föstudagur, nóvember 26, 2004
Ef allt gengur að óskum í erlendisferðinni og í framhaldi af henni mun ég verða umsjónarmaður í Vesturhlíð eftir áramót!!! Húrra fyrir mér!!! Reyndar 100% vinna en hvað er smá tímaskortur á milli vina? Fínt í CV-ið... Eini gallinn er að þá verð ég yfirmaður Mannbarnsins aka Unglingsins í skóginum aka Ég er nú meira helvítis fyllisvínið aka Ég hef ekki bragðað dropa síðan ;-)
Finalmente
Loksins, loksins er ferðalagið komið á hreint! Og ekki mínútu of snemma, þar sem ég fer af stað á morgun... Hinir háu skosku herrar drulluðust loks til að gefa mér dagsetningu í gær og það kollvarpaði öllum fyrri plönum. Nú fer ég tvisvar út í stað þess að fara einu sinni og vera lengi lengi. Það er ódýrara heldur en að hanga í heila viku á hóteli í London og gera ekkert nema versla og éta. Hins vegar veldur það því að ég missi af jólatónleikunum sem ég er búin að æfa mig þvílíkt fyrir og ég þarf að fara í sjúkrapróf í ítölskunni. Þegar ég kem heim eru svo tveir dagar í óperusögupróf og við skulum biðja til þrumuguðarins Þórs að ítölskuprófið verði ekki á sama degi. En hvern er ég að plata? Þetta er ég... auðvitað verður það á sama degi! En ég semsagt fer út á morgun og kem heim á þriðjudag, fer svo aftur út á mánudag og kem heim á sunnudag. Facile, vero?

þriðjudagur, nóvember 23, 2004
Memory Lane
Eftir síðasta Idol-þátt hef ég heldur betur verið að rifja upp liðnar stundir. Þar var nefnilega fyrsti 'alvöru' kærastinn minn að keppa. Hann stóð sig nú ágætlega svosem en gelgjustælarnir hans hafa vakið mikla athygli, það er ótrúlegasta fólk að tala um þá! Gaman að sjá fólk breytast svona mikið að utan en lítið að innan, alveg sömu taktarnir hjá honum og í den. Hann hefur nú samt alltaf sungið vel pilturinn, enda hefur hann fengið næga æfingu... Við vorum að dúlla okkur eitthvað í nokkra mánuði minnir mig (8 ár síðan sko, maður getur ekki haft þetta allt á hreinu) og okkar fundir fóru yfirleitt þannig að fram að við sátum í herberginu hans og hann spilaði á gítar og söng á meðan ég hlustaði mis-áhugasöm á. Svo kysstumst við og héldumst í hendur, ótrúlega sætt... og svo benti hann mér á alla gallana mína -ég man það sko ennþá! Anna...þú ert með skakkan munn! Anna...þú ert með samvaxnar augabrúnir! Anna...þú ert með stórt nef! Anna...þú ert með bumbu! Það sem maður lét bjóða sér þegar maður var ungur og vitlaus!!! Og eins og glöggir áhorfendur hafa tekið eftir var þetta enginn Arnar Grant sem var að gagnrýna mig ;-) En hann er góður strákur, maður lifir og lærir (vonandi). Og mér skilst að hann eigi bæði ísskáp og konu í dag svo það er enginn skaði skeður.

Nýja klippingin mín, fín eins og hún nú var í gær, er ekki eins fín þegar ég stíg fram úr rekkjunni. Þá lít ég út eins og gellan sem dömpaði Adam Sandler í Wedding Singer...hét hún ekki Linda? Allavega, ég var alveg eins og hún í morgun... stutt yfir hausinn og sítt að aftan. Bjúhútífúl :-P
Það var ein svo hrikalega illa lyktandi gella í kombattinu í gær að orð fá því ekki lýst. Ég hélt niðri í mér andanum allan tímann því hún stóð beint fyrir aftan mig. Ógeðslegt! Ég skil ekki einu sinni hvernig er hægt að vera svona illa lyktandi. Ekki nema maður fari í ræktina, hengi fötin upp til þerris og skelli sér svo bara í þau aftur... Oj Oj Oj! Það á að senda svona fólk heim úr ræktinni! Og banna því að koma aftur fyrr en það hefur lært grundvallaratriði hreinlætis.
