laugardagur, nóvember 13, 2004

Hvað er málið strákar???

Nú get ég ekki lengur orða bundist. Í of mörg ár hef ég bitið í tunguna á mér og ekki sagt orð. Hingað og ekki lengra! Hvað er málið með það að strákum finnist þeir alltaf vera æðislega sætir? Grínlaust. Ég hef nú kynnst allnokkrum strákum í gegnum tíðina og mér finnst þetta bara vera gegnumgangandi hjá þeim. Þeir geta verið sköllóttir, bólugrafnir, of loðnir, feitir, með undarlega bletti, stór nef, stærri brjóst en ég, mjóir, hjólbeinóttir, skakklappaðir, með hár í eyrunum eða allt þetta í einum stórkostlegum pakka en þeim finnst þeir samt frábærir. Þeir eru þess fullvissir að þeir séu Gods gift to women og að þeir þurfi ekkert að bæta sig útlitslega. Ég þekki grínlaust einn strák sem ég veit að hefur einhverja útlitskomplexa og það er sætasti strákurinn sem ég þekki! Kannski fela þeir þetta svona vel, en ég held samt ekki. Þeir haga sér á allan hátt eins og þeir séu það kynþokkafyllsta sem gengið hefur á jörðinni.

Á sama tíma eru stelpur alveg í hinum öfgunum. Það má ekki eitt atriði vera 'ófullkomið' þá eru stelpur með það á heilanum og hugsa ekki um neitt annað. Ég hef aldrei hitt stelpu sem er fullkomlega ánægð með útlit sitt, samt þekki ég ótrúlega margar fallegar stelpur :-) Stelpur missa sig í skyr.is-át og brennslupælingar á meðan strákarnir sitja á McD og hafa það kósí. Ég reyndar verð að viðurkenna að ég þekki ekki marga líkamsræktardúdda, kannski eru þeir líkari stelpunum. Ég þekki hins vegar mjög marga meðal-menn í útliti... enga Brad Pitt en enga Hringjara... en þeim finnst þeir vera ÆÐI!!! Við erum að tala um það að mánuðum eftir smá fling eru þeir að hringja/smsa um helgar og halda í alvöru að ég sé himinlifandi yfir því að þeir bjóði mér bólfarir! Eins og ég hafi ekki gert annað mánuðina þar á undan en að sitja við símann og bíða eftir þessu ómótstæðilega tilboði. Af því að auk þess að halda að þeir séu endalaust flottir þá halda þeir líka að þeir séu vaxnir niður eins og hestar og frábærir í rúminu. Puh-lease strákar!

Ok. Það er orðið nokkuð ljóst að ég þekki ekki mjög gæfulega unga menn. Ég vil þó geta þess að engir þeirra ungu manna sem ég hef lagt lag mitt við í lengri tíma en 6 mánuði hagar sér svona. Ég hef nú þrátt fyrir allt betri smekk en svo ;-) Hvernig væri bara að finna meðalveg... toga strákana aðeins niður á jörðina og leyfa stelpunum að sjá sig í örlítið jákvæðara ljósi?