sunnudagur, október 31, 2004

Þvílík helgi! Við opnuðum Selið með pompi og prakt í gær og nú er fyrstu starfshelgi þess formlega lokið. Selið er skammtímavistun fyrir 2 einhverfar orkubombur (2 autistic energybombs) og þar vinna 3 hrikalegar kynbombur (3 terrible sexbombs), þar á meðal ég. Ég er algjörlega búin með batteríin eftir þessa ofur-helgi og trúi því varla að það sé heil vika framundan... Það eina sem gerði þessa löngu erfiðu daga bærilega er að ég er að vinna með frábærum strákum. Jú og svo eru launin ágæt. En sveiattan hvað ég er þreytt! Ég held ég fari bara í bólið, góða nótt.

miðvikudagur, október 27, 2004

Hafið þið séð jafn fallega síðu? O, ég er svo montin :-) En hins vegar eru allir tenglarnir mínir dottnir út! Og það er komið kommentakerfi, hvað er málið með það? Ég kæri mig ekkert um slíkt kerfi, ég vil að það láti sig hverfa.

þriðjudagur, október 26, 2004

Burtséð frá því að strippa gerði ég annars lítið um helgina, vinnan og ræktin voru í aðalhlutverki. Kíkti reyndar í afmæli á laugardagskvöldið en þar sem ég var edrú telst það ekki með ;-) Nú er ég hins vegar þvílíkt menningarleg að panta mér miða á Sinfóníutónleika á fimmtudaginn. Þá kemur í ljós hvort ég hef meira sjálfstraust ein í hléi en fyrir 3 árum síðan þegar ég fór ein í óperuna í Köben og fannst svo hrikalega asnalegt að vera ein í hléinu. Því kom ég mér fyrir þannig að ég stóð beint á móti veitingasölunni og teygði mig upp og skimaði allt hléið, eins og ég væri að bíða eftir einhverjum sem var að kaupa kók. Leit svo reglulega óþolinmóð á klukkuna og hristi hausinn, pirruð yfir því hvað ósýnilegi vinurinn minn var lengi að þessu. Og ég er þess fullviss, enn þann dag í dag, að enginn hafi áttað sig á því að ég átti þarna stjörnuleik!
Kæru Árbæingar

Ég vil hér með biðja ykkur formlega afsökunar á sjónmengun þeirri sem þið hafið mögulega orðið vör við í hverfinu ykkar í fyrradag. Sjónmengunin lýsti sér sem hálfnakinn kvenmaður á hlaupum um hverfið. Þessi kvenmaður var ég og vil ég nota þetta tækifæri til að skýra hegðun mína um leið og ég þakka ykkur hjartanlega fyrir að hafa ekki hringt á lögregluna.
Þetta hvimleiða atvik vildi þannig til að ég var stödd í heitum potti við hús í Árbænum, í bikiníi sem ég fékk að láni frá vinnuveitanda mínum. Það var í stærra lagi en vel nothæft til að sitja í og slaka á. Eftir að hafa setið í pottinum stutta stund ákvað sessunautur minn, sem var kviknakinn, að fá sér smá skokk-túr um hverfið. Þar sem þessum hlaupaglaða félaga mínum er ekki óhætt í umferðinni varð ég að hlaupa á eftir honum. Því miður gafst mér ekki tími til að klæða mig í viðeigandi hlaupafatnað, heldur varð ég að taka af stað í stóra bikiníinu. Eins og þið hafið vafalaust séð á sunnudaginn voru þetta engin Baywatch-hlaup, því öfugt við þau hlaup hristist hjá mér allt nema brjóstin. Til allrar lukku stóð þetta fáklædda skemmtiskokk ekki lengi en enn og aftur þakka ég ykkur fyrir umburðarlyndið og ég vona að ykkur hafi ekki orðið meint af.