Ég fór að sjá Bridget Jones í gær. Sæt og skemmtileg eins og ég átti von á, með flottri tónlist. Hinsvegar olli hún því einhverra hluta vegna að rúmið mitt var óvenju stórt í nótt. Það var svo orðið eðlilegt aftur í morgun... ekkert smá dularfullt!
mánudagur, nóvember 22, 2004
Ég var að fatta það í dag að ég er bráðum búin að vera á lausu í ár. Mikið er tíminn fljótur að líða!
Og áfram heldur eyðslan eins og ekkert hafi í skorist. Fór í klippingu og lit í morgun, enda ekki hægt að mæta til stórborgarinnar eins og ég veit ekki hvað um hárið. Sé alveg fyrir mér prófdómarana... Yes Mildred, I agree, she did have the most wonderful voice! But did you see that hair of hers? It is absolutely unthinkable for us to take in a student with such a ghastly hairdo ... Þannig að mín bara skellti sér í dú í morgun og það kostar, eins og allar vel faxaðar konur vita, bara næstum því heilan handlegg. Svo varð ég að bæta um betur og kaupa mér eitthvað til að vera í inntökuprófunum! Ekki of fínt, ekki of kasúal...þetta var ekkert grín! En tókst á endanum, thank god. Fann þetta líka ótrúlega fallega pils í nýju uppáhaldsbúðinni minni; Companys. Það var reyndar í dýrari kantinum en alveg þess virði. Svo skemmdi ekkert fyrir að það er númer 36!!! Eitthvað brengluð númer greinilega en mér er alveg sama, ég á flík númer 36 liggaliggalái ;-)
laugardagur, nóvember 20, 2004
Áfram held ég með málfræðipistlana mína. Það er þó skömminni skárra að ég geri það hér en í Velvakanda, er það ekki? Það var semsagt að koma út bók fyrir foreldra. Hún fjallar um það hvernig á að setja börnum mörk og hvað agi er miklivægur í uppeldi og bladibla. Hún er auðvitað þýdd af einhverjum svaðalegum fræðingum og allt voða fínt og flott. Hvað haldiði svo að bókin heiti? Hvað mikið er nóg? HALLÓ???
Í dag upplifði ég dýrasta hálftíma lífs míns. 17 þúsund krónur borgaði ég fyrir hann! Takk fyrir pent. Og það er nú ekki eins og ég sé einhver Björgúlfína sem syndi í seðlum...ó nei! En þetta er svona, það er ekki fyrir fátæklinga að gaula. Og nota bene þá notaði ég minn fáránlega overprised hálftíma til að læra að syngja eins og ómenntuð söngkona. Búin að læra klassískan söng í hundrað ár og eyði svo morðfjár í að læra að syngja eins og ég gerði í fyrsta tímanum mínum! Já, svona er ég skrýtin :-)
fimmtudagur, nóvember 18, 2004
Í gær sat ég í Ými í gati á milli tíma. Taka þá ekki að streyma inn ungir menn í röðum... Og ekki bara ungir menn. Ó nei! Ungir, myndarlegir og stæltir menn! I lange baner. Og ég átti að vísa þeim öllum upp. Eftir miklar pælingar komst ég að því að þetta voru meðlimir Lögreglukórsins. Ekki minnkaði gleði mín við það, hitt þó heldur! Þessi ungu, stæltu menn eiga semsagt allir einkennisbúninga... Nú var heldur betur kátt í höllinni/Ými! Reyndar voru þeir ekki mikið fyrir eyrun greyin en þeim mun meira fyrir augun svo ég fyrirgaf þeim raddleysið. Mér heyrðist þó sérstaklega vera eitt stórt vandamál hjá þeim. Það vantaði augljóslega ljóshærðan skakkbrosaðan sópran í hópinn ;-)
