sunnudagur, júní 26, 2005

Var að koma heim af djamminu. Aftur. Öflug þess dagana... Fann hins vegar engan sem mig langaði til að stunda innihaldslaust kynlíf með. Skrýtið... En ég var hins vegar að djamma með sálufélaga mínum og það var ansi merkilegt. Við vinnum ss saman í sumar og við eigum fáránlega margt sameiginlegt! Vinnum við það sama, barnið mitt er líka barnið hennar, eigum svipaða fortíð, hugsum mjög líkt, höfum báðar látið laga í okkur augun, búnar að ganga í gegnum svipaða hluti í lífinu, eigum svipuð tengsl við systkini okkar, göngum í eins nærfötum, eigum sama uppáhaldslit og svona mætti lengi telja. Mér finnst hún frábær!! ;-)

laugardagur, júní 25, 2005

Var að koma heim eftir staffadjamm. Úff! Drakk eina Blush-flösku, 2 tekílaskot, 1 fullnægingu, 2 bjóra, 1 dularfullt skot og einn drykk ala Evilín en var samt bara eitthvað tammtatamm, ekki að fíla mig. Kannski af því að ég var í aðeins of litlum skóm. Kannski af því að ég var í stuttu pilsi. Á reyndar ekki að skipta máli þegar maður er svona þreyttur og innbyrðir þetta magn af áfengi, en hvað veit ég?
Hvað er samt málið með að fólk sé bara að finna sér einhvern og einhvern á djamminu til að taka með sér heim? Er ég kannski að missa af einhverju voða spennandi? Ég er bara ekki að sjá hvað er svona frábært við að fara heim með einhverjum sem maður þekkir ekki neitt og sofa hjá honum. Get ekki ímyndað mér að það sé spennandi. Fyrir utan það að kynlíf þegar maður er í glasi er glatað. Þegar ég er full vil ég dansa, borða og sofa. Í þessari röð og ekkert rugl þar á milli, ég hef bara ekki einbeitinguna til þess. Það að ég geti vélritað þokkalega villulaust núna bendir til dæmis til þess að ég sé ekkert neitt svaðalega drukkin.
Veit ekki alveg hvað ég þarf að gera til að finna löngunina til að sofa hjá ókunnugum manni... Læt ykkur vita þegar ég kemst að því :-)
Góða nótt!

miðvikudagur, júní 22, 2005

F***ing femin.is

Dyrabjallan hringir og ég fer til dyra. Í gættinni stendur ungur rauðklæddur maður, sæmilega vel útlítandi, með silfurlitan pakka í hönd. Mér þykir hann undarlega sposkur á svip. Gott kvöld, segir hann, Anna Klara? Það er ég! segi ég hress og kát með það að vera að fá óvæntan pakka. Nú á maðurinn verulega erfitt með að halda andlitinu. Hann stekkur upp tröppurnar, hendir í mig pakkanum, segir gjörðu svo vel og hleypur út. 2 sekúndum síðar veit ég af hverju. Ég held á aflöngum pakka sem vafinn er inn í ógegnsæjan silfurlitan pappír, merktur með nafninu mínu og á honum stendur femin.is. Rétt upp hönd sem heldur að gæinn haldi ekki að ég hafi verið að fá sendan til mín víbrator!??! Einmitt. Hvað ætli sé verra en að láta sætan póstmann halda að maður fái víbrator sendan heim? Að láta hann halda það en vera í raun bara að fá sendar snyrtivörur.

Ég var miður mín þar til ég fór að skoða vörurnar mínar og las leiðbeiningarnar sem fylgdu með einu kreminu. Þar stendur Keep out of reach of pediatric population. Þá kættist ég á ný.

mánudagur, júní 20, 2005

Allt að gerast

Var að skila inn umsókn um námslán næsta vetur. Í Glasgow! :-) Já, nú er sko allt að gerast. Vantar bara smá skurk í íbúðarmálin og ég get hallað mér aftur, slakað á og notið þessara 3 mánaða sem eru eftir þar til ég byrja í skólanum. Það er ekkert mjög langur tími skal ég segja ykkur...

ps. Af gefnu tilefni vil ég taka það fram að ég er ekki ein þeirra sem féllu í yfirlið í miðbæ Reykjavíkur 17.júní síðastliðinn.

laugardagur, júní 18, 2005

Hæ hó og allt það... Gleðilegan þjóðhátíðardag!

Og sólin bara skín og skín. Yndislegt. Ég er búin að vera úti að leika alla vikuna og komin með þetta fína tan á andlitið. Aumingja fólkið sem vinnur inni núna. Eins gott að það vorkenni mér í rigningu.
Flaggaði litnum á tjúttinu á fimmtudagskvöld og æfði nýju spurningarnar. Ég er sem sagt búin að leggja gömul spurningunum (Aldur, menntun, fyrri störf, staðsetning í pólitík og afstaða til bdsm) og taka upp nýjar.

