laugardagur, nóvember 20, 2004

Áfram held ég með málfræðipistlana mína. Það er þó skömminni skárra að ég geri það hér en í Velvakanda, er það ekki? Það var semsagt að koma út bók fyrir foreldra. Hún fjallar um það hvernig á að setja börnum mörk og hvað agi er miklivægur í uppeldi og bladibla. Hún er auðvitað þýdd af einhverjum svaðalegum fræðingum og allt voða fínt og flott. Hvað haldiði svo að bókin heiti? Hvað mikið er nóg? HALLÓ???