þriðjudagur, nóvember 16, 2004
Mér líður núna eins og örugglega mörgum bílstjórum leið í dag. Á slitnum sumardekkjum á stjórnlitlum bíl að bíða í endalausri umferðarteppu og snjósköflum... Veit ekki hvort ég kemst heil á leiðarenda en ég vona það besta :-)
mánudagur, nóvember 15, 2004
Það er bara allt vitlaust út af útrásinni sem ég fékk hér í fyrradag! Bara kreisí in ðö kókónött!! Það virðast hér um bil allar mannverur sem ég þekki með Y litning hafa tekið þessu persónulega. En er það ekki einmitt bara til að staðfesta það sem ég sagði? Þið eruð að eigin mati allir svo æðislegir að ykkur dettur ekki til hugar að ég myndi eyða tíma í að skrifa um neinn annan! Bara fyndið :-)
En nóg um lúðana í lífi lestrarhestsins. Ég hef ákveðið að eyða 20þúsund krónum í masterklass næstu helgi. It better be good. En ég meina, fyrst ég er að fjárfesta í pínulitlum vöðvum í hálsinum á mér hvort eð er er alveg jafn gott að gera það almennilega, right? Ég verð líka svo rík eftir jólin, en pæling Styrktarfélagsins er að láta okkur vinna 17-21 á aðfangadag, 10-19 á jóladag og 11-20 á annan í jólum!!! Á skalanum 1-10 er það um það bil 278 ömurlegt!!! Ég fór næstum því að gráta þegar mér var sagt þetta. Fimm til níu á aðfangadag... það eru bara jólin sjálf! Allir að flýta sér í sturtuna, messan, sósugerðin, borða matinn og taka upp pakkana. Ég byrja þá að vinna áður en það hefst og kem heim þegar mamma og Eva liggja nær dauða en lífi eftir ofát í sófanum, búnar að opna pakkana og farnar að spila möndlugjöfina! Og jóladagur, náttfatadagur Mávahlíðarmæðgnanna; þá drekkum við kakó og borðum bollur, leikum okkur með jólagjafirnar og lesum, horfum á Home Alone 17 og höfum það kósí þar til við þurfum að dressa okkur upp fyrir jólaboð. Annar í jólum er svo með svipuðu sniði. Einfalt en æðislegt og mig langar ekkert til að missa af því! Glatað. Glatað. Glatað.

laugardagur, nóvember 13, 2004
Hvað er málið strákar???
Nú get ég ekki lengur orða bundist. Í of mörg ár hef ég bitið í tunguna á mér og ekki sagt orð. Hingað og ekki lengra! Hvað er málið með það að strákum finnist þeir alltaf vera æðislega sætir? Grínlaust. Ég hef nú kynnst allnokkrum strákum í gegnum tíðina og mér finnst þetta bara vera gegnumgangandi hjá þeim. Þeir geta verið sköllóttir, bólugrafnir, of loðnir, feitir, með undarlega bletti, stór nef, stærri brjóst en ég, mjóir, hjólbeinóttir, skakklappaðir, með hár í eyrunum eða allt þetta í einum stórkostlegum pakka en þeim finnst þeir samt frábærir. Þeir eru þess fullvissir að þeir séu Gods gift to women og að þeir þurfi ekkert að bæta sig útlitslega. Ég þekki grínlaust einn strák sem ég veit að hefur einhverja útlitskomplexa og það er sætasti strákurinn sem ég þekki! Kannski fela þeir þetta svona vel, en ég held samt ekki. Þeir haga sér á allan hátt eins og þeir séu það kynþokkafyllsta sem gengið hefur á jörðinni.
