föstudagur, febrúar 28, 2003





I'm Rachel Green from Friends!

Take the Friends Quiz here.

created by stomps.





En gaman! Ég sem hélt að ég yrði pottþétt Phoebe :-) Hins vegar kom ekki mikið á óvart að Ólöf er Monica... aldrei drasl í Stigahlíðinni!



fimmtudagur, febrúar 27, 2003

Gleðifréttir dagsins ef ekki ársins eru þær að Skítamórall er að byrja aftur!!! Frábært, það er nefnilega ekki til nóg af hljómsveitum til að taka koverlög í Frostaskjóli. Alveg hallærislegt að vera með eitthvað voða kombakk á Írafárshátíðinni í gær, frekar mis. Mogginn sagði að 'uppi hefðu verið fótur og fit þegar hljómsveitin Skítamórall steig á svið eftir langt hlé.' Fótur og fit my ass, líklegast var nú aumingjans fólkið bara að reyna að komast út! Eða kannski ekki, ég gleymdi í smá stund hvernig meðal-verðlaunahátíðargesturinn var. Litlu gelgjurnar búnar að drekka kók í tonnavís síðastliðnar vikur til að geta kosið og búnar að fá vasapeningana fyrirfram til að komast á festivalið og sitja svo í sykurvímu með stjörnuglampa í augum þegar Goðin sjálf stíga á svið! Enda var víst mikið um yfirlið og panic-attacks í Borgarleikhúsinu í gær, Bráða-og slysadeild varð að mæta með sér unit fyrir utan Kringluna til að sinna þessum greyjum. En þær fengu að sjá Elítuna in action svo það var nú eflaust meira en vel þess virði.

miðvikudagur, febrúar 26, 2003

Skrýtin saga en alveg sönn
Fyrir tveimur vikum síðan hringdi í mig gaur sem var að leita að sálfræðinema til að tala við. Hann á nefnilega enga vini og fannst líklegast að sálfræðinemar vildu reyna að bæta úr því. Undarlegt símtal, undarleg beiðni og undarlegur gaur sem er mér algjörlega ókunnugur. Ég reyndi að tala mig kurteislega fram hjá því að blanda mér í þetta mál en eftir að hann hringdi aftur og sagði mér mikla sorgarsögu ákvað ég að næla mér í prik á himnum og hitta hann á kaffihúsi. Með það í huga að láta einhvern sem ég þekki vera á kaffihúsinu, einhvern sterkan :-) Allavega, svo var ég í voða prófstressi daginn sem við ætluðum að hittast og ákvað því að fresta ferðinni. Hringdi í hann og það eina sem hann sagði var JÁ.

Samtalið:
Góðan daginn, Anna heiti ég, er X heima?
Já
Er þetta hann?
Já
Hæ, hitti ég illa á þig?
Já
Ó er það er, ég að trufla?
Já
Sorry, en þannig er að ég er að fara í próf á morgun og er ýkt illa undirbúin og þarf því eiginlega að læra á fullu í kvöld svo ég verð eiginlega að fresta kaffihúsinu...
Já
En við getum kannski fundið einhvern annan dag, hvernig líst þér á það?
Já
Ef til vill á þriðjudaginn, ég er laus þá um kvöldið...
Já
Heyrðu ok við heyrumst þá bara seinna og finnum eitthvað út úr þessu
Já
Bless

Eins gott að ég vinn með einhverfa allan daginn og er því vön því að fá ekki mikla svörun. Svo var ég veik á þriðjudaginn og hann hringdi en ég var sofandi svo hann skildi bara eftir skilaboð. Eftir þetta stórskemmtilega símtal var ég nú ekkert æst í að hitta hann á kaffihúsi (vá, ég tala nú stundum mikið en ég get ekki haldið uppi samræðum við sjálfa mig heilt kvöld!) svo ég hringdi ekkert í hann til baka þegar mér var loksins batnað. Heyrðu, svo hringir gaurinn í gær fyrir kvöldmat og talar við Evu og biður hana að skila til mín að hann hafi ætlað að hitta mig fyrir 2 vikum síðan (1 viku reyndar en ok). Hann hringir svo aftur rúmlega tíu í gærkvöldi og segir ýkt pirraður við mömmu að við höfum ætlað að hittast fyrir mánuði síðan og er eitthvað að hneykslast á því að ég sé aldrei heima!
Langar mig núna að vorkenna þessum gaur og vera væn við hann og hitta hann á kaffihúsi til að hann geti látið sem hann eigi vini? mmmm..........NEI

