miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Ég varð alveg rugluð þegar ég sá Moggann í morgun og þurfti að hugsa mig vel um. Bíddu...er afmælisdagurinn minn kominn? Strax? Er ég orðin 25 ára og náði ekki einu sinni að fara í smá elli-krísu yfir því? Og hvar í andskotanum eru þá gjafirnar mínar???

En svo náði ég að sjá ljósið í gegnum morgunþokuna og áttaði mig á því að það er ekki kominn 1.apríl. Það er í alvörunni verið að búa til BirgittuHaukdal-dúkkur.