föstudagur, desember 05, 2008

Kauptilboðið

Fyrir 2 vikum síðan fór ég á mjööööög svo áhugavert djamm með Ólöfu, og er það í sjálfu sér efni í heila bók. En sökum persónuverndar og friðhelgi einkalífs læt ég eina sögu duga:
Við vorum að dansa á Ólíver þegar ungur maður vindur sér að mér og segir: Ég er búinn að vera á þessu dansgólfi í allt kvöld að bíða eftir konu eins og þér... Ég þóttist sjá að þarna færi mögulega góð blogg-saga, svo ég spurði hann hvað hann ætti við. Sko, þú ert svona náttúrulega falleg og líka heilsteypt, með áhuga á andlegum málefnum og svona... Hóhó, ég var greinilega komin í feitt! Maðurinn bauð svo drykk, ég þáði og fékk í hendurnar Ópal-skot! Ég var greinilega ekki nógu spennandi til að tala við í tíma sem nemur einum V&T. Eftir að við höfðum skellt í okkur skotunum tók maðurinn svo undir handlegginn á mér og leiddi mig pent út af Ólíver!! Einmitt, það var alveg að fara að gerast. Ég tilkynnti honum hátt og skýrt að ég kostaði aðeins meira en 700 krónur og strunsaði inn aftur. Þangað elti hann mig og hélt áfram að reyna, mjög dramatískt og örvæntingarfullt, að fá mig með sér heim. Spurður að aldri sagðist hann vera eldri en 25!! Jáááá, eins og allir eldri en 25 ára svara slíkri spurningu! Úff. 
Við Ólöf löbbuðum loks niður Laugarveginn, ég á undan að tala við eitthvað fólk og Ólöf á eftir með gaurinn á handleggnum þar sem hann bað hana að tala við mig því hann langaði svo að setja í mig.... Svo furðar fólk sig á því að maður sé á lausu! 



ps. Eftirgrennslan daginn eftir leiddi í ljós að maðurinn er 21 árs. Quelle surprise.