama helvitis verkgledin her a bae.

Islendingaparty var haldid a fostudaginn, thar sem vid bordudum thjodlegan indverskan mat, sungum gomlu godu oska-login og drukkum Topasskot. I gaer for eg svo ad sja beina utsendingu fra Metropolitan operunni i biohusi. Thad var alveg magnad! Fae bara gaesahud vid ad hugsa um thad! (serstaklega tenorinn, mig langar ad eiga hann...)

Haegt og bitandi saxast a listann yfir hluti sem eg VERD ad gera adur en eg fer: Buin ad borda uppahalds indverska matinn minn og bjorhallarpizzu, buin ad syngja sidustu tonleikana i bili, skila ollum bokasafnsbokunum og tvo gardinurnar.
A eftir ad borda lime-nudlur og djupsteikt mars (ekki saman, thad vaeri ogedslegt!), detta i thad allavega einu sinni, hitta 3 manneskjur serstaklega og vonandi alla i kvedjupartyinu a fostudag, fara i sidasta songtimann, kaupa nokkra hliraboli fyrir sumarid og jafnvel eitt par af skom (skornir minir eru nefnilega tvi midur fastir ofani kassa) og labba um baeinn i magabol, hvitum stuttbuxum og pinnahaelum, med brunkukrem og svartar stripur i hvitu hari. Sidasti sens!

miðvikudagur, apríl 23, 2008

Hvad er i gangi?

Hvert i oskopunum er thessi heimur ad fara? Slagsmal og motmaelalaeti heima og endalaus motmaeli her lika. Thad a ad skera aerlega nidur her i skolanum og m.a. ad minnka starfshlutfall kennara. Minn kennari fer liklegast hedan i vor, svo thad er bara agaett ad eg er ad fara lika. Tok einmitt thatt i motmaelasong fyrir utan skrifstofu head of music adan, thar sem vid sungum mjog illa til ad vekja athygli a tvi hversu mikid vid thurfum kennslu (eda, biddu, var thad kannski bara eg??). En aftur ad alvoru malsins, tha virdist allt vera ad fara til andskotans. Madur getur ekki lengur dukkid hvivinsflosku a toman maga an thess ad verda draugdrukkinn og ekki ordid draugdrukkinn an thess ad bladra toma steypu vid hatt sett folk i skosku operunni eda senda sms til folks sem madur hefur engan ahuga a ad vera i samskiptum vid. Svo getur madur ekki komist heim til sin a Islandi fyrir minna en tuttugu og morg thusund kronur fyrir EITT flug, mig sem langar ekkert serstaklega mikid ad fara heim! Auk thess getur madur ekki lengur drukkid kokteila og skot a vixl i sakleysi sinu a virkum degi an thess ad vera eins og aumingi daginn eftir. Hvad er thad? Einnig virdist, einhverra hluta vegna, lifsins omogulegt ad fara a faetur fyrir klukkan 10 a morgnana. Eg veit ekki hvad er i gangi krakkar minir. Thetta endar med oskopum.

miðvikudagur, apríl 16, 2008

Nyjasta Nytt

I gaer var dagur nyrra upplifana. Thad sem eg upplifi nytt var (i skipulagri framsogn ad thyskum sid):

- Eg for i nornabud ad kaupa reykelsi fyrir Emmu og vard tha svona lika svakalega heillud af steini sem eg sa. Orlitid ohugnarlegi madurinn sem vann i nornabudinni sagdi ad steinninn vaeri greinilega buinn ad velja mig svo eg yrdi ad velja hann a moti. Verst ad eg thurfti ad borga fyrir thessa gagnkvaemu hrifningu! Komst svo ad tvi hja Emmu skommu sidar sama dag ad thessi steinn a ad virka serstaklega a thad sem er ad hrja mig um thessar mundir svo vid 'hlodum' grjotid og nu geng eg med thad a mer. Kannski ekki eitthvad sem eg trui a, en madur tekur enga sensa a thessum sidustu og verstu.

- Vid Saeberg taemdum sparibaukinn og gengum med fjarsjodinn i plastpokum i bankann. Merkilegt nokk rifnadi bara einn pokinn a leidinni i bankann og godhjartadir unglingar hjalpudu okkur vid ad tina upp aurana. I bankanum var okkur sagt ad peningarnir yrdu ad vera i thar til gerdum pokum. Vid fengum thar til gerda poka og satum sveitt vid flokkun og talningu i skolanum. Forum svo aftur med peningana og reyndust vera 246 pund i bauknum! (36 thusund kronur) Thad borgar sig greinilega ad henda klinki i bauk, thetta eru 3 ar af klinki fra mer og 2 fra honum. Alltaf gaman ad fa okeypis peninga!

