Það er bara allt vitlaust út af útrásinni sem ég fékk hér í fyrradag! Bara kreisí in ðö kókónött!! Það virðast hér um bil allar mannverur sem ég þekki með Y litning hafa tekið þessu persónulega. En er það ekki einmitt bara til að staðfesta það sem ég sagði? Þið eruð að eigin mati allir svo æðislegir að ykkur dettur ekki til hugar að ég myndi eyða tíma í að skrifa um neinn annan! Bara fyndið :-)
En nóg um lúðana í lífi lestrarhestsins. Ég hef ákveðið að eyða 20þúsund krónum í masterklass næstu helgi. It better be good. En ég meina, fyrst ég er að fjárfesta í pínulitlum vöðvum í hálsinum á mér hvort eð er er alveg jafn gott að gera það almennilega, right? Ég verð líka svo rík eftir jólin, en pæling Styrktarfélagsins er að láta okkur vinna 17-21 á aðfangadag, 10-19 á jóladag og 11-20 á annan í jólum!!! Á skalanum 1-10 er það um það bil 278 ömurlegt!!! Ég fór næstum því að gráta þegar mér var sagt þetta. Fimm til níu á aðfangadag... það eru bara jólin sjálf! Allir að flýta sér í sturtuna, messan, sósugerðin, borða matinn og taka upp pakkana. Ég byrja þá að vinna áður en það hefst og kem heim þegar mamma og Eva liggja nær dauða en lífi eftir ofát í sófanum, búnar að opna pakkana og farnar að spila möndlugjöfina! Og jóladagur, náttfatadagur Mávahlíðarmæðgnanna; þá drekkum við kakó og borðum bollur, leikum okkur með jólagjafirnar og lesum, horfum á Home Alone 17 og höfum það kósí þar til við þurfum að dressa okkur upp fyrir jólaboð. Annar í jólum er svo með svipuðu sniði. Einfalt en æðislegt og mig langar ekkert til að missa af því! Glatað. Glatað. Glatað.

<< Home