sunnudagur, apríl 19, 2009

Skyld'a vera jólahjól?
(Nei, djók. Þetta var nú bara fyrir mömmu ;o) )

Í gær gerðist ykkar undirrituð áhættufjárfestir! Mig rekur allavega ekki minni til að ég hafi fjárfest í öðru eins, að frátalinni menntun og ferðalögum auðvitað. En ég keypti mér hjól! Alvöru, demparað, álstellis, 21 gíra, há-stýrað svo maður þarf ekki að beygja sig hjól! Og það er fallegasta hjól sem ég hef augum litið. Hér má sjá bróður þess, en mitt er auðvitað mun flottara; komið með körfu og verður með glæsilegt hnakkaskraut alla daga. 

Nema í dag, því um leið og hjólið var komið í hús helltist yfir mig alveg hrikalegt kvef og ég er búin að liggja fyrir síðan. Hef auðvitað sloppið einstaklega vel við kvef í vetur svo það var alveg við því að búast að það birtist með vorverkunum. Það er allt í lagi, bara svekkjandi að David sé einmitt á svæðinu. 

Merkilegt hvað maður verður orkulaus með kvefum, það tók mig hálfan daginn að finna innri kraft til að komast í sturtu og föt. Undir eðlilegum kringumstæðum myndi ég klárlega sleppa svoleiðis pjatti, en ég er að fara á tónleika í kvöld og þá er ætlast til þess að maður lykti og lúkki ágætlega. Þá er bara að kasta "less is more" reglunni út um gluggann (leiðindaregla hvort eð er) og maka á sig maskara og kinnalit. Fyrir peninginn!

Hafið augun opin þegar líður á vikuna og kannski sjáið þið stúlkukind í hvítri regnkápu á hvítu hjóli að heyja dauðastríð við Ártúnsbrekkuna... Í guðanna bænum ekki bípa á mig samt!!! :o)

mánudagur, apríl 13, 2009

Að baka sér bakvandræði

Ég er búin að vera furðu góð í bakinu undanfarið. Sem sannar kannski bara í eitt skipti fyrir öll að lækningin mín er að hreyfa mig nógu andskoti mikið. En samt verð ég að fara varlega því það er örmjó lína á milli þess að vera hoppandi hress og haltrandi hross. Því gleymdi ég aðeins í morgun.

Það var 2 tíma Bootcampæfing og í glaðasól með vor í hjarta og nautasteik í malla (NAMM!) hentist ég af stað. Æfingin var mjög erfið en ekki sársaukafull, þangað til ólánið dundi yfir. Best að skjóta því að núna að við vorum að vinna saman 2 og 2. Stúlkan sem ég var með var nú ekkert að tæta upp mölina sjálf, mér fannst við bara nokkuð vel samanparaðar, en henni fannst hún greinilega miklu duglegri en ég. Við vorum búnar hlaupa helling, gera 3000 uppstig og framstig og bjarnagöngur og ofursúpergleðifroska og ég veit ekki hvað þegar annar aðilinn átti að gera einhverja leiðinda hnébeygjuæfingu á meðan hinn hélt sandpoka fyrir ofan haus. Að vanda var parinu refsað ef sandpokinn fór neðar en í hausahæð. Þessir blessuðu sandpokar eru sleipir, þungir, asnalegir og meiða mig í bakinu. En ég snaraði samt einum fyrir ofan haus og hélt þar á meðan Fúla Múla barðist við að gera 50 leiðinda hnébeygjuæfingar. Eftir smá stund var bakið farið að fettast all-svaðalega og ég komin með kunnuglegan verk, svo ég setti pokann niður. Vinkonan varð nú alls ekki sátt við það og kærði sig (skiljanlega) ekki um að taka út refsingu fyrir mína hönd. Og í stað þess að gera það eðlilega í stöðunni -segja henni kurteislega að fara í rassgat því ég er bakveik og fara svo til þjálfarans að biðja um bakvænni æfingu- þá bara muldraði ég: Sorry! og lyfti pokanum aftur! 

