föstudagur, nóvember 28, 2003

Skild' það vera jólapróf? Skild'etta vera jólapróf? Skild'etta vera prófajól....heeeeeeey...
Loksins jólalag sem mig langar til að syngja með :-)
Ég var að fá meil frá Ingibjörgu frænku sem kemur heim um jólin... það var ánægjulegt að heyra. Hef ekki heyrt í henni lengi, svo lengi að hún veit ekki einu sinni hvar ég er stödd í heiminum eða hvað ég er að gera!
Kannski ég segi henni að ég sé orðin fastráðin við Óperuhúsið í Berlín, það myndi gleðja hana... eða að ég eigi von á þríburum í febrúar.... eða að ég sé orðin dönsku- og leikfimikennari á Hofsósi.... ég ætla að velta þessu aðeins fyrir mér áður en ég svara henni

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Ég var að sjá hvaða fyrirtækjanafn ég ætti að bera. Það er Aktiv8 ...mjög frumlegt. Þú getur skoðað þitt nafn hér ef þú vilt. Annars er ég alveg á fullu að læra sko.... ;-)

sunnudagur, nóvember 23, 2003

Ég gleymdi að segja að ég var módel fyrir förðunarfræðinema á fimmtudaginn og lærði helling... Komst meðal annars að því að það er mjög eftirsóknarvert að mála mig, ég er víst með svo stór augnlok (!) og kinnbein.....Alltaf lærir maður eitthvað nýtt ;-)
Læri lær.... Ritgerðir á færibandi... Ein átti að vera 6 síður en er óvart 10 og önnur á að vera lágmark 10 en ég á þvílíkt erfitt með að teygja hana yfir 7... Bögg. Tók mér smá pásu frá skrifunum á föstudaginn til að sækja Jóa á flugvöllinn, svo aftur til að geta átt smá kvöldstund með honum. Hef svo ekkert skrifað í dag því ég var að vinna, mjög gaman hjá okkur skötuhjúum í dag en drengurinn var svo glaður að sjá mig (eða eitthvað) að hann beit mig í kinnina! Frekar vont og heldur ófrýnilegt, vona samt að farið verði farið á morgun hahaha

fimmtudagur, nóvember 20, 2003

Var að taka eitthvað persónuleikapróf og fékk niðurstöðurnar: Skoraði hæst á extrovert-personality sem þýðir að ég sé svona úthverf manneskja, tala mikið og er félagslynd. Lægst skoraði ég á Emotional Inconsistency sem þýðir að ég er ekki mikið að sveiflast á milli gleði og sorgar og så videre. Ég er nú barasta nokkuð sátt við þessar niðurstöður! Og ég vil taka það fram að gefnu tilefni að þó ég sé sálfræðinemi kann ég ekki að svindla á svona prófi til að koma betur út...
Haldiði ekki að Arndís frænka hafa skrifað í gestabókina mína? Merkilegur andskoti. Addý litla.... ég gæti sko sagt sögur af henni í allan dag... En ég ætla ekki að gera það, í þetta sinn :-)

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Ég er að skrifa ritgerð...sem er augljóslega ekki í frásögu færandi. Og ég er búin að segja frá því oft :-) Nema hvað að hún á að fjalla um Póstmóderníska gagnrýni á kenningar í þróunarsálfræði. Af því að þetta er efni sem ég er ekki beint með á hreinu og get ekki þulið upp úr mér misgagnlegum fróðleik um hef ég verið að reyna að leita upplýsinga víða, bæði á netinu og á bókhlöðunni td. Málið er bara að það virðist enginn geta sagt mér hvað póstmódernismi er.... allir geta sagt hvað það þýðir í bókmenntastefnu af því að það er kennt í framhaldsskólum og allir virðast nota það í tíma og ótíma af því að það er svolítið kúltíverað... En það virðist enginn þessarra háu herra og frúa geta ælt því út úr sér hvað þetta er. Þetta er vandamál allra sem eiga að skrifa þessa ritgerð og hafa sumir brugðið á það ráð að fara að tala um Matrix og eitthvað í þessu samhengi af því að það stóð víst einhverntíma einhversstaðar að það væri póstmódernísk mynd...???? Ég botna hvorki upp né niður í þessu... og er jafnvel bara að velta því fyrir mér að fjalla um þessa blogg-færslu í ritgerðinni. Hún hlýtur að geta talist póst-módernísk eins og allt annað.
í Mogganum í morgun birtust meðaltalseinkunnir samræmdra prófa í 4. og 7. bekk í stærðfræði og íslensku. Ég verð nú bara að vera leiðinleg og segja að fyst hélt ég að þeir hefðu ruglast og sett inn miðgildi einkunnanna... þetta voru bara tölur í kringum fimmuna, frá 4,8-5,3 eða eitthvað sirka bát það. Hvað er málið? Krakkar í 4.bekk eru enn að læra að geyma þegar lagðar eru saman 3 stafa tölur og setja í mengi og eitthvað... 5 í meðaleinkunn í öllum fögum? Er það kannski bara ég sem sé eitthvað óeðlilegt við þetta? Ég er ekki að segja að allir verði að vera mannvitsbrekkur sem fá fyrstu áttuna sína í menntaskóla og fyrstu sjöuna í háskóla (hmmm...) en come on! Mér finnst þetta óeðlilegt.

