föstudagur, febrúar 06, 2009

Jæja, þetta gekk allt saman að lokum og ég er komin heim í Hlíð. Líður svolítið eins og ég hafi verið í hrærivél sl.viku, en það jafnar sig vonandi um helgina. Hér kemur ferðasagan í örstuttu máli:

Dagur 1: Flug til London, rúta til Birmingham, bíll til N-Wales. 12 tíma ferðalag. Átti svo indælis kvöldstund með kennurunum mínum 2 í sveitahúsinu þeirra.

Dagur 2: Kembdi RISAstórum útlenskum hestum og mokaði flór, fór í útsýnisgöngutúr í fallegu en köldu veðri og svo í kapellu að syngja í gegnum prógrammið. Það gekk vonum framar þrátt fyrir kulda sem náði inn að beini og við fórum út að borða um kvöldið til að fagna/kveðjast.

Dagur 3: Lest til Birmingham þar sem ég sat í 4 tíma á flugvelli að bíða eftir því að starfsmenn hreinsuðu burt 3 cm af snjó. Fokking aumingjar þessir Bretar. Það hafðist að lokum og ég flaug til Frankfurt. Þar hafði ég rétt misst af strætó til Kölnar og næsti fór ekki fyrr en eftir 4 tíma. Helvíti heppilegt að ég hef unun af því að sitja á flugvöllum! Kom til Kölnar um kl.23 í ágætis íbúð og svaf eins og steinn. 15 tíma ferðalag þann daginn.

Dagur 4: Tók því rólega um morguninn og labbaði svo af stað í prufuna. Eitthvað hafði ég misskilið tímasetninguna og fékk því bara 5 mínútur til að hita mig upp áður en öll fórnarlömbin voru sótt og flutt í stórt kalt herbergi. Inn af því var svo prufusalurinn sjálfur og maður heyrði allt sem þar fór fram. Allt í einu birtist David vinur minn frá Glasgow og ég fékk að fara í herbergið hans (hann vinnur við óperuna) til að syngja mig betur upp og forðast yfirlætislegar samræður við keppinautana. Fjúkk! Ég var ótrúlega vel stemmd þegar loksins kom að mér og var klárlega tilbúin að syngja af fólki sokkana. Ég sagði þeim hvað ég byði upp á (3 stk aríur) og þau sögðu mér hvað þau vildu heyra. Ég söng Wagnerinn minn og strax að því loknu sagði Æðsti Strumpurinn: Das reicht. Danke. (Þetta er nóg. Takk). Þar sem ALLIR á undan mér höfðu sungið 2 aríur og fengið smá viðtal að því loknu þurfti ég ekki að brjóta heilann lengi um hvernig þetta hefði gengið. Mér sem fannst mér ganga svo vel, tæknin ekkert að stríða mér og ég var mjög sátt við mína frammistöðu! En jæja, þá var ekkert að gera nema fá mér kaffi og Wunderbar með David, fara 1 hring (eða 3) í H und M og detta svo hressilega í það. Við þræddum gay-bari Kölnar og enduðum svo 2 á galtómum karókíbar að syngja Sonny og Cher. Drukkin fyrir peninginn og skemmtum okkur ótrúlega vel!

Dagur 5: Ekki alveg jafn hress á því þegar ég vaknaði og enn minna hress þegar leigugaurinn kom að sækja lyklana að íbúðinni 15 mínútum fyrr en um hafði verið samið. Fjárans þýska stundvísi. Svo hann varð bara bitte schön að sitja umvafinn skítugum sokkum og nærum á meðan ég bögglaðist við að pakka og loka ferðatöskunni. Náði smá labbi um bæinn áður en ég tók rútu til Düsseldorf, flaug þaðan til London og svo loksins kom ég heim til Íslands um kl.23. 12 tíma ferðalag aftur.

Á einum af þessum flugvöllum (flugvallar-biðar-rútu-minningarnar renna, á einhvern óskiljanlegan hátt, svolítið saman hjá mér) kíkti ég á tölvupóstinn minn og sá þar tölvupóst frá Æðsta Strumpi þess efnis að þau hefðu ákveðið að taka annan sópran. Þetta var auðvitað mikið áfall fyrir mig, þar sem þau höfðu verið svo ótrúlega kurteis og áhugasöm um mig daginn áður... Ég sendi honum nokkrar línur og bað um einhver ráð eða hugleiðingar varðandi mig og minn söng. Eitt af því sem maður verður víst að gera en samt vildi ég eiginlega ekki fá svar hahaha. Svarið kom í gær: Þú ert að syngja of stórt rep fyrir þetta óperustúdíó. Á furðulegan hátt vildi ég frekar heyra að ég væri ekki nógu góð, ég get allavega unnið í því. Haha! Það merkilega er að af þeim 3 aríum sem ég bauð þeim að heyra völdu þau þá langstærstu og dramatískustu, en vildu ekki heyra hinar sem passa greinilega mun betur við það sem þau voru að leita að! Æ, það er hægt að pirra sig endalaust yfir þessu en við þessu er nú víst lítið að gera. Svo nú færist fókusinn yfir á næsta verkefni; vetrarhátíðargaulið. Og fötin sem ég náði að grípa í H und M. Og afmæli örverpisins á morgun, sem fagnað verður á sannan Karonina-systra hátt. Sie haben eine Warnung erhalten. Ja. Ja. Ja.