Á sama tíma eru stelpur alveg í hinum öfgunum. Það má ekki eitt atriði vera 'ófullkomið' þá eru stelpur með það á heilanum og hugsa ekki um neitt annað. Ég hef aldrei hitt stelpu sem er fullkomlega ánægð með útlit sitt, samt þekki ég ótrúlega margar fallegar stelpur :-) Stelpur missa sig í skyr.is-át og brennslupælingar á meðan strákarnir sitja á McD og hafa það kósí. Ég reyndar verð að viðurkenna að ég þekki ekki marga líkamsræktardúdda, kannski eru þeir líkari stelpunum. Ég þekki hins vegar mjög marga meðal-menn í útliti... enga Brad Pitt en enga Hringjara... en þeim finnst þeir vera ÆÐI!!! Við erum að tala um það að mánuðum eftir smá fling eru þeir að hringja/smsa um helgar og halda í alvöru að ég sé himinlifandi yfir því að þeir bjóði mér bólfarir! Eins og ég hafi ekki gert annað mánuðina þar á undan en að sitja við símann og bíða eftir þessu ómótstæðilega tilboði. Af því að auk þess að halda að þeir séu endalaust flottir þá halda þeir líka að þeir séu vaxnir niður eins og hestar og frábærir í rúminu. Puh-lease strákar!
Ok. Það er orðið nokkuð ljóst að ég þekki ekki mjög gæfulega unga menn. Ég vil þó geta þess að engir þeirra ungu manna sem ég hef lagt lag mitt við í lengri tíma en 6 mánuði hagar sér svona. Ég hef nú þrátt fyrir allt betri smekk en svo ;-) Hvernig væri bara að finna meðalveg... toga strákana aðeins niður á jörðina og leyfa stelpunum að sjá sig í örlítið jákvæðara ljósi?

miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Ég varð alveg rugluð þegar ég sá Moggann í morgun og þurfti að hugsa mig vel um. Bíddu...er afmælisdagurinn minn kominn? Strax? Er ég orðin 25 ára og náði ekki einu sinni að fara í smá elli-krísu yfir því? Og hvar í andskotanum eru þá gjafirnar mínar???
En svo náði ég að sjá ljósið í gegnum morgunþokuna og áttaði mig á því að það er ekki kominn 1.apríl. Það er í alvörunni verið að búa til BirgittuHaukdal-dúkkur.

þriðjudagur, nóvember 09, 2004
Ég lifði vinnuna í dag af -júhú!!! Og það eru komnar tvær dagsetningar frá UK, 29.11. og 8.12.. Nú er bara að vona að hinar tvær lendi þar á milli, ég nenni sko ekki að vera lengur en tíu daga. Og get það eiginlega ekkert því það eru jólatónleikar og jólapróf og jólagleði sem ég má ekki missa af! Væri reyndar alveg til í að missa óvart af jólaprófunum og fá bara metna mætingu eða eitthvað... ekki svo vitlaust... En ég verð nú varla svo heppin :(
mánudagur, nóvember 08, 2004
Upp er runninn mánudagur og ný vika hefur rennt úr hlaði. Í tilefni þess hef ég ákveðið að hætta að gráta faglega sjálfsmorðið sem ég framdi um helgina og láta eins og ekkert hafi í skorist. Enda ekkert sem ég get gert í því núna hvort eð er ;-) Eða eins og vinir mínir í Hálsaskógi myndu segja: Gert er gert og borðað það sem borðað er!!!
laugardagur, nóvember 06, 2004
OMG !!! WHAT A SCANDAL !!!
Það kom loksins að því. Ég er búin að skandalisera. Eftir 24 ár af því að gera mistök mín fjarri sjónum almennings og geta þannig stjórnað því (að einhverju leyti) hverjir frétta af þeim er gríninu lokið. Það er hér með orðið opinbert að ég er ekki alveg í lagi og að ég ætti að hætta að drekka brennivín. Skandall Skandall Skandall. Veit ekki hvort ég ætla í vinnuna eftir helgi, kannski ég ætti bara að finna mér nýja vinnu. Á Eskifirði. Og hætta að drekka. Definetely hætta að drekka. Það er að segja eftir kvöldið í kvöld, augljóslega. Ef þið sjáið mig á rökklinu í nótt skulið þið forða ykkur. Þið viljið ekki láta bendla nafn ykkar við mitt.

