miðvikudagur, júlí 30, 2008

HEATWAVE

Ég er að bráðna hérna við tölvuna, samt er ég eins nakin og siðsamlegt þykir undir hvíta sloppnum! Maður lifandi, hvað þetta er nú frábært veður! Það er svo rólegt hér því læknarnir eru í fríi og fólk hringir greinilega ekkert þegar það er bongóblíða, að ég er við það að andast úr leiðindum. Við Dúlla (já hún heitir það!) samstarfskona mín gerðum reyndar díl um að ég myndi mæta 12 og hún fara 12 í dag, tilgangslaust að sitja hérna tvær að mygla og ekki að verða brúnar. Svo ég fór í sund eftir ræktina í morgun og náði 2 tímum af sólarþambi fyrir vinnu, mikið var það nú ljúft! Þegar ég mætti tæplega 9 voru bara eldriborgarar í leikfimi í lauginni en þegar ég fór var komið fullt af börnum og kropparnir úr Laugum mættir í tanið, gaman að sjá hvernig dagurinn skiptist í laugunum. Ég hélt nú fyrst að gamla fólkið væri hópur útlendinga því þau voru öll með svo brúna fína leðurhúð, en svo kom í ljós í sturtunni að þau eru greinlega bara svona dugleg að mæta í vatnsleikfimina. Ég mátti því miður ekki slást í hópinn með þeim, þetta virtist vera þrælskemmtilegt! (Já, ég spurði! Það gerist ekkert ef maður spyr ekki krakkar!!) Þau gerðu allskyns æfingar og gáfu frá sér apa-hljóð. Mér fannst það mjög ósanngjarnt. Af hverju þarf ég að stela mér barni til að leika við ef ég vil gera apahljóð í sundi? Hver bjó til reglurnar um að bara börn, gamalmenni og fólk sem er "aðeins mis" megi gera skrýtin hljóð á víðavangi? Af hverju þætti (flestu) fólki það skrýtið ef ég myndi gefa frá mér apaöskur á sólbekknum, eða ef fertugi verðbréfasalinn Jón myndi öskra VÍÍÍÍÍ áður en hann dýfði sér út í djúpu? Getum við ekki hringt í þann sem bjó til reglurnar og beðið hann að breyta þeim? Allavega svona þegar sólin skín...

sunnudagur, júlí 20, 2008

En gammel kvinde

Það er klárlega ellimerki að geta ekki sofið út um helgar! Barnlaus og allslaus, en samt bara fáránlega fersk klukkan 9 bæði í gær og dag. Fór í sund með Ólöfu í gær þar sem við unnum aðeins í húðlitnum og horfðum á allt fallega fólkið sóla sig (og gera dónalega hluti, en það er önnur saga). Svo skellti ég mér á eina kvöldvakt og uppskar glæsilega marbletti að launum! Ég er með fingraför hringinn í kringum báða upphandleggi svo það er eins gott að ég er búin að fara í sund! Fór svo bara heim eftir vinnu og sofnaði fljótt, eins og gamalli komu sæmir. Dreif svo í að þrífa kotið í morgun, það var aldeilis ekki vanþörf á með allt rykið sem berst inn vegna framkvæmdanna.

Mér finnast þrif alltaf jafn áhugaverð fyrirbæri. Ég var nefnilega alin upp við að þau væru svolítið mál, verkefni sem hékk yfir höfðinu á manni nokkra daga áður en að því kom. Alla laugardagsmorgna var þrifið og hver hafði sitt hlutverk. Við Eva tókum dótið okkar f gólfum og borðum og löguðum okkar herbergi, mamma sá um þrif og tiltekt ofan hnéhæðar og pabbi sá um ryksugun og skúrun. Þetta átti allt að gerast mjög hratt og ákveðið og fjölskyldan var öll örlítið pirruð á meðan á þessu stóð. Í dag er ég enn í því að byggja upp spennu og kvíða fyrir því að taka til, og best ef ég næ að mikla það svolítið vel fyrir mér. Ohhh eini frídagurinn minn í vikunni mun fara í þrifin... Woe is me!! Svo tók nú bara sléttan klukkutíma að laga til, þurrka af, skrúbba kló og ryksuga hér áðan. Það tók því þá að hugsa eitthvað um það fyrirfram! Nú sit ég her í hreinni íbúð að bíða eftir að þvottavélin ljúki verki sínu svo ég geti farið að skola af bílnum og kaupa í matinn. Enginn þynnkumatur og sjónvarpsmygl hér, En ég hef takmarkaðar áhyggjur af þessu, ég verð þunn og ógeðsleg aftur fyrr en varir ;o)

Mig langar að segja ykkur eitt sem mér finnst leiðinlegt. Mér finnst leiðinlegt þegar fólk dregur þá ályktun að maður sé mikið í líkamsrækt til að grenna sig. Ertu í átaki? eda Máttu borða þetta þegar þú ert svona að taka þig á? þykja mér leiðindaspurningar og svörin við þeim eru eftirfarandi: Ég hef stundað líkamsrækt, mismikla eftir tímabilum auðvitað, í 7 ár. Ergo ekki átak. Ég stefni á að lifa af söng, möo að nota líkamann minn mjög mikið. Óperusýningar eru nokkrir klukkutímar hver, með sí-vaxandi kröfum um fimleika og hlaupakúnstir á sviðinu. Þar fyrir utan er líkamlega erfitt að syngja, það er sko hörkupúl! Til þess að vera samkeppnishæf, hvað þá bara fær um að halda dampi heila sýningu, þarf ég að vera í eins góðu líkamlegu formi og mögulegt er. Það liggur því í augum uppi að ég verð að vera dugleg að hreyfa mig og að passa aðeins hvað ég læt ofan í mig. Það fylgir því svo bara sá bónus að maður fer að líta betur út, sem gerir mann aftur enn samkeppnishæfari ;o)

Er það bara ég, eða er ekki eitthvað skondið við það að fullorðinn karlmaður sé einn í Singstar á sunnudagsmorgni? Best að stökkva hlæjandi niður í þvottahús!

miðvikudagur, júlí 16, 2008

Kján-Anna

Er í því að gera kjánalega hluti þessa dagana!