þriðjudagur, febrúar 25, 2003

hey! ég fann annað naflakusk! Þitt blogg er samt skemmtilegra Ólöf mín, engar áhyggjur!
Ég var svo reið þegar ég vaknaði í morgun að ég hef sjaldan vitað annað eins. Mig var sko að dreyma langan og strangan draum um það að ákveðinn einstaklingur var FÍFL og ASNI og SKÍTHÆLL og (ég er alveg að jafna mig...) Anyways, ég var svo reið þegar ég vaknaði að ég titraði og skalf, allar taugar þandar til hins ýtrasta. Svo var ég bara lengi að ná mér niður. Ótrúlega óþægilegt! Alveg hrikaleg tilfinning. En við skulum vona að þetta sé búið og ég geti verið glöð og kát í allan dag. Að Jökull verði rólegur og Gugga ánægð með sönginn minn (svipað líklegt að það gerist hahaha). Svo er það pabbamatur, alltaf gott að fá smá toro í kroppinn, og svo þarf ég að hitta Sævar til að æfa fyrir einhverskonar upptroðslu á fimmtudagskvöldið. Ég er að spá í að taka smá Völu Matt á íbúðina hans og athuga hvað hefur breyst við það að kærastan hans flutti inn. Örugglega komið fullt af styttum og þurrkuðum blómum og teppum og sjampóum og krosssaumspúðum og vatnslitamyndum í gullrömmum. Nú er mér örugglega ekki lengur boðið í heimsókn :-)

sunnudagur, febrúar 23, 2003

Ég söng í tveimur messum fyrir gamalt fólk á umönnunardeildum í morgun. Skrýtið að spá í að ég verði einhvern tíma svona gömul. Lítil hvíthærð kona sem sit krumpuð í stól og segi öllum sem heyra vilja og hinum líka að 'Þegar ég var rúmlega tvítug söng ég nú hér fyrir gamla fólkið. Þá var ég nú ung og frísk og gat hlaupið upp tröppur á háum hælum og farið seint að sofa og hélt að ég gæti sigrað heiminn á tuttugu mínútum. Svo komst ég að öðru og nú sit ég hér á sunnudagsmorgni og tel niður tímana þar til heimsóknartíminn byrjar og vona að einhver afkomenda minna nenni að kíkja í heimsókn til mín.'
Shit.
Til hamingju með daginn kæru kynsystur! Vonandi fenguð þið allar koss eða knús í tilefni dagsins :-)

laugardagur, febrúar 22, 2003

Ég óska öllum sem eru að fara á árshátíð í kvöld (furðu margir) góðrar skemmtunar!!! Og veriði endilega ekkert að hringja í mig á morgun með skemmtilegar tjúttsögur því ég þarf að vakna rúmlega 8 í fyrramálið. Ég er nefnilega að fara að syngja á tveimur stöðum fyrir hádegi. Sem sagt bannað að hringja í mig á morgun nema fólk sé illa sofið og pirrað yfir því að fá hvorki hvíld né skemmtun um helgina. Hvað er annars málið með að láta mann syngja í messum fyrir hádegi á sunnudögum? Guði er örugglega alveg sama þó messurnar séu seinnipartinn. Enda kallast sunnudagsmorgnar yfirleitt ókristilegur tími til að vakna, allavega á mínu heimili.
Hörður Mar er hittir alveg naglann á höfuðið í þetta sinn. Snilld.

fimmtudagur, febrúar 20, 2003

hmmm... Kannski eitthvað vit í því að efidrín sé bannað hér?
(og nei, ég var ekki inni á Sportsillustrated dot com, ég er ekki alveg búin að tapa mér :-) )
Sjáið litla dúllufrænda minn!!! Hér er hann að binda fætur pabba síns (bróður míns) sem er augljóslega ekki með jafn mikla stílvitund og litlu systur hans... ;-)
Ég er sko með minna en engar harðsperrur! Lorteþjálfun, hún talaði bara um matarræði og surprise!!! það er í góðu lagi hjá mér. Waste of time and money. En jæja ég get allavega glaðst yfir því I guess.
Nú er ég að fara að hitta einkaþjálfara í Baðhúsinu sem ætlar að þyngja lóðin sem ég lyfti og skamma mig fyrir að borða ekki gulrætur daglega. Það verður gaman. Vonandi verð ég með svo miklar harðsperrur á morgun að ég get ekki skrifað. Þannig að: Góða helgi :-)