mánudagur, nóvember 17, 2003

Annars var ég að fá heimsendingarseðil frá HÍ þar sem fram kemur að ég er með fyrstu einkunn í meðaltal af þessum 34 einingum sem ég er búin með. Ótrúlegt, allavega miðað við skipulagsleysið sem ríkir þessa dagana... Undarlegt heiti; heimsendingarseðill. Hmmm...þetta er seðill sem á að senda heim til nemenda HÍ..hvað eigum við að kalla hann?? Best að kalla hann bara heimsendingarseðil, mjög frumlegt :-)
Já, það er óhætt að segja að ég hafi ekki slegið í gegn í gær...hmmmm...en þetta gekk stórslysalaust fyrir sig. Ágætis mæting, eitthvað um 100 manns í salnum. Eftir tónleikana kíktum við svo nokkur saman á kaffihús, sem var mjög notalegt, og ég fékk mér súkkulaði köku sem var einnig mjög notaleg. Eftir öll notalegheitin var það þrældómur fram eftir kvöldi, ég er nefnilega að reyna að böggla saman ritgerð sem ég þarf að skila og kynna eftir viku. Á sama tíma er ég í hópavinnu að leggja lokahönd á verkefni sem á að skila á miðvikudaginn og á morgun hitti ég komu sem ætlar að benda mér á heimildir fyrir ritgerð sem ég á að skila eftir viku líka. Ég, í tómu tjóni? Nei....

laugardagur, nóvember 15, 2003

Mæli með skemmtilegum tónleikum í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun klukkan fjögur. Það verður mjög athyglisvert ;-)
Oj! Þetta er sko enginn laugardagur! Ég þurfti að mæta á general kl.11 í morgun, frekar þreytt og gólftuskuleg... enda fékk ég engin húrrahróp að söngnum loknum. Svo var það ótrúlega skemmtilegt hópverkefni sem snýst um að skilgreina kenningagagnrýni í þróunarsálfræði. Einn, tveir og JEI!!!! Æði. Við gáfumst upp eftir tvo tíma því við áttuðum okkur á því að við skildum ekki nema svona fjórða hvert orð af því sem við vorum að skrifa. Ég tel okkur samt góðar að fatta það þó. Nú er ég að pynta mig í gegnum 147 heimildirnar mínar fyrir ritgerðina sem ég þarf að skila á mánudaginn. Það er ekkert mál, búin að lesa þær svo nú er bara eftir að skrifa upp 20 blaðsíðurnar! Pís of keik. Ég er alveg nördpúnkturis; ein heima á laugardagskvöldi að læra og hlusta á Sígaunaljóð Dvoraks... Party on Wayne!

