laugardagur, nóvember 06, 2004

OMG !!! WHAT A SCANDAL !!!

Það kom loksins að því. Ég er búin að skandalisera. Eftir 24 ár af því að gera mistök mín fjarri sjónum almennings og geta þannig stjórnað því (að einhverju leyti) hverjir frétta af þeim er gríninu lokið. Það er hér með orðið opinbert að ég er ekki alveg í lagi og að ég ætti að hætta að drekka brennivín. Skandall Skandall Skandall. Veit ekki hvort ég ætla í vinnuna eftir helgi, kannski ég ætti bara að finna mér nýja vinnu. Á Eskifirði. Og hætta að drekka. Definetely hætta að drekka. Það er að segja eftir kvöldið í kvöld, augljóslega. Ef þið sjáið mig á rökklinu í nótt skulið þið forða ykkur. Þið viljið ekki láta bendla nafn ykkar við mitt.