Spurning mín til ykkar er nú þessi:
Hvað í hópþrýstings, hetjuláta, flónsku og fávitahætti er eiginlega að heima hjá mér???? 

sunnudagur, apríl 12, 2009

Það kvelur ei auga sem ei kemur í það

Íslenska útgáfan af out of sight, out of mind? Gef nú ekki mikið fyrir þennan málshátt. Hvað þá þann sem ég fékk í litlu eggi um daginn: Betra er að fela fiskinn en elta köttinn. Hvað er að frétta??

Búin að hlaupa 7 km og mátti því opna dökka súkkulaði páskaeggið. Bölvaður sé minn þýski agi. Ægissíðan var reyndar eins og Kringlan, ég komst varla fyrir í bleiku eldingunni (nýju hlaupabuxurnar fyrir þá sem ekki þekkja til aðstæðna my thunderous thighs...) fyrir línuskautabyrjendum, hundum og útlendingum. Er enn að hlaupa til nýju skóna og þó ég hafi alltaf vitað að ég er vond stjúpsystir eru blóðfullir sokkar og skór að verða pínu, pínu þreyttir. 

Páskarnir eru annars búnir að vera góðir. Ég var í fríi á fimmtudag og svaf allan daginn, nema þegar ég hljóp aðra 7 km. Veit ekki hvaða hlaupagleði þetta er, síðast þegar ég vissi fannst mér sko mjög leiðinlegt að hlaupa? Var með Jökull minn í gær og í fyrradag en fæ nú tveggja daga frí áður en Óðurinn til ljósritunarvélarinnar hefst á ný. Þar sem við Karonina systur eigum enga foreldra innan bæjarmarka, hvað þá tengdaforeldra eða annan óskapnað, kemur hún í mat til mín og snæðir nautasteik og sætar kartöflur. Ekkert að því...

Gleðilega páska dýrin mín xx

miðvikudagur, apríl 01, 2009

Afmælisblogg fyrir Hrönn

Klárlega nýtt met í þagnarbindindi, veit ekki alveg hvað veldur. Hef bara ekki haft neitt sniðugt að segja held ég.
En í dag á ég afmæli og hef nóg að segja! 29 ára kellingin, legg ekki meira á ykkur (lít samt ekki út fyrir að vera degi eldri en 26 sko) . Dagurinn hefur gengið vel so far, fékk subbuborgara í hádegismat, fullt af knúsum og góðar gjafir á miðnæturblóti Mávahlíðarmæðgna í gær. Vinnufélagarnir voru eitthvað að væla yfir því að ég ætlaði ekki að koma með köku í dag, en mér fannst alveg nóg að koma með köku og heimabakaðar bollur á föstudag. Ég ákvað samt að fara milliveg og búa til konfekt handa þeim, mikið urðu þau öll glöð!! Mér þótti samt leiðinlegt þegar þau spýttu því strax útúr sér. Síðan hvenær er eitthvað að súkkulaðihúðuðum gúrkubitum?!??! Laun heimsins eru og verða vanþakklæti. Annars finnst mér óhemju lítill metnaður lagður í göbb dagins í fjölmiðlum; brunasala á húsgögnum, ókeypis bjór og áheyrnarprufur -í alvöru? Vonandi verður eitthvað bitastæðara í sjónvarpsfréttum, ekkert fer framhjá haukfráu auga aprílflónsbarnsins!
Af mér er annars allt gott að frétta þrátt fyrir að brjóstin nálgist nafla á ógnarhraða. Booty Camp gengur vel og smjörið rennur af bumbusi, ég syng eins og vindurinn til að undirbúa næstu skref feril-lega séð (sem fela m.a. í sér að ég er orðin mezzó -þeir skilja sem skilja), vinn eins og ritarinn sem ég er -eins skemmtilegt og það nú er- og strætóast bara þess á milli. Hlakka til að kaupa mér hjól og fara að nota það, kvíði reyndar Ártúnsbrekkunni svolítið en smá sviti er ekkert sem ég ræð ekki við! Helst að ég hafi áhyggjur af samstarfsfólkinu...
En jæja, þá eru komnir nokkrir stafir á blað og best að ég haldi áfram afmælisdeginum góða. Eftir vinnu fer ég í söngtíma til Kristjáns nokkurs Jóhannssonar, spennandi að heyra hvað honum finnst um hávaðann. Svo fæ ég plokkfisk hjá mömmu og kannski smá hvítvín í kvöld. Hvað er hægt að biðja um meira? xx