miðvikudagur, febrúar 19, 2003

Allir að styrkja Kvenskælinga og kaupa flottar nærur!!!
Vá hvað mér finnst mikil snilld að nú séu stelpur á móti strákum í Survivor. Spennandi að sjá hvort hóparnir þróast eins og týpískir karla og kerlingahópar, það lofaði allavega ekki góðu þegar stelpurnar gátu ekki byggt sér almennilegan kofa af því engin þorði að vera aðal. En þær unnu samt strákana í fyrstu keppninni, go girls! Ég er samt ekki alveg að fíla það að það eru engir sætir gaurar núna, ekki við fyrstu sýn allavega. En það er nóg af gellum fyrir hormónafulla stráka, sem dæmi má taka Heidi sem er ljóshærður leikfimikennari með stór brjóst. Need I say more?
Mig hefur lengi langað til að vita í hvernig hljómsveit ég ætti að vera. Svo kemur bara þetta í ljós :-(

MOVE to Last Vegas!! You're not going to be in a
band. You're going to be a Go-Go dancer! That
way you can listen to all that crap all through
the show!!!


What kind of band should you belong to?
brought to you by Quizilla
Það er ekkert gaman að vera veik. Ég er hitalaus í dag og ætlaði því í vinnuna en þegar ég þurfti hálftíma hvíld eftir sturtuna í morgun sá ég að ég er ekki alveg upp á mitt besta í dag. Þannig að ég þarf að vera heima og láta mér leiðast. Heppin heppin ég. Dagurinn mun sem sagt fara í að fylgjast með nágrönnum (í sjónvarpinu), syngja, spila á píanó, taka til og downloada lögum af netinu. Ég var búin að gleyma hvað það er leiðinlegt að spila á píanó, á tveimur dögum kemur 7 ára gamall horror yfir mig í bylgjum. Og ég þarf að klippa af mér neglurnar til að gera það almennilega Hrgmf. Ég er að verða heldur karlmannleg í útliti fyrir minn smekk og hvað þá ef ég verð naglalaus! Ræðum það ekki frekar, þetta er mjög viðkvæmt mál.

mánudagur, febrúar 17, 2003

Talandi um dans þá gæti ég nú alveg tekið eurovisionfarann í smá kennslu því ég var nefnilega að kenna vínarvals í gær! Reyndar bara svona aðstoðarkennari en samt... Í óperettunni okkar er nefnilega mikið af völsum og fíneríi svo það er nauðsynlegt fyrir okkur að kunna á því tökin. Og ég er svo eftir mig í dag að ég var veik heima í staðinn fyrir að fara í vinnuna, með hita og eitthvað svona óskilgreint slen og þreytu. Ég fór nú samt í gymið (áður en ég fattaði að ég var veik), söngtíma (styttist í forpróf), píanótíma (fyrsti tíminn í 7 ár), tónlistarsögu (próf) og kóræfingu (fyrsta skiptið). Nóg að gera sko þó maður sé lasinn. Ég var nefnilega að byrja í óperukórnum. Skellti mér í söngprufu á föstudaginn í skítugum buxum og götóttum sokkum og fæ að vera með í War Raquiem eftir Britten, flutt í maí með Sinfó. Ótrúlega flott verk. Nú er ég að svala netfíkninni eftir langa bið og hlusta á fyrsta diskinn sem var brenndur í Mávahlíðinni. Hann heitir Annie's Gangsta Remix '03 og inniheldur karlremburapp og tjútttónlist af bestu gerð. Takk litla mín :-*
Var að taka eitthvað próf sem Ólöf sendi mér og í ljós kom að ég er ástfangin af Jóhanni og Ólöf er besta vinkona mín. Það getur ekki verið! Jóhann er frændi minn og ég hitti Ólöfu bara once in a fortnight! Bull og vitleysa.
Nú get ég farið fullnægð að sofa þar sem ég er búin að tékka á öllu merkilegu á netinu (sjálfsblekking er vald) og býð góða nótt.
ps. Það er einhver misskilningur í gangi! Ég á afmæli fyrsta apríl!
OK byrjum á því augljósa og því sem sumir virðast halda að ég hafi sterka skoðun á... Eurovision. Rétt upp hönd sem var hissa á úrslitunum! Hélt ekki. Þetta var náttúrulega bara unnið frá upphafi þegar ljóst var að poppprinsessan væri að keppa og að kosið væri með símakosningu. Ég yrði allavega ekki hissa ef fólkið sem eyddi 100 krónum í kosningu væri sama fólkið og skrifar í gestabókina á írafár.is
Anyways... þetta var nú bara fínasta eurovisionlag, svona lag sem maður hefur einhvernveginn heyrt hundrað sinnum áður (t.d.Buttercup: ...Þó að um stund, lokuð öll sund...). Alveg týpískt ABA-form með hefðbundinni eurovision-hálftóns-hækkun í síðasta viðlaginu, gerir örugglega góða hluti í keppninni. Vonandi skellir prinsessan sér samt í nokkra danstíma áður en hún stígur á stokk fyrir okkar hönd, þessi ég-er-á-hestbaki-pósa hennar er ekki að gera góða hluti.
Halló Halló
Hafið þið saknað mín? Auðvitað hafið þið gert það, ég hef fengið sms, símtöl, ímeil og undirskriftalista (!) sem sanna það ;-) Bara kúl.
Vegna tæknilegra örðugleika komst ég ekki á netið í heila viku og það hefur reynst mér mjög erfitt, sérstaklega þar sem svo margt hefur gerst sem mig langaði að skrifa um. En nú er ég mætt tvíelfd á svæðið, með flottustu tærnar í bænum og til í allt.

