mánudagur, mars 31, 2008

Geisp

Svaf lítið síðustu nótt, bara rúmlega 4 tíma, og fylleríissvefn í þokkabót. Ætlaði snemma að sofa í kvöld til að bæta upp fyrir það en það fór víst ekki svo. Vinkona mín bauð mér í ísbíltúr snemma kvölds. Ég launaði henni góðvildina með því að skamma hana fyrir að vera hörð við mig. Við sem erum alltaf harðar við hvor aðra og viljum hafa það þannig (tough love sko, með áherslu á love). Eftir að hafa með mörgum orðum og tárum loks komið út úr mér að 'stundum þarf maður bara að fá að hafa lífið svolítið erfitt og ömurlegt' gafst hún loks upp og sagði: 'Allt í lagi Anna mín. Hafðu lífið bara ömurlegt ef það er það sem þú vilt. Ég skal hlusta á þig kvarta og kveina eins lengi og þú vilt.' Þá auðvitað steinhætti ég og sagði: 'Lífið er náttúrlega aldrei alveg ömurlegt sko...'
Æ hvað maður er mikið flón stundum! En mikið er gott að eiga góða vini sem vilja eiga mann þó maður sé flón! Takk fyrir ísbíltúrinn og með'ðí sæta stelpa, þú ert snillingur ;o)

Og takk allir hinir fyrir frábært afmælispartý í gærkvöldi!!! Saga í máli og myndum birtist mjög fljótlega (og vonandi gítarsólóið góða líka!)

föstudagur, mars 28, 2008

Lasin Lasnari Lösnust

Það var ekki svona sem ég sá fyrir mér fríið góða á Íslandi: Með tæplega 40 gráðu hita í svitabaði og með kvef sem lætur öll önnur kvef líta út eins og smá kitl í hálsinn. Einu samskipti mín við umheiminn undanfarna daga hafa verið í gegnum sms eða msn þegar vel liggur á, þar sem ég er ekki í besta ástandinu til að spjalla. Ég sem ætlaði að þeysast á hjólhestinum góða á milli heimsókna, hádegisverðarhittinga, kaffibolla og bjórsöturs (en ekki á hjólinu í svoleiðis, ég veit það er bannað!). Einnig veitti mér ekkert af því að syngja eitthvað ef ég ætla að fara í nokkra söngtíma í næstu viku. Það að fara í söngtíma eftir að hafa ekki sungið í rúma viku er nefnilega í besta falli vandræðaleg tíma-og peningaeyðsla.

Á björtu hliðinni er þó skömminni skárra að vera veik hér. Án þess að tala neikvætt um sambýlismanninn á nokkurn hátt, enda er hann manna besti sambýlismaður, jafnast enginn á við mömmu í aðhlynningu... það er alveg sama hvað maður biður um skrýtna hluti úr búðinni, þeir birtast á náttborðinu skömmu síðar sama dag! Ég er orðin nær hitalaus núna, Gud ske lov, svo ef ég held áfram að svitna eins og svín og anda að mér heitri vatnsgufu ætti ég að geta tæklað eitt afmælistjútt á morgun. Í versta falli fer ég bara ekki í bæinn, enda er það alltaf pínu let-down eftir gott partý hvort eð er ;o)

Fólk hefur viljað tengja veikindi mín eitthvað við Vesturför mína en ég vil ekki heyra á slíkt minnst! Vesturförin var frábær í alla staði, ekki hægt að segja annað þegar einu umkvörtunarefnin eru of margar marengstertur og að 'einhver' notaði tannburstann minn. Ég kíkti á Aldrei fór ég suður og það er óhætt að segja að ég er enn meiri Hjálma-aðdáandi núna og orðinn nýr Mugison aðdáandi. Snillingar. Svo gladdi Jói frændi aldraða frænku sína með því að bjóða henni í leikhús sem innihélt heilan hóp af hálfnöktum ungmennum að syngja 'Tökum eitt tíðhnitið enn...' Ég sæi mig í anda, 18 ára hálfnakta að halda lagi fyrir framan 130 manns. Sæi mig í anda 27 ára mind you!!! Eintómir snillingar þarna fyrir vestan og geta ómögulega borið ábyrgð á því að ég er flensuflón.

