Jólahlaðborðsdagurinn ógurlegi
Og enginn nennir að vinna. Eða allavega ekki ég. Við förum á Ó í hádeginu og troðum okkur út í boði fyrirtækisins, svo ætla kvenkyns starfsmenn að rölta Laugaveg að skoða búðir og hvítvínsglös. Svo hér sit ég aðeins of dónalega klædd fyrir vinnuna, í svartri buxnadragt og korsiletti (sem skerst illilega inn í bakið á mér, en það er víst verðið fyrir lúkkið) með fjólublátt bindi. Bindi eru sko þema dagsins. Póstmaðurinn slefaði næstum þegar hann sá mig, svo kannski ég ætti að bæta við trefli.... Stefnir í skemmtilegasta eftirmiðdag, þrátt fyrir leiðindaveður.
Svo styttist í jólin, ef það skuldi hafa farið framhjá einhverjum! Við Eva áttum listskapandi kvöldstund um daginn og bjuggum til nokkrar gjafir. Eftir að hafa skapað listagóðar samlokur, málverk í massavís, heklaðar skötur og blóm, prjónles og fleira eins og að drekka vatn fórum við að velta því fyrir okkur hvort það sé eiginlega eitthvað í þessum heimi sem við ekki erum góðar í? Okkur datt ekkert í hug!! (og kærum okkur ekki um tillögur). Góða helgi dýrin mín ;o)

<< Home