föstudagur, nóvember 14, 2003

Tileinkað Kiwi
Þar sem bloggfærslur síðustu daga hafa nær eingöngu verið fyrir litla kívíið mitt ætla ég að segja nokkur orð um hana.
Ég er búin að eiga hana lengi lengi, ég man meira að segja varla eftir því að hafa verið til án hennar. Við höfum sem sagt gengið í gegnum súrt og sætt. Hún kenndi mér að þegar maður er stóra systir þýðir ekkert að klaga, pabbi og mamma halda alltaf með litla saklausa kíví. Ég hef kennt henni margt, það helsta er kannski að klæða sig í svart og vera sceary teenager... Nei, líka að mála sig sómasamlega og vera obsessed af fötum og því hvort hlutir passi saman.
Það er sannarlega gott að eiga kíví. Hún er alltaf til í að borða rusl-mat, maula nammi og drekka kók og það þarf ekki að bjóða henni oft að horfa á Friends. Hún er líka mjög dugleg til að hvetja mig til að gera það sama og er snögg að slökkva á samviskupúkanum. Þegar ég fæ mígreni kann hún best að koma með frystihausadótið og gefa mér það sem ég þarf...hún ætti eiginlega bara að verða læknir. Henni þykir vænt um gamalt kalkað fólk og hún veit hvað allir hlutirnir í IKEA heita á sænsku. Hún er svolítið skrýtin stundum.
Það skemmtilegasta sem hún veit er að hanga á kaffihúsum og stundum vídeóleigum og hún þekkir fullt af dyravörðum og plötusnúðum. Hún getur quotað Friends eins og hún fái borgað fyrir það og henni finnst gaman að syngja eins og Justin minn Timberlake. Henni finnst gaman að gera grín að mér, sérstaklega finnst henni skortur minn á framfyllingu í peysur skondinn. Hún borðar ekki sveppi og myndi helst vilja útrýma þeim með öllu. Núðlusúpur finnast henni ljúffengar og líka beyglur með smjöri.
Hún er algjör fýlus þegar hún er nývöknuð og henni finnst ekkert gaman að maður tali við sig þá, hvað þá ef maður dirfist að reyna að vera fyndinn! Þá er eins gott að vera fljótur að forða sér... En annars, þegar hún er vel vöknuð, er hún ljúf eins og lamb og voða góð.
Þetta er kívíið mitt í hnotskurn og nú geta allir öfundað mig! Ef þið hafið áhuga á að fá hana í láni einhvern tíma, ef þið fáið mígreni eða vantar afsökun til að læra ekki undir próf til dæmis, hafið bara samband og ég skal gera það sem ég get!
Ég fór út að borða í gær með VV genginu. Mikið rosalega erum við skemmtilegur hópur! Við fórum á Hereford steikhús þar sem maður þarf að skrifa sjálfur niður hvað maður vill borða... Tilvalinn starfsvettvangur fyrir lesblinda/skrifblinda þjóna. Við fengum fjórréttaðan mat (einn rétturinn í boði hússins...samböndin sko) og hann var bara alveg prýðis-góður. Nema humarsúpan, hún var mjög römm og ekki alveg nógu spennandi. En við rifjuðum upp gamla góða daga og grínið og glensið var í fyrirrúmi. Toppurinn var samt þegar við fórum í hvísluleikinn ;-) Augljóslega heimsvant fólk á ferð. Svo keypti ég jóladisk, mikið sem fyrrum samstarfsmenn eiga af diskum til að láta mann kaupa... Hann verður opnaður þegar vinnulærutónleikatörninni minni lýkur, ekki fyrr!

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

Þar sem ég er nú svolítil nöldurkelling inn við beinið verð ég að fá að kvarta smá og kveina. Í dag er það bílastæðið við Sporthúsið sem fer í taugarnar á mér. Reyndar ekki bara í dag, heldur alltaf þegar ég fer þangað...sérstaklega á kvöldin. Það er sem sagt bara óupplýstur malarvöllur, mjög skemmtilegt á dimmum kvöldum. Ég bíð alltaf bara eftir að einhver stökkvi á mig og komi fram vilja sínum við mig (hver svo sem hann kynni að vera; ræna mig, ræna mér, nauðga mér... allavega ólíklegt að hann vilji stela bílunum hans Jóa hahaha). Og ég er yfirleitt svo búin á því eftir combattið að ég myndi ekki geta lumbrað mikið á ódæðismanninum.
Svo er eins og fólk kunni ekki að leggja þar sem vantar línur á götuna. Ótrúlega fyndið hvernig bílarnir eru smám saman í skakkari röð þar til í enda stæðisins þar sem þeir eru næstum alveg á hlið miðað við þá fremstu. Æ, þetta er ýkt ruglingslegt...farið bara í smá rúnt og tékkið á þessu ;-) Og ef þið sjáið glæpamann í felum á bak við skakkan bíl vinsamlegast keyrið á hann.
Ég átti mjög notalega hádegisstund með Sævari mínum í dag, við fórum á Serrano í Kringlunni og átum á okkur gat og töluðum og töluðum og sungum smá, eða reyndar bara ég því Sævar kann ekki við að syngja á Stjörnutorginu. Mjög skemmtilegt. Sérstaklega þó þegar ég sagði honum að Fígaró-arían hans yrði flutt á íslensku í óperunni í vor. Hann er búinn að eyða endalausum tíma í að læra þennan tað-texta á ítölsku híhíhí.
Svonasvona, þið vitið alveg hvaða aríu ég er að tala um, my musically challenged friends: Fígaró,fígaró,fígaró,fígaró....osv.
Ef svo vel skildi vilja til að einhverjar þeirra kvenna sem stunda líkamsrækt í hálf-gegnsæjum gammósíum lesi þetta vil ég koma eftirfarandi skilaboðum til þeirra:
Verið í nærbuxum.

