þriðjudagur, nóvember 02, 2004

Nú er mikið verið að auglýsa eitthvað fitness-mót hér og þar. Voða spennandi úrslitakvöld þar sem hart verður barist og allt það, gott og blessað. Athygli mína vakti hins vegar eftirfarandi setning: Hljómsveitin Papar spila og syngja af sinni alkunnu snilld. Hmmm... Spurning um að þjálfa bicepinn aðeins minna og heilann aðeins meira...