Nú er bara að krossa fingur og vona að ég batnist á næstu klukkutímum svo ég geti litið sómasamlega út á morgun, sungið eitthvað í hausinn á mér og hitt eitthvað af þessum vinum sem ég þykist eiga hér. Annars verð ég bara að heimta heimavitjanir!!

Toodles!

laugardagur, mars 22, 2008

Jæja, nú hlýt ég barasta að fara að hætta að gráta. Það hljóta að vera takmörk fyrir því hversu mörg tár eru inni í einum haus!

Ætla samt ekki að gráta í þessu bloggi, enda er nóg skemmtilegt að gerast. Ég er, eins og sjá má af íslensku stafrófi, komin heim til Íslands. Meira að segja komin vestur á firði í snjó og skemmtilegheit. Við fundum þetta fína þráðlausa net heima hjá ömmu, held ég sé að blogga í boði bæjarráðsskrifstofu Bolungavíkur í þetta sinn. Hér verð ég nokkra daga við veisluhöld og tónleika-ástundun og át og afslöppun. Fór í fermingarveislu á skírdag og þar sannaðist enn og aftur hvað ég á miklu meira sameiginlegt með börnum en fullorðnum, mér finnst bara mun skemmtilegra að teikna og fíflast en að ræða málin á einhvern yfirvegaðan hátt… Svo er skírn framundan og auðvitað Aldrei fór ég suður! Fór einmitt þangað áðan með mömmu og kæró (hennar) og dauðöfundaði flytjendurnar sem voru hver öðrum drukknari. Held þetta sé alveg málið, sleppa bara fram af sér beislinu og missa sig í tónlistinni, í staðinn fyrir að vera að kafna í boðum og bönnum eins og við í klassíska geiranum. Ótrúlega skemmtilegt, hlakka til að fara aftur á morgun!

Ég er búin að framlengja dvöl mina hér á Klakanum þar sem kennarinn minn verður á landinu svo ég get sparað mér eina, ef ekki tvær, ferðir til London. Ég verð því hér til 6.apríl svo það geta allir fengið nett ógeð af mínu kúlulaga fési. Afmælispartýið stendur enn 29.mars og þá gefst pakkinu sem mætti ekki í gamlárspartýið tækifæri til að sanna að það sé enn í kunningjahópnum og að það sé ekki alveg dautt úr öllum æðum þó svo að 3-0 nálgist óðfluga… hjá sumum sko, ekki mér!

miðvikudagur, mars 05, 2008

ARG!

For inn a heimabankann minn og komst ad tvi ad eg a engan pening! Peningurinn sem eg fekk fra TR er bara horfinn ut i blainn! Londonferdir og fleira hafa greinilega tekid allhressilegan toll. Bolvans bolvans. En til ad hressa mig vid set eg inn nokkrar myndir. Thad kostar ekkert! (Latid ekki bandvitlausar dagsetningar trufla ykkur, eg mun einhverntima laera ad laga thaer)


Her er eg med nygifta parinu Leuh og Jeff (vid gaetum naestum verid systkini a thessari mynd!).


Ad knusa risastoran trebjorn fyrir utan eitt af elliheimilunum i Yorkshire.