- Eg for i hugleidslutima med Emmu til buddamunks. Thad var spes! Vid satum i hring a golfinu i herbergi med staerstu buddastyttu sem eg hef sed, blomum og kertum og reykelsum fyrir peninginn. Vid kyrjudum a einhverju forn-mali og svo leiddi hann okkur i hugleidslu. Nokkud notalegt sko, nema eg stod mig aftur og aftur ad tvi ad velta fyrir mer hvernig styttan komst inn i thetta litla herbergi. Svo badum vid fyrir vinum okkar, nagronnum, fjolskyldu og ovinum adur en hann hofst handa vid ad blessa okkur. Thegar tharna var komid sogu var eg ordin half-skokk af reykelsisreyk og fannst thetta allt pinu fyndid. Hann blessadi mig og oskadi mer gods og batt verndarband um ulnlidinn a mer. Fyrir leikmenn gaeti verndarbandid virst vera appelsinugulur spotti, en eg fullvissa ykkur um ad thetta er fullgilt verndarband!

- Vid Emma eldudum skemmtilega skrytinn mat, eg hef audvitad oft gert thad adur, en ekki akkurat thessa samsetningu! Fiskikokur, sodid kal, bakad grasker og kold rjomasosa. Ljomandi gott, thratt fyrir nett reykelsisbragd af ollu thegar tharna var komid sogu. I eftirrett var svo Victoria Sponge afmaeliskaka med kertum! Eg fekk meira ad segja afmaelissong og ad oska mer. Mikid er gaman ad eiga svona goda vini!!

- Eftir mat og sma vin med kokunni tok Emma mig i reiki-session. Thad var mjog ahugaverd upplifun og merkilegt hvad er haegt ad finna fyrir miklu an thess ad folk snerti mann.

- Ad lokum fekk eg ad hlusta a hjartslattinn i Baby G! Thad var glaeny upplifun en alveg geggjad.

I dag aetla eg svo bara ad gera hluti sem eg hef gert milljon sinnum adur; syngja, thyda texta, netnordast, elda, taka til, drekka afengi med folki sem eg thekki misvel og likar misvel vid og sofa.

laugardagur, apríl 12, 2008

Var ad senda imeil sem mig langadi svo innilega ekki ad senda. Hressid mig vid!
Thetta stefnir annars i ad verda leidindadagur. Hvernig getur laugardagur sem byrjar a tvi ad fara til tannlaeknis fyrir allar aldir verid frabaer dagur? Serstaklega thegar tannlaeknirinn getur ekki laeknad mann! Hann var nu alveg nogu vaenn og myndarlegur, thad vantadi ekkert. En hann fann enga holu! Og potadi og potadi i tonnina en thad var ekkert vont! Merkilegur andskoti. Svo setti hann kalt a hana og fekk tha loks vidbrogdin sem hann vildi. Hmmm sagdi hann svo, thad er engin hola i thessari tonn! Hun gaeti verid falin, en thad er svo stutt sidan eg var hja tannlaekni (thegar tonnunum var ytt ur ur mer, munidi?) ad thad hefdi sest a myndum tha. Svo hann sagdi liklegast ad eg hefdi saert hana eda bramlad eitthvad med tanngnistrinu minu a nottunni. Hmmm ertu buin ad vera stressud? Ehhh, leyf mer ad hugsa... JA!!! Hmmm ja thad gaeti utskyrt thad. Ekkert haegt ad gera nema setja eitthvern verndarhjup a tonnsluna og vona thad besta. Svo rukkadi hann mig um 1500kr og sendi mig heim med 9 litlar tupur af sensitive tannkremi. Eg var merkilega svekkt thegar eg kvaddi. Glod ad thurfa ekki ad borga formugu og glod ad thurfa ekki ad hitta Herra Bor en mer hefur aldrei likad vid svarleysur og stefnuleysi. Og mer er enn illt i tonninni.

A morgun er hins vegar nyr dagur! A morgun aetlar solin ad skina glatt og eg aetla med vinkonu minni i gongutur i skoskri sveit thar sem vid aetlum ad velta fyrir okkur lifsins gaedum og lystisemdum. Tha verdur colgate buid ad bjarga tonninni og eg get att sidbuinn nammidag. Hurra.

föstudagur, apríl 11, 2008

Ekki gera eins og mamma thin segir Jens!

Hraedd um ad K&B seu bunir ad byggja ser vaent hus i jaxli nuna. Gaman fyrir tha, ekki svo mjog fyrir mig. Byrjadi i gaer sem vont ad tyggja vinstra megin en hefur nu throast yfir i vont ad vera til. Eg bankadi upp a tannlaeknastofu i gotunni okkar og spurdi hvort madur gaeti bara komid og latid laga sig hja theim. Afgreidslukonan horfdi undarlega a mig og sagdi svo:
Vid erum privat stofa og thad kostar 33 pund(5000IKR) ad lata skoda sig og svo faerdu verdmat a vidgerdinni.
Bjost greinilega vid ad eg myndi strunsa ut fussandi og sveiandi, en hun vissi ekki ad eg kem fra ISLANDI! Thar sem eg myndi ekki buast vid handtaki fra tannlaekni fyrir minna en thessa upphaed.
Ja, sagdi eg, attu eitthvad laust i dag?
Nei, sagdi konan, en eg a lausan tima 10 i fyrramalid. Viltu hann?
Ja takk stundi eg og rett nadi ad halda aftur af tvi ad stokkva yfir bordid og knusa hana.
Klukkan 10 a LAUGARDAGSMORGNI? spurdi konan.
Hvur andskotinn er thetta, hugsadi eg. Sok ser ad eg liti ut eins og einhver sem a ekki bot fyrir boruna a ser, en eg lit sko ekki ut eins og einhver sem verdur svo afvelta af drykkju i fyrramalid ad eg geti ekki vaknad klukkan 9!
Ja sagdi eg upphatt og brosti blitt.
Ahhh, er ther svona illt i tonninni? Spurdi afgreidslukonan loks, greinilega fegin ad hafa leyst radgatuna um murudu, arrisulu stulkuna fyrir framan sig.

