mánudagur, ágúst 28, 2006

Jájá, nóg að gerast og nóg að segja frá. Hvar skal byrja?
Chippendales! Gaman að byrja á þeim! Okkur Guðbjörgu var semsagt boðið að bera þá beru menn augum og hef ég eiginlega ekki boðið þess bætur enn. Amk er ég enn með kvef... Það var nú meira um peningaplokk en fína drætti hjá þeim góðu mönnum svo ég varð eiginlega bara fyrir smá vonbrigðum. Þegar maður hefur séð einn fallegan mann klæða sig úr öllu nema nærbuxunum hefur maður eiginlega séð þá alla, allavega í bili. Greyin, ég fann eiginlega bara til með þeim, þeir voru ekkert að skemmta sér neitt konunglega þó greddubreddunum hafi þótt þetta hressandi. En ég meina það, nú get ég allavega xað við þetta á túdúlistanum.
Hvað gerðist svo? Já, ég fór bara óvart hringinn í kringum landið! Gaman að segja frá því. Planið var að skoða Suðurland og kannski kíkja austur á firði en þegar við lögðum af stað á þriðjudag var besta veðrið fyrir norðan svo við enduðum bara á því að fara hringinn. Hann var farinn nokkuð greiðlega, eða á eftirfarandi hátt:
Þriðjudagur: Keyrðum til Akureyrar og gistum í tjaldi í Vaglaskógi. Frost í tjaldinu um nóttina. Ekki sniðugt.
Miðvikudagur: Glampandi sól og blíða. Stutt keyrsla í Mývatnssveit, túristast þar og gist í svefnpokaplássi.
Fimmtudagur: Keyrðum austur og tjölduðum í Atlavík, búin að gleyma hrakningum frostnæturinnar. Borðuðum fínindismat hjá Svövu og ég fékk að knúsa Val litla. Klárlega hápunktur ferðarinnar! Það var bara frekar hlýtt í tjaldinu þá nótt.
Föstudagur: Leti fram eftir degi en keyrðum svo til Hafnar og gistum aftur í svefnpokaplássi.
Laugardagur: Skoðuðum Jökulsárlón og Skaftafell og ákváðum bara að keyra heim. Við erum greinilega of gömul og stirð í svona grín mikið meira en tvær nætur. Stoppuðum hjá Guðbjörgu á leiðinni heim.
Sunnudagur: Náttföt í notkun mestallan daginn og aldrei kalt.
Þannig var Sumarfríið 2006 í hnotskurn, bara helvíti fínt!
Nú gæti maður spurt hver var með mér í för og er gaman að segja frá því að ferðafélaginn er maðurinn sem þekktur er sem Wifebeaterinn... Ekki það að hann hafi nokkurn tíma lagt á mig hendur, bara til að hafa það á hreinu, en hann ber þó heilmikla ábyrgð á því að ég var í gifsi í að því er virtist mörg ár hér um daginn. En það er skemmst frá því að segja að hann fékk ekki leið á mér þrátt fyrir að fá bara nokkrar klósettpásur frá mér í 5 daga og þykir mér það bæði merkilegt og skemmtilegt. Og það sem meira er, fékk ég ekki leið á honum! Brill.
En í dag eru 6 dagar þar til ég held í söngvíking á ný svo það er eins gott að hrista af sér letilífið og fara að mixa það sem til þarf. Gaman væri að redda íbúð áður en ég fer en líkur á því minnka því miður óðfluga. En ég ætti að geta knúsað flesta, reddað peningamálum og jafnvel sungið eins og eina nótu eða tvær áður en ég kveð að sinni eftir skrýtið sumar, bæði gott skrýtið og vont skrýtið, en óumdeilanlega viðburðarríkt ;o)

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

The Days of Our Lives

Síðasti dagurinn í Langholtsskóla á morgun! Herra minn trúr, tíminn líður sannarlega hratt þegar maður hefur nóg að gera. Síðasta vikan er búin að vera frekar strembin, allir orðnir þreyttir og þar á meðal ég, en á morgun verður sko kátt í höllinni. Þá er uppskeruhátíð í Fjölskyldugarðinum og við munum grilla grænmetið sem við ræktuðum í sumar. Við vorum sko nefnilega með garð í skólagörðunum, smíðuðum kofa á smíðavelli og unnum við kúkhreinsun í Húsdýragarðinum. Það er einmitt hressandi fjósalykt af mér núna, gaman að segja frá því. Lyktin hefur nefnilega þá skemmtilegu eiginleika að smjúga inn í húð og hár á augabragði... Maturinn á morgun verður reyndar bara góður; alls konar rófur og kál og hápunkturinn verður svo nýjar kartöflur með ferskum kryddjurtum og smjöri sem við strokkuðum úr mjólk úr kúnum í Húsdýragarðinum. Maturinn verður svo borðaður með göfflum sem við höfum tálgað og munnar þurrkaðir með handofnum þurrkum... Það verður svo að sjálfsögðu boðið upp á pylsur fyrir ungviðið, enda ekki hægt að bjóða þeim bara upp á grænmeti. Sama hvað Íþróttaálfurinn segir!

laugardagur, ágúst 12, 2006

HÁRPRÝÐI Á HÝRPRÝÐI

Til hamingju með daginn allir kynhneigðir! Var að koma heim af árlegri göngugleði okkar Dóru og skemmtum við okkur vel að vanda. Okkur var meira að segja boðið að vera með, en ákváðum að stela ekki sviðsljósinu að þessu sinni. Það er þó aldrei að vita hvað við gerum að ári liðnu...