Með kærri kveðju, Goggur

föstudagur, október 22, 2004

Ok kannski er ég eitthvað að misskilja. Ég er auðvitað ekki löglærð kona og því getur vel verið að ég sé ekki að lesa rétt út úr málinu. Ég vona eiginlega innilega að ég sé að misskilja.
Getur það mögulega verið rétt skilið hjá mér að refsingu manns, sem dæmdur er fyrir líkamsárás, sé frestað af því að fórnarlambið olli reiði hans? Fórnarlambið gaf í skyn að hún væri að halda framhjá gerandanum og þá er bara allt í lagi að hann berji hana? Og af því að sambúðin hefur alltaf verið stormasöm átti hún bara að sleppa því að valda bræði mannsins. Auðvitað. Hún getur augljóslega bara sjálfri sér um kennt, hvað er hún að pæla að reita manninn svona til reiði? Hún á að sjálfsögðu bara að halda kjafti og láta lítið fyrir sér fara. Vera svo bara þakklát fyrir að hafa karlmann í lífi sínu til að stóla á. Það er að segja þegar hann er ekki að taka hana hálstaki og tuska hana til.

Þetta er Ísland í dag.

fimmtudagur, október 21, 2004

Fór tvisvar í kombat í gær. Fyrst kl.06.30 og svo tólf tímum síðar. Þess á milli fór ég í skólann og vinnuna og skólann aftur og hljóp svo eins og fætur toguðu í baðhúsið. Til allrar hamingju gat mamma sótt mig þegar ég var búin því þegar ég kom heim gat ég varla hreyft mig fyrir þreytu. Var þreytt frá toppi til táa í orðsins fyllstu merkingu. En mér fannst ég óskaplega dugleg og það hélt mér vakandi fram yfir the L-word. Hversu glatað er það samt að maður sé búinn að koma sér vel fyrir fyrir framan imbann og búinn að hlakka til að sjá módel rífast allan daginn (eða þannig) og svo kemur bara eldgamall þáttur sem er merktur í horninu: Því miður komst þáttur kvöldsins ekki til landsins í tæka tíð. Væri ekki hægt að tilkynna það aðeins fyrr? 5 mínusstig fyrir Skjá einn.

þriðjudagur, október 19, 2004

MEGRUNARRÁÐ GOGGS

Nú er ég alveg komin með nóg af megrunarkúrum sem auglýstir eru hist og her! Hollywood-djús-draslið og South Beach megrunin og ég veit ekki hvað og hvað. Því gef ég ykkur bara ókeypis megrunarráð hér (tekið er við frjálsum framlögum samt sem áður). Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er engin Ally McBeal en hins vegar á ég þessa síðu og get skrifað það sem ég vil!

Sko. Fyrsta ráðið er augljóst. Eina leiðin til að megrast er að borða minna, hollara og hreyfa sig meira. Jájá, þeir sem ætluðu bara að sitja á rassgatinu og drekka djús geta gleymt því.
Annað ráðið er að tyggja hvern munnbita 30 sinnum. Hljómar undarlega en það veldur því að maður einbeitir sér að því að borða og borðar þar af leiðandi minna. Semsagt ekki borða fyrir framan sjónvarpið.
Þriðja ráðið er að borða ekkert eftir klukkan 19. Bara drekka vatn eftir það.
Og voilá!!! Nú verða allir megurri á heilbrigðan hátt.

Vert er að taka það fram að þó ég gefi góð ráð er ekki þar með sagt að ég fari eftir þeim sjálf. Góðar stundir.
Ég er búin að komast að því að því meira sem ég skrifa hér því lengur get ég verið inni. Are you ready for some totally useless information? ;-)

Ég fór á Masterklass í Söngskólanum í Reykjavík í gær og í fyrsta skipti áttaði ég mig á því að þjóðsagan er sönn. Það eru til sérstakar Söngskólaraddir. Ég hef oft heyrt talað um þær en aldrei áttað mig á því áður. Veit ekki hvað það sungu margir sópranar í gær en ef ég hefði haft lokuð augun hefði ég ekki getað sagt til um hvenær var skipt um nemanda á sviðinu. Eina manneskjan sem hafði meiri hljóm var mezzó. Söngskólaraddirnar eru mjög fallegar, ekki misskilja mig... en þær eru ótrúlega líkar og svolítið litlar. Merkilegur andskoti. Þarf að fara að athuga hvort þetta sé svona í mínum skóla.