miðvikudagur, apríl 09, 2008

Krakkar minir!

Nu segi eg draumfarir minar aldeilis ekki slettar.
Dreymdi mig ekki bara okkur sambylismanninn i nott, vid mjog ovanalegar adstaedur?! Vid vorum stodd einhversstadar a strond i kofa, voda romo allt saman, og vorum ad raeda 'okkur' og eitthvad... Svo forum vid ad kyssast og thad herna for ad hmm sko hitna adeins i kolunum og svo bara vaknadi eg! Til allrar hamingju adur en of mikid gerdist!! Veit ekki hvort undirmedvitundin akvad ad mer thyrfti ad hitna i hamsi tvi eg var alltaf ad vakna skjalfandi af kulda i nott, eda hvad thetta a ad fyrirstilla. Eg var allavega frekar vandraedaleg thegar eg for i sturtu i morgun og stod ekki alveg a sama. Var fegin ad hitta ekki sambylismanninn fyrr en eg var klaedd og komin a rol, tha gat eg sagt honum fra thessum oskopum og hlegid. Hann sagdi bara: 'Ja thad er gott ad thetta gledur thig', sem er mjog olikt tvi sem hann sagdi i drauminum: 'Eg er buinn ad bida eftir thessu i morg ar'!!! ;o)

laugardagur, apríl 05, 2008

Þetta er búið að vera skrýtin Íslandsheimsókn. Vesturferð og veikindi standa upp úr, svo og afmæli og menning. Voða mikil menning eitthvað. Fór á Travíata þegar ég kom, á Aldrei fór ég suður, Rocky Horror og svo á Cosí hjá óperustúdíóinu áðan. Það var bara mjög gaman, verst að vera ekki að syngja sjálf!
Eftir óperu og Vegamótamat fór ég í partý til Ólafar og Sigga. Frekar mikið flott nýja íbúðin þeirra, verst að hún var full af læknanemum ;o) Ég fékk nasasjón af því hvernig er örugglega að koma í söngpartý, einhvernveginn liggja allir vegir og öll umræðuefni að því sem er helst á dagskrá. Skiljanlega! En eftir einum of marga útferðar- og legvatnsbrandara með tilheyrandi handapati og leghálsskoðunarlátbragði (þau voru sko að klára kvenlækningakúrs) ákvað ég að setjast út á kant með krosslagða fætur. En ég fékk fína kviðskoðun af gestgjöfunum svo ég þarf ekki að láta tékka á því á næstunni.
Labbaði svo heim, enda vel búin í kuldanum. Mikið er gaman að labba heim og vera svolítið einn í heiminum. Þegar ég labba heim svona á kvöldin í Rottuborg er ég umvafin fyllisvínum og fólki sem þvælist fyrir mér og vill fá pening eða sígarettur eða knús. Ágætis tækifæri til að hugsa smá á meðan hvítvínið fraus úr líkamanum.
Ég hverf nú aftur til Rottuborgar en kem mjög fljótt aftur og þá til að vera í einhvern tíma. Hvað ég er að fara að gera hér veit ég ekki, en í fyrsta skipti á Íslandi verður gaulið sett í forgang! Hvað sem það kostar!

þriðjudagur, apríl 01, 2008

ÉG Á AFMÆLI Í DAG!!!!

Takk fyrir öll sms-n og kveðjurnar elskurnar, ég varð barasta inneignarlaus við að svara þeim öllum!

Í tilefni dagsins er tilvalið að smella inn nokkrum partý-myndum.


Bollan var falleg og góð...


Afmælisprinsessan


Ég var ekki reið, bara eitthvað voða mikið að hlusta og hugsa!!


Aldrei fæ ÉG svona frá sambýlismanninum, ekki einu sinni þegar ÉG á afmæli!!


Eina parið á svæðinu, ótrúlegt en satt! (Aldrei að vita hvað verður með parið á síðustu mynd samt....)


Komin með nóg af bláa sullinu???


Vestfirskar blómarósir ;o)


Solla sæta þurfti ekki bláa undrið til að verða skrýtin á svip


Helgurnar tvær. Allir ættu að eiga allavega eina!


Ég stóð mig að því í partýinu að líta í kring um mig og hugsa: Mikið á ég óskaplega fallega vini!!