Spurning eitt: Býrð þú í Reykjavík/á höfuðborgarsvæðinu?
(Ef já held ég áfram að spyrja, ef nei læt ég mig hverfa á hraða ljóssins).
Spurning tvö: Hvernig finnst þér að búa í Reykjavík/á höfuðborgarsvæðinu?
(Ef svarið er neikvætt kveð ég kurteisislega en ef það er jákvætt held ég áfram).
Spurning þrjú: Vissir þú að Glasgow er mjög svipuð Reykjavík, bara aðeins stærri...?
Ef spurningu þrjú er svarað játandi og jafnvel með jákvæðri viðbót um Skotland (t.d. ég elska rigningu, mig hefur alltaf langað til að ganga í pilsi eða mér finnst skoskur matur ótrúlega spennandi) fær viðkomandi leyfi til að splæsa á mig drykk.

Ég náði reyndar ekki að spyrja alla sem mig langaði til en viðbrögðin voru ágæt... Þarf að prófa þetta aðeins betur síðar. Annars finnst mér brillíant að það sé frí á morgun líka, ég held alltaf að það sé mánudagur en svo kemur það mér skemmtilega á óvart að ég þarf ekki að vinna aftur fyrr en hinn! Það þarf svo lítið til að gleðja litlar sálir.

fimmtudagur, júní 09, 2005

Var að netnördast eitthvað um daginn og rakst inn á síðuna hjá fyrrverandi samstarfskonu. Þar segir hún að vinnan hafi verið ömurleg! Það þótti mér mjög leitt að heyra, því ég hélt að henni hefði bara þótt við vera frekar skemmtileg. Hins vegar kvaddi samstarfsfólk mitt mig með risastórri osta-og rauðvínskörfu í dag svo ég er varla alslæm :-) Það gladdi mig svo mikið að ég fór næstum því að gráta! En það er ekkert að marka, ég svaf bara tvo tíma í nótt...

Ég er ekki væskill. Ég er ekki væskill. Ég er ekki væskill.

mánudagur, júní 06, 2005

The results of the Icelandic Singing Vote is in...

(drumroll...)

Ég er æði, æði, æði, ég er saxófónn!

Er ekki verið að grínast með umsögnina mína? Scala baby, here I come!

sunnudagur, júní 05, 2005

Í dag er síðasti dagurinn þar sem tónleikarnir voru æði. Á morgun klukkan tíu fæ ég umsögnina í hendur ...durumdurum... Sé til hvort ég tjái mig meira um það mál hér :)
Annars er það helst að frétta af mér að ég er komin með kvef og hálsbólgu. Held að kerfið hafi bara hrunið í spennufallinu. En það er allt í lagi því næsta gigg er ekki fyrr en 17.júní! Þvílíkur lúxus að geta bara verið kvefaður án þess að vera í stresskasti að éta engifer og hvítlauk.
Fór í karókípartý á föstudaginn og skemmti mér konunglega! Gat loksins sungið Elvis-lög og allskonar hittara sem ég næ ekki með minni venjulegu sópranínurödd. Við gauluðum til að ganga 4 svo ég get rétt ímyndað mér hvað nágrannarnir hafa verið happy með okkur... Fór svo á æðislega tónleika í gær, er enn í skýjunum. Besta söngkona í heimi í dag í hinum frábæra sal Háskólabíós, það getur ekkert toppað það. Svo var það vorhreingerningin í dag og ekki degi of snemma, gólfin voru ekki alveg að þola sólargeislana sem lauma sér inn um gluggann þessa dagana. Eftir tvo poka af rusli og alvarlega rykhreinsun er ég alveg sátt við mig og mitt. Vala Matt er velkomin í heimsókn!

miðvikudagur, júní 01, 2005

Þá er það búið

Skrýtið. Mjög skrýtið. Margra mánaða vinna bara búin á klukkutíma. En mikið svaðalega var það gaman! Hundrað manns mættir til að hlusta á mig, ansi magnað... Og það gekk bara eiginlega allt eins og það átti að ganga og sumt meira að segja betur en ég þorði að vona! Ég er allavega mjög mjög sátt við kvöldið og kennararnir mínir líka. Sem er fyrir öllu. Fullt af óvæntum skemmtilegum gestum, fáránlega mikið af blómum og gjöfum og allt of mikið af hrósi. Ég á þetta sko ekki allt skilið.
Fæðingunni fylgir svo hið hefðbundna þunglyndi og nettur leiði yfir því að þetta sé búið. Hins vegar býst ég við úrskurði prófdómarans á morgun svo það er nett spenna í gangi yfir því. En það var gaman að vera stjarna kvöldsins einu sinni, ég get sko alveg hugsað mér að upplifa það oftar!
Takk fyrir komuna og/eða hlýjar hugsanir :-)