Gleðilega rest!
Mikið voru þetta ljúf jól, vonandi ykkar megin líka. Ég svaf, át og var glöð... svona fyrir utan eins og einn dag þegar írski fjölkvænismaðurinn reyndi að stela jólunum. Og þegar ég fékk sjóðandi kaffi yfir mitt fagra fés á Þorláksmessu. Það var furðu sárt, en margra tíma kælingar og aloe vera áburður gerðu sitt gagn. Bara eitt flagnandi sár eftir, sem klárlega grær áður en ég gifti mig (látum liggja milli hluta að ég gæti líklega grætt á mig heilan handlegg áður en ég gifti mig. Það eru nú einu sinni jól). Og svo var ég ekki mjög glöð þegar ég sá aðeins of persónulega mynd í jólamyndasýningu föður míns... En það væru nú ekki Önnu-jól án smá skandals ;o)

<< Home