fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Í gær sat ég í Ými í gati á milli tíma. Taka þá ekki að streyma inn ungir menn í röðum... Og ekki bara ungir menn. Ó nei! Ungir, myndarlegir og stæltir menn! I lange baner. Og ég átti að vísa þeim öllum upp. Eftir miklar pælingar komst ég að því að þetta voru meðlimir Lögreglukórsins. Ekki minnkaði gleði mín við það, hitt þó heldur! Þessi ungu, stæltu menn eiga semsagt allir einkennisbúninga... Nú var heldur betur kátt í höllinni/Ými! Reyndar voru þeir ekki mikið fyrir eyrun greyin en þeim mun meira fyrir augun svo ég fyrirgaf þeim raddleysið. Mér heyrðist þó sérstaklega vera eitt stórt vandamál hjá þeim. Það vantaði augljóslega ljóshærðan skakkbrosaðan sópran í hópinn ;-)