Vid Eva vindblasnar og threyttar eftir eitthvad tjutt um jolin. Vid vorum sko rosalegar saetar fyrir djammid. I alvoru!

mánudagur, mars 03, 2008

Hrakfalla-Anna

Komin til baka eftir agaetis ferd. Flestir tonleikarnir gengu ljomandi vel, folk var vel med a notunum og song og dansadi en nokkrir voru ekki alveg eins godir. A einum stadnum komu upp handalogmal thegar madur akvad ad kona sem haetti ekki ad tala aetti bara ad fara fram. Hann gekk ad henni (i gongugrindinni sinni) og reyndi ad toga hana a lappir, en hun var ekki aldeilis a tvi. Eg vard ad kalla a starfsfolk thar sem mer datt ekki i hug ad reyna ad stoppa thau sjalf, ekki mitt hlutverk og eg thekki folkid ekki neitt. Audvitad a starfsfolk ad vera a svaedinu og ekki skilja 2 tonlistarmenn eftir med 20 alzheimiersjuklinga, en sumstadar virtust tonleikarnir vera kaerkomin kaffipasa fyrir staffid. A odrum stad hefdum vid allt eins geta verid ad spila fyrir hop af styttum, folkid blikkadi ekki einu sinni, hvad tha klappadi eda song med. Eg er alltaf pinu midur min eftir svoleidis gigg af tvi eg geri hvad eg get en thad hefur ekkert ad segja. Til allrar hamingju faum vid borgad thad sama hvort sem folk skemmtir ser eda ekki ;o)
A fostudaginn tokst mer svo ad detta all hressilega a hausinn og fa, er eg nokkud viss um, vaegan heilahristing. Vid vorum ad taka dotid utur leigubil fyrir sidasta konsertinn og eg var ad draga draslid ut ur skottinu thegar eg hrasadi um hljombordid sem Sam hafdi sett adeins of nalaegt bilnum. Eg datt i slow-motion aftur fyrir mig og skellti hnakkanum i gangstettarkant og bakinu i gotuna. The show must go on svo eg burstadi af fotunum og for inn ad syngja. Eftir 2 log vard eg svo ad haetta tvi mig svimadi tvilikt og helt eg myndi gubba a dagstofugolfid hja gamla folkinu. Thad hefdi orugglega vakid thau, en thar sem thetta voru tonleikarnir sem voru metnir (audvitad) vildi eg thad sidur. Eg jafnadi mig tho og klaradi tonleikana. Rugladi textum haegri vinstri og yfirmadur okkar sat med thurrkuntusvip uti horni og var ekki satt, en eg held ad heldri borgararnir hafi alveg verid gladir med thessa tilbreytingu. En hrakfarirnar voru rett ad byrja!
Planid var ad taka lest fra Scarborough til York og svo til London og vera komin til London rumlega 8. Lestin fra Scarborough kom ekki af tvi thad var tre a lestarteinunum svo vid satum thar i einn og halfan tima. Eg nadi svo fyrstu lest til London en um thad bil halftima eftir ad vid logdum af stad fylltist allt af reyk. Thad var biladur bremsuklossi eda eitthvad, svo vid vorum rekin ut ur lestinni og latin standa einhversstadar i rassi ad bida eftir annarri lest sem kom klukkutima sidar. Su lest keyrdi svo a eftir theirri biludu -haegt, haegt- svo eg var ekki komin til London fyrr en rumlega 12.
En dagurinn i London var yndislegur! Thad var otrulega gott og gaman ad hitta Leuh mina og vid hofdum thad mikid gott. Myndir sidar!
Svo flaug eg til Glasgow a laugardagskvoldid i flugvel sem var seinkad svo eg missti af sidustu lestinni i baeinn. Eg thurfti tvi ad standa i einn og halfan tima og bida eftir rutu til Rottuborgar og var komin heim half tvo, threytt, kold og komin med andskotanum nog af breskum almenningssamgongum. Mikid skal eg ekki ferdast neitt i brad!
Nu snjoar i Rottuborg, vonandi bara sma paskahret sem lidur hja. Best ad fara ad gaula eitthvad og halda svo heim thar sem 3 vikna gamall islenskur lax bidur min i mygludum pakka fra mommu gomlu. Namm.