Það er enn blússandi gleði hér í hlíð, þrátt fyrir sólarleysið. Hvað er málið með þetta sumar? Ekkert nema rigning út í eitt svei mér þá! Ég sem sá fyrir mér kaffibrúnku og kókosilm í lofti í allt sumar. En hvít húð og plastpollagallalykt eru nú líka heillandi á sinn hátt, ég neita því ekki.
Nú er bara ein vika eftir af sumarstarfinu og það er löngu komið á skínandi skært að ég mun sakna þessarra barna alveg jafn mikið og allra hinna sem ég hef unnið með. Ég mun hins vegar ekki sakna starfsins sem slíks, enda virðast reynsla og mistök undanfarinna ára ekki hafa leitt af sér mikla þróun í skipulagsmálum. Merkilegt hvað börnin sem njóta þjónustunnar virðast læra mun hraðar og betur en þeir sem veita hana.

Planið er að klára Sumarskólann í lok næstu viku, vinna í Selinu tvo daga og skella mér svo út á land. Nokkrir dagar í fjallafaðmi og ró og spekt verða vel þegnir og nauðsynlegir áður en ég kveð að sinni. Yfirmaður söngdeildarinnar sendi út ímeil í vikunni til að segja okkur hvað við þurfum að undirbúa fyrir upphaf skólans og það stefnir í ótrúlega spennandi ár. Í söngdeildinni verða líklega 6 Íslendingar (já, sex!!) svo það verður ekki lengur hægt að blóta á því ylhýra á almannafæri. Við munum smám saman leggja undir okkur söngdeildina held ég, bara spurning hvort þetta stafar af því að Íslendingar beri í sér óvenju góð söng-gen eða hvort ástæðan sé sú að við borgum margfalt hærri skólagjöld en allir aðrir... Uss! Skiptir ekki máli, það er gaman í Rottuborg :o)

Fór í heimsókn til Dagnýjar minnar í gær og fékk nett áfall þegar ég komst að því að gellan er komin með síðu á Myspace! Hvað? Á dauða mínum átti ég von... Mittpláss er greinilega alveg málið um þessar mundir. Ég er reyndar með einhverja síðuómynd þar en það er nú bara svona til að geta lesið blogg félaga minna, frekar lítið lagt í útlit og innviði enda gef ég allt sem ég á í þessa síðu hér. Eins og sést.

Mikið er gaman að blogga um ekki neitt!

fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Hæ elskurnar!
Eru ekki allir kátir? Hvernig er annað hægt spyr ég nú bara. Hitabylgjan brýst út með rigningu og sumarið bara að verða búið. Bara nokkrar vikur í að ég stingi af aftur og allt að gerast. Regnbogar, fiðrildi, bleik sólarlög og söngur af gleði fyrir klukkan sjö á morgnana. Laus við gipsið góða og er eiginlega alveg farin að geta notað handlegginn eins og ekkert hafi í skorist. Mikið er ég nú heppin að hafa tvær hendur! Sumarhátíð Sérsveitarinnar er komin og farin og var hún skemmtileg eins og alltaf. Ég kom meira að segja í sjónvarpinu og plöggaði hana, tékkið á vísir.is, veftíví, ísland í bítið, föstudagurinn 28.7. og hlæið að mér! Munur að hafa sambönd á réttum stað sko, Eva kíví sér um sína...
Skellti mér á Snæfellsnes um síðustu helgi og átti þar töfrandi tíma. Æðislegt í alla staði, allir á Snæfellsnes! Svo er það bara Hafnardalur á morgun. Þar verður haldið fjölskyldumót og stefnir í mikið stuð, 50 manns og fullt af börnum, rigning á kortunum og bara tóm gleði. Svo eru bara tvær vikur eftir af vinnunni! Hversu magnað er það? Tíminn flýgur þegar maður skemmtir sér konunglega. Við Alex erum að leita að íbúð úti og það lítur reyndar ekkert alveg nógu vel út. Spurning um að henda Stærðfræðisæberg út úr minni íbúð, nú eða einfaldlega sofa við hliðina á honum!?! ;o)
Langaði bara að deila með ykkur hvað ég er fáránlega hamingjusöm þessa dagana og óska ykkur farsælrar og öruggrar Verzlunarmannahelgar.
Risaknús,
Tvítóla töffarinn