mánudagur, nóvember 10, 2003

Ég verð að segja eitt í sambandi við tónleikana í gær. Þetta voru tónlistarnemar á aldrinum 16-25 ára frá ýmsum tónlistarskólum og allir voða klárir og duglegir að spila og syngja. Það var bara eitt sem truflaði mig (og fleiri) að ótrúlega margir, örugglega um helmingur, þeirra sem fram komu voru í hversdagsfötum. Gallabuxum, strigaskóm, íþróttagalla... semsagt bara hversdagsfötum. Ok, allt í lagi að hafa það gott og vera slakur og allt það en hvað varð um virðingu fyrir tónlistinni? Og skítt með virðingu fyrir tónlistinni, hvað með virðingu fyrir áheyrendum sem eru fyrst og síðast áhorfendur á svona samkomum? Ég er ekki að segja að allir þurfi að vera í rauðum silkikjólum en kannski allt í lagi að fara úr ég-er-heima-að-slaka-á-með-familíunni-fötunum og bregða sér í aðeins penni, allavega hrein föt... Ég bið ekki um meira.
Jájá, ég var sem sagt að syngja á Unglistar-tónleikum í gær með honum Elmari. Það gekk nú bara nokkuð vel þrátt fyrir nett kast stuttu fyrir tónleikana. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég ætlaði að vera í 7.stigstónleikakjólnum mínum sem er voðalega fagurraður og flottur. Kjóllin var bara ekki alveg eins flottur á mér og hann var í maí...ég var bara eiginlega svolítið mikið eins og eldrauð rúllupylsa í honum. Jakk! Svo ég tók eitt gott dívu-flipp og allt var glatað og ömurlegt. Ég átti ekki einu sinni kærasta til að segja mér að ég hvað ég er sæt og fín og bladibla. Að lokum fór ég svo í annan kjól og var bara ótrúlega fín og sæt á tónleikunum, en það stóð tæpt um tíma...
Það má taka fram að í dag hef ég drukkið þyngd mína af vatni, bara borðað kotasælu og papriku og var ofvirk í combat-tíma ;-)
O dear... Það er svo fáránlega mikið að gera hjá mér að það er barasta hætt að vera fyndið. Ég er alveg í skít upp að hnjám þessa dagana...og þó það sé hlýtt er það skammgóður vermir.
Og þrátt fyrir þetta verkefnaflóð frá snillingunum sem sjá um kúrsana sem ég er í í HÍ (mjög skemmtilegt að setja svona 6 stórar ritgerðir á tvær vikur) lærði ég ekkert um helgina. Já, ég tek sko líka andköf þegar ég hugsa um það! En það er af því að helgin mín var svona:
Föstudagur: Mígreni.
Laugardagur: Æfing fyrir jólatónleika kl.11, vinna 12-17:30, æfing fyrir Unglist 18:30-20
Sunnudagur: Generalæfing fyrir Unglist 10:30-12:00, Æfing fyrir messu 13:00, messa til minningar um þá sem látist hafa á árinu 14:00-15:30, upphitun fyrir Unglist 19:00 og Unglist 20:00
Og í þessum litlu pásum sem ég fékk á milli þess að vera að þenja raddböndin eða láta lumbra á mér var ég bara ekki að fara að læra, því miður.
Það er sko ekkert letilíf að vera latur :-)

sunnudagur, nóvember 02, 2003

Jæja jæja, þá er Jói spói farinn aftur til Skotalands og þá get ég bloggað á ný! Mikið búið að gerast síðan ég skrifaði síðast, meðal annars erum við skötuhjú búin að skoða tvær íbúðir... andköf.... vá hvað mér finnst ég fullorðinsleg núna. En við ætlum ekki að flytja strax svo ég get verið spoiled brat á hótel mömmu aðeins lengur. Öxlin er komin í lag og ég er komin með þvílík combat-fráhvarfseinkenni en ég var að líta yfir vikuna næstu og sýnist ég ekki hafa nienn einasta tíma til að fara og slást smá! Ömurlegt. Annars bara brjolet að gera og enginn tími til að gera neitt skemmtilegt svo ég er bara farin að hlakka til jólanna. Ég sé mig í anda að baka piparkökur og marsípankúlur, þrívíddarkort og hekla litla engla til að hengja í gluggana... En ætli það verði ekki bara piparkökur úr Bónus og gjafirnar keyptar á Select rétt fyrir klukkan 6 á aðfangadag???