Vígði nýju gymfötin í gær og er þvílíkt ánægð með skóna! Þökk sé loftpúðum og auknum stuðningi get ég núna hoppað þar sem ég gat áður bara runnið til á gólfinu. Það var sko greinilega kominn tími á endurnýjun. Buxurnar voru ekki eins góðar, ég held að þær sem stóðu fyrir aftan mig hafi séð heldur mikið af nærunum mínum fyrir sinn smekk. En það er nú bara gaman að því ;-)


Ég vil ekki fara út!!!
Það er ískalt og hvasst og ógeðslegt veður og ég harðneita að yfirgefa híbýli mín. Svaf varla í nótt fyrir vindgnauði og það eina sem ég gat hugsað um var dagskrá dagsins i dag: Söngtími-læknir-vinna-ítalska-söngtími. Ef ég þýði þetta yfir á eina málið sem er mikilvægt í dag: Labb-labb-labb-leika úti-labb-labb-labb. Engin þessara vegalengda er nefnilega nógu löng til þess að réttlæta strætóferð. Það er október! Af hverju er kominn vetur strax? Ég er mjög ósátt :(

laugardagur, október 16, 2004

Ég eyddi mánaðarlaununum áðan. Í Útilíf, af öllum búðum. Segir kannski mest um launin mín að ég var ekki að kaupa skíðaútbúnað fyrir 4 heldur keypti ég gym-skó, einar buxur og 2 boli. Leikfimifötin voru nefnilega orðin heldur sorgleg. Ég ákvað að kaupa dýrari skógerð þar sem ég er nú mikið fyrir smá hopp og læti en bakið mitt er ekki alveg á þeirri bylgjulengd. Hugsaði sem svo að það yrði kannski sáttara ef það fengi almennilega loftpúða og glimmerreimar ;-)
Fór einmitt í tíma í SH áðan og get ekki varist þeirri tilfinningu að það vanti kennara á svæðið. Það er allavega augljóst að það eru ekki gerðar miklar hæfniskröfur... En ekki meira nöldur! Sé ykkur á tjúttinu í kvöld, í tilefni þess að ég er pensillínlaus!!!
Kveikti á sjónvarpinu í morgun og datt inn í íslenskukennsluþátt. Hrikalegur þáttur. Ekki nóg með að fólkið þar tali eins og það sé að búa til sjónvarpsefni fyrir seinfæra og geti ekki leikið fyrir sitt litla líf heldur voru villur í þættinum! Það var til dæmis mjög spennandi sena þar sem 'útlendingurinn' (sem var þó meira eins og 'hálfvitinn') var að spyrja einhvern hvaða strætó hann gæti tekið niður í bæ. 'Sko við getum tekið númer f-j-ö-g-u-r eða númer s-j-ö eða númer e-l-l-e-f-u'. Næsta sena er svo þegar útlendingurinn hoppar útúr strætó númer 5!!! Hvers eiga aumingja icelandically-challenged einstaklingarnir að gjalda?

þriðjudagur, október 12, 2004

Nú er ég flott dömur mínar og herrar! Var það náttúrulega áður en nú er það alvöru... Fékk góm í dag sem á að koma í veg fyrir að ég gnísti tönnum en hann er svo hrikalega kúl að ég er að spá í að hafa hann bara alltaf. Hann Villi tannlæknanemi er búinn að sitja sveittur við að laga góminn (sem heitir reyndar bitskinna en það er ekki nógu kúl nafn) að mínum skökku tönnum. Slaka á kjálka-bíta laust saman-gnísta smá-opna og bíða... aftur og aftur og aftur þar til það loksins gekk upp. Nú er ég þvílíkt spennt að sjá hvort hann helst upp í mér í nótt, verst að ég sef ein svo það getur enginn sagt mér hvort ég sé hljóðlátari nú en áður... Líka mjög slæmt að það skuli enginn geta notið þess að sjá mig með góminn, við erum að tala um það að ég er dead sexy með hann upp í mér! Einhverjir sjálfboðaliðar? ;)

mánudagur, október 11, 2004

Vá, þetta var æðisleg helgi! Ég segi og skrifa æðisleg. Æði Æði Æði. Fór út að borða og í leikhús á laugardaginn. Fór loksins að sjá Rómeó og Júlíu og á ekki enn til orð yfir þessa sýningu. Hún er bara stórkostleg, ekkert meira um það að segja. Ég brosti hringinn þegar ég kom út! Svo fór ég í óperuna í gær og sá Sweeney Todd og það var líka frábært. Mögnuð sýning sem kemur verulega á óvart. Og kennarinn minn ber auðvitað af ;)
Þessarri menningarhelgi ákvað ég að fagna í dag með læknisheimsókn sem var ekki alveg eins æðisleg því doksi setti mig í 3 daga stofufangelsi í þeirra von að ná úr mér lungna og kinnholupúkanum. En ég nenni ekki einu sinni að vera fúl yfir því því það þýðir að ég get endurupplifað upplifanir helgarinnar aftur og aftur og aftur og aftur.....