fimmtudagur, nóvember 04, 2004
Kreisí Keins
Aumingja kanarnir. Þeim er nú ekki viðbjargandi. Ég sem var alveg viss um að Bush yrði jarðaður. Annars er ég alveg hundfúl yfir því að hafa ekki fengið að kjósa í gær. Mér finnst að allur heimurinn ætti að fá að kjósa BNAforseta því í rauninni er sá gaur forseti heimsins. Hann ræður alveg fáránlega miklu maðurinn. Það ætti ekki að vera svo mikið mál að redda einni heimskosningu. Til dæmis í World Idol, þar fékk heimurinn að velja sér sitt Idol, af hverju má heimurinn þá ekki kjósa sér forseta?
Stuttu síðar sama dag horfði ég á Opruh vinkonu mína gefa öllum í salnum sínum bíl (og í leiðinni sagði hún mér hver vinnur America's next top model...beljan). Það sannfærði mig endanlega um að Kanar eru klikk og við erum í vondum málum tralalalalaaa!

miðvikudagur, nóvember 03, 2004
Ég kom heim úr skólanum rúmlega 8 í gær og hlammaði mér í íðilfagra fjölskyldusófann til að horfa á Kvíræ. En það var bara ekkert kvíræ!!! Hrgmf. Reyndar verð ég að segja að nýlega hefur mér fundist þátturinn lélegri en áður. Áður voru ljótir gæjar teknir fyrir og í ljós kom að undir hári og skeggi og drullu leyndist litli bróðir Brad Pitts...Chad Pitt. En nú eru gæjarnir teknir fyrir og eru ennþá ljótir! Reyndar með betra hár og í flottari fötum og eiga flottari íbúðir en samt ennþá ljótir. Það gengur ekki að einu myndarlegu gæjarnir í þessum þáttum séu kvírarnir! Það er bara illa gert og til þess eins að gera að engu bjartsýni og draumsýnir gagnkynhneigðra stúlkna.
þriðjudagur, nóvember 02, 2004
Nú er mikið verið að auglýsa eitthvað fitness-mót hér og þar. Voða spennandi úrslitakvöld þar sem hart verður barist og allt það, gott og blessað. Athygli mína vakti hins vegar eftirfarandi setning: Hljómsveitin Papar spila og syngja af sinni alkunnu snilld. Hmmm... Spurning um að þjálfa bicepinn aðeins minna og heilann aðeins meira...
mánudagur, nóvember 01, 2004
AsnaLondonfólkið bætti óvænt við tveimur lögum á fyrirsöngslistann minn svo nú er ég að reyna að læra textana utanað. Annar þeirra er reyndar svolítið kúl. Hann er í stuttu og einfölduðu máli svona:
Ef þú elskar mig og andar bara fyrir mig mun ég finna til þegar þú kvelst og gleðjast vegna ástar þinnar. En ef þú heldur að það þýði að ég brosi bara til þín þá ertu ansi auðtrúa ungi smaladrengur! Því fallegustu rós getur verið kastað út vegna þyrna sinna á morgun og þótt mér finnist fjólan falleg þýðir það ekki að ég hendi út öllum öðrum blómum!
Táknrænt? Ég veit ekki... En þeim söngnemanda sem þekkir stykkið bjóðast vegleg verðlaun!
ps. No more comments! Víha

Ég á við geðræn vandamál að stríða
Ég fékk mér 20 mínútna gönguferð í BH í grenjandi rigningu og ógeði áðan. Til þess eins að mæta í frekar off combat-tíma, fara í verstu sturtu á Íslandi og labba svo aftur heim í enn meiri rigningu og ógeði. Þetta gerði ég af fúsum og frjálum vilja og þar af leiðandi lýsi ég yfir neyðarástandi í hausnum á mér. Ef það les þetta einhver bið ég um hjálp... I need a life please!