þriðjudagur, febrúar 11, 2003

Ég tek kreatín og vítamín, hestalyf og líkaminn er útúrpældur....

sunnudagur, febrúar 09, 2003

Góðan dag! Og nei, ég er ekki þunn :-) Tjúttið í gær var vægast sagt undarlegt, byrjaði í vinnupartýinu þar sem meirihlutinn var orðinn ofurölvi fyrir klukkan 9 og þeir sem voru ekki ofurölvi ákváðu að ná hinum með því að reykja bannað tóbak. Smám saman fór fólki í stofunni svo að fækka en fólki á baðgólfinu og í hinum ýmsu rúmum að fjölga. Rétt fyrir miðnætti skelltu flestir sér í bæinn í fræðsluráðsrútu en ég og ein af Lindunum fengum far með verðandi prestinum okkar og hann keyrði okkur heim, þar sem ég náði í bjór og athugaði stöðu mála í tvítugsafmælinu, og svo á Hverfis. Það var fínt nema hvað að ég sat og talaði við fólk sem ég þekki ekkert og dansaði við það líka en var eiginlega ekki nógu drukkin til að finnast það alveg eðlilegt framferði. En svo kom riddarinn minn í leðurjakkanum og við fórum á Nasa. Þá var nú eiginlega alveg runnið af mér svo ég fór fljótlega heim köld og þreytt með mjög aumar tásur. Hér beið mín svo pepperonípizza, heitt freyðibað, fótanudd, upphituð sæng og kúr alla nóttina. Æ nei, mig dreymdi það víst.

föstudagur, febrúar 07, 2003

Ég er ekkert smá flott núna! Ber að ofan í undarlegri stellingu við tölvuna að reyna að hreyfa mig sem minnst. Fyrir þá fáfróðu skal ég útskýra. Ég er að bíða eftir að brúnkukremið þorni. Ég er nefnilega alveg á leiðinni á tjúttið á morgun og þá er eins gott að vera sætur og brúnn. Og það er hættulegt að fara í ljós svo ég sit frekar hér eins og X-rated myndastytta og skemmti mér konunglega. Og fyrir tjúttið á morgun verður alveg partýmúsík í casa de Mávahlíðarmæðgur því ég gaf Evu brennara í afmælisgjöf og nú verður það bara Kazaa og brennsla út í eitt :-)
Ég var í tómu rugli í gyminu í morgun því ég svaf mjög lítið í nótt og borðaði engan kvöldmat í gær. Það var eitthvað pallapúl í tímanum og það leið ekki á löngu þar til ég fór að sjá litlar stjörnum hér og þar. Það var ekki gaman en nú er ég búin að borða og hvíla mig smá svo líkaminn ætti að geta einbeitt sér að undirbúningi áfengisneyslu í miklum mæli. Þetta verður eitthvað skrautlegt og ég lofa að gefa góða skýrslu á sunnudaginn.
Góða helgi allir saman en sérstaklega VillikærastinnhennarHildigunnarsemervinkonaÓlafarsemervinkonamínasíðanísexárabekk því hann þorði að skrifa í gestabókina!
TIL HAMINGJU MEÐ TUTTUGU ÁRA AFMÆLIÐ ELSKU BESTA LITLA SYSTIR