föstudagur, október 08, 2004

Mig dreymdi ekkert smá fyndinn draum í nótt. Ég var stödd í Afganistan með Kvennó-skvísunum og við vorum í einhvers konar útskriftarferð. Þær fóru í dagsferð en einhverra hluta vegna fór ég ekki með. Þegar þær komu til baka voru þær í brjáluðu skapi allar 4 og ætluðu heim strax. Ég náði engu upp úr þeim og skildi ekkert hvað var að gerast, þær bara pökkuðu niður og lögðu af stað. Ég kærði mig ekkert um að vera ein á hótelherberginu okkar eins og illa gerður hlutur svo ég pakkaði dótinu mínu og elti þær. Þegar við komum á lestarstöðina var ég svo komin í kapp við þær og aðalmálið var að ná lestinni á undan þeim. Við vorum sem sagt allt í einu komnar í Amazing Race fíling og það var bara kapphlaup heim. Þvílíkt stress og action en ég veit ekki hver vann því vekjarinn hringdi.
Nú. Minn innri Freudisti fór auðvitað strax að greina drauminn og ég hef komist að eftirfarandi niðurstöðu: Mig dreymir stelpurnar augljóslega af því að ég hugsa mikið til þeirra um þessar mundir. Ekkert dularfullt við það. 3 af 4 skvísanna hafa útskrifast úr sínu námi og eru búnar í bili. Það er ég hins vegar ekki og mér finnst það hálfsúrt stundum. Það gæti útskýrt eltingaleikinn. Þetta með dagsferðina og fýluna gæti alveg eins hafa gerst í raunveruleikanum; við eigum það til ;)
Kæru sjúklingar. Sófinn er til reiðu og ég býð öllum þeim sem eiga við dularfullar draumfarir að stríða að kíkja í heimsókn.

þriðjudagur, október 05, 2004

Ég fór í partý á föstudagskvöldið. Gaman að því. Þar var voða sætur strákur sem ég var aðeins að spjalla við og svona smá how are you doin fílingur í loftinu... Þar til kom í ljós að maðurinn/drengurinn/pilturinn/barnið er fætt 1984! Hvað er að gerast? Síðan hvenær eru strákar yngri en Eva systir sætir? Og hvernig gat þetta farið framhjá hauksfránum augum mínum? Ég er enn í losti yfir þessu.
Það er heilsíðuauglýsing í mogganum í dag fyrir einhvern töfradjús. Þessi töfradjús veldur því að maður getur misst mörg kíló og marga sentimetra á tveimur dögum! Ótrúlegt! Það eina sem þarf að gera er að drekka þennan djús og vatn eingöngu í 48 tíma og þá gerist kraftaverkið! HALLÓ????? Er ekki í lagi? Fyrir það fyrsta vil ég leyfa mér að efast um hollustu þess að fasta í tvo sólarhringa. Og fyrir það annað er það enginn nýr sannleikur að maður léttist við að borða ekki neitt... Það sorglega er að það er örugglega fólk sem stendur nú fyrir utan Hagkaup og bíður eftir að búðin opni svo það geti borgað morðfjár fyrir þennan sannkallaða töfradjús.

föstudagur, október 01, 2004

Svei mér þá, hvílík vika! Sökum endalausra neitana undanþágunefndar kennara hef ég þurft að sækja Klakann minn í skammtímavistunina fyrir klukkan 8 á morgnana, vera með hann til hádegis og keyra hann svo í dagvistunina. Eftir hádegi þarf ég svo að mæta í mína eiginlegu vinnu og skóla. Lærdómur og æfingar hafa eitthvað setið á hakanum, líka útaf því að ég er komin með kvef oní lungu. Kvefið mitt sem ekki vildi fara í heilar 3 vikur er þess vegna loksins komið með verðugan andstæðing...Pensillín!!! Eins gott að mér fari þá að batna, þetta er fáránlegt. Eini gallinn er sá að þá þarf ég að vera edrú um helgina :-(