miðvikudagur, apríl 01, 2009

Afmælisblogg fyrir Hrönn

Klárlega nýtt met í þagnarbindindi, veit ekki alveg hvað veldur. Hef bara ekki haft neitt sniðugt að segja held ég.
En í dag á ég afmæli og hef nóg að segja! 29 ára kellingin, legg ekki meira á ykkur (lít samt ekki út fyrir að vera degi eldri en 26 sko) . Dagurinn hefur gengið vel so far, fékk subbuborgara í hádegismat, fullt af knúsum og góðar gjafir á miðnæturblóti Mávahlíðarmæðgna í gær. Vinnufélagarnir voru eitthvað að væla yfir því að ég ætlaði ekki að koma með köku í dag, en mér fannst alveg nóg að koma með köku og heimabakaðar bollur á föstudag. Ég ákvað samt að fara milliveg og búa til konfekt handa þeim, mikið urðu þau öll glöð!! Mér þótti samt leiðinlegt þegar þau spýttu því strax útúr sér. Síðan hvenær er eitthvað að súkkulaðihúðuðum gúrkubitum?!??! Laun heimsins eru og verða vanþakklæti. Annars finnst mér óhemju lítill metnaður lagður í göbb dagins í fjölmiðlum; brunasala á húsgögnum, ókeypis bjór og áheyrnarprufur -í alvöru? Vonandi verður eitthvað bitastæðara í sjónvarpsfréttum, ekkert fer framhjá haukfráu auga aprílflónsbarnsins!
Af mér er annars allt gott að frétta þrátt fyrir að brjóstin nálgist nafla á ógnarhraða. Booty Camp gengur vel og smjörið rennur af bumbusi, ég syng eins og vindurinn til að undirbúa næstu skref feril-lega séð (sem fela m.a. í sér að ég er orðin mezzó -þeir skilja sem skilja), vinn eins og ritarinn sem ég er -eins skemmtilegt og það nú er- og strætóast bara þess á milli. Hlakka til að kaupa mér hjól og fara að nota það, kvíði reyndar Ártúnsbrekkunni svolítið en smá sviti er ekkert sem ég ræð ekki við! Helst að ég hafi áhyggjur af samstarfsfólkinu...
En jæja, þá eru komnir nokkrir stafir á blað og best að ég haldi áfram afmælisdeginum góða. Eftir vinnu fer ég í söngtíma til Kristjáns nokkurs Jóhannssonar, spennandi að heyra hvað honum finnst um hávaðann. Svo fæ ég plokkfisk hjá mömmu og kannski smá hvítvín í kvöld. Hvað er hægt að biðja um meira? xx