fimmtudagur, febrúar 06, 2003

Mér finnst eins og ákveðin beinhimnubólga sé að koma aftur í ákveðin hné en það er örugglega bara rugl í mér. Ég held líka að ég hafi skaðað eitthvað í magavöðvunum mínum því þeir eru búnir að vera í einhverju rugli síðan fyrir síðustu helgi. En það er vafalaust bara af því að þeir eru að stækka, vaxtarverkir eins og maður fékk í fæturna í gamla daga. Nú stækkar maður bara á þverveginn og því fylgja engir verkir, svo ég var búin að gleyma að þeir væru til. Ég var nefnilega svo fljót að verða alveg jafn stór og ég er núna svo ég var stærri en allir strákarnir og það vildi enginn vanga við mig í bekkjarpartýum. Ég er samt ekkert bitur...
Í tilefni þess að það styttist í helgina er nú tilvalið að kíkja á þessa prinsessu :-)

miðvikudagur, febrúar 05, 2003

Hvað er málið með þetta lortevejr???? Mér finnst ekki gaman að koma heim í blautum skóm og sokkum og buxum og þurfa að byrja á því að hátta mig frammi á stigagangi. Nágrönnunum finnst það ekkert gaman heldur.
Ég var að lesa ónefnt blogg og þar var þessi setning: 'To tad se nu ekki mikid minna en 0 gradur ta er anskotanum kalt inni i husinu...' Aumingja andskotinn, hann verður bara að finna sér annað hús að búa í :-)

þriðjudagur, febrúar 04, 2003

Hvað ætli þetta ógeðslega sé sem Ólöf er að tala um?
Húrra fyrir því að ég má aftur skrifa íslensku. Það eru sannarlega gleðilegar fréttir. Þetta var alveg próf dauðans, þvílíkt og annað eins. Þú færð einn klukkutíma til að skrifa ritgerð um áhrif aukinnar orkunotkunar á óendurnýtanlega orkugjafa okkar. Þú færð 1 mín og 45 sek til að lýsa hringrás vatns. Rúmlega 4 klst síðar var ég svolítið búin á því. Þá byrjaði eltingaleikurinn við skrifstofukonuna sem getur sagt mér hvernig ég fæ námsleyfi í HÍ. Þegar hún var fundin byrjaði biðin eftir því að skrifstofan hennar opnaði. Alltaf gaman að fara í svona skemmtilega leiki. Endaði loks á því að ég skrifaði fallegt bréf til skorarformanns og vonandi verður hann vænn við mig og gefur mér það sem ég vil. Eruð þið ekki glöð að ég er farin að skrifa á hinu ástkæra ylhýra aftur?

mánudagur, febrúar 03, 2003

You're Perfect ^^
-Perfect- You're the perfect girlfriend. Which
means you're rare or that you cheated :P You're
the kind of chick that can hang out with your
boyfriend's friends and be silly. You don't
care about presents or about going to fancy
places. Hell, just hang out. You're just happy
being around your boyfriend.


What Kind of Girlfriend Are You?
brought to you by Quizilla

Warum ist mein Freund dann im Ausland??? HRGMF. Ólöf ist auch perfekt, das wusste ich aber :-) DaF-Prüfung Morgen, Scheisse.

sunnudagur, febrúar 02, 2003

Wie verliert Deutschland gegen Croatien? Und keiner fragt wer an 2.Stelle steht... Schaue gerade der Film Besser geht's nicht mit Jack Nicholson, wenn ich isländisch sprächen dürfte würde ich Brill sagen :-) Gute Nacht meine Lieben und eine gute Arbeitswoche wunsche ich Euch ***
Hab' gerade einen guten Film gesehen, Gangs of New York. Danke Ólöf und ihr Freund...wie heisst Er nochmal?? ;-) Bin ansonsten einfach müde Heute, zu viel Telefon und zu wenig Schlaf hat heufig diesen Effekt. Nur noch 2 Tage Deutsch und dann kann ich wieder Isländish sein. Jubiii

laugardagur, febrúar 01, 2003

Endlich Wochenende! Ich hatte gestern einen schrecklichen Tag auf der Arbeit und war total kaputt als ich nach Hause kam. Aber kurz nach 20 Uhr kriegte ich eine Sendung die mich wirklich frisch gemacht hat. Fünfundzwanzig rote Rosen, danke schön! Vielen herzlichen Dank kriegt der Absender *Küsschen* Heute muss ich für die TestDaf-Prüfung (Deutsch als Fremdsprache) lernen und ich werde langsam eins Bisschen nervös... Naja, werden wir wohl sehen wie gut mich mein Vater vorbereitet hat hahaha. Bis Später liebe Leser die Deutsch verstehen!!!