Í Víkinni fögru ákvað ég að fara út að hlaupa sl föstudagsmorgun. Það var úði og rok svo ég dúðaði mig vel með húfu og trefil, með hettuna yfir hausinn og háa tónlist í eyrunum. Setti mér metnaðarfullt markmið og lagði í hann. Var komin nokkuð áleiðar þegar eitthvað straukst við hausinn á mér! Ég stoppaði og leit upp, þar sem 20-30 bandbrjálaðar kríur sveimuðu yfir mér. Þær öskruðu og görguðu og dýfðu sér hvað eftir annað í áttina að mér. Ég trylltist úr hræðslu, sneri við á punktinum og spretti til baka eins og fætur toguðu, bogin í baki og veifandi húfunni yfir hausnum á mér. Nokkrir bílar áttu leið hjá og ég fann hvernig farþegarnir hlógu að mér, augljósri utanbæjartúttunni.
Þetta var kjánalegt.

Í fyrradag fór ég, að vanda, beint úr ræktinni í vinnuna. Ég pakka kvöldið áður fötum og dóti í töskuna og spái mismikið í hverju ég ætla að klæðast daginn eftir. Kvöldið áður hafði ég greinilega átt von á sól og sumri því ég pakkaði stuttu gallapilsi. Þegar ég var komin í það og sest á hjólið áttaði ég mig á því að þetta hafði ekki verið heimsins besta val. Leiðin í og úr vinnunni liggur um Miklubraut og Kringlumýrabraut um klukkan 9 og klukkan 4. Það er því óhætt að segja að það hafi ófáir vegfarendur verið svo heppnir að sjá innanlæri mín og afturenda nokkuð vel, jafnvel líka glitta í hvítar nærur undir svörtum sokkabuxum ef þeir voru (ó)heppnir.
Þetta var líka kjánalegt.

Undanfarna daga hef ég haft miklar áhyggjur af því að vinur minn sé fúll út í mig. Ég segi auðvitað allskonar vitleysu og meina ekki helminginn af því sem ég bulla, en ég reyni nú eins og ég get að særa ekki fólk, sérstaklega ekki þá sem mér þykir vænt um. Maðurinn er fullorðinn og fullfær um að tjá sig í mæltu máli svo ég veit ekki hvað ég er að tapa svefni yfir því að hann gæti verið fúll út í mig.
Það er svolítið kjánalegt.

Kjánalegast af öllu er samt að bakið á mér er í hönk og ég veit ekki af hverju!

þriðjudagur, júlí 08, 2008

Mamma losnar við bletti og ég við áhyggjur!

Og allt á einum og sama klukkutímanum! Við vorum nefnilega svo sniðugar í gær mæðgur að ég tróð henni að í blettaskoðun hér á stöðinni minni og í staðinn fékk ég bílinn til að fara í atvinnuviðtal. Vinnuna fékk ég, svo nú þarf ég ekki að hafa of miklar áhyggjur af því hvað verði um mig í haust, allavega ekki milli klukkan 9 og 4 alla virka daga. Og launin töluvert hærri en þau sem ég er með í sumar. Ég segi það og skrifa krakkar mínir að ég mun fá yfir 100þúsund krónur útborgaðar! Ótrúlegur fjári.

Annars er það helst á dagskrá að fara á ættarmót næstu helgi í Bolungavíkinni. Við ökum þangað á fimmtudagskvöld, ég, mamma og viðhengið hennar og ég flýg svo til baka á sunnudag. Stefnir í góða mætingu og hörkufjör, en ég er ansi hrædd um að þetta sé að breytast í The-Anna-Show 2008! Ég var auðvitað nörruð í það með lúmskum aðferðum móður minnar að syngja fyrir fjölskylduna (nú má hún ekki nota ömmuþinniþættisvogamanaðþvítrompið aftur fyrr en 2009!), svo hef ég líka verið að undirbúa leiki sem mér hefur verið lofað að ég þurfi ekki að stjórna sjálf. Ég treysti því nú tæplega þar sem fólk er ekkert að stökkva til að bjóða sig fram í starfið, ætli þetta endi ekki með mér uppi á sviði að syngja, stjórna fjöldasöng og leikjum, segja brandara og så videre tímunum saman. Það verður svo líklegast talað um það fram að næsta ættarmóti hvað ég er stjórnsöm og athyglissjúk ;o)

fimmtudagur, júlí 03, 2008

Ég las í blaði í gær að ef ungar konur fengju val á milli hærri greindarvísitölu og lægri tölu á vigtinni myndu 56% þeirra velja að vera léttari. Um þetta ætlaði ég að skrifa langan pistil og taka ungar konur dagsins í dag rækilega í gegn. Það sauð sko á mér! Þar til ég sá að könnunin var gerð af e-diets.com! Talandi um ómarktækt rannsóknarúrtak hahaha

þriðjudagur, júlí 01, 2008

Ég er alltaf að bíða eftir því að það gerist eitthvað skemmtilegt svo ég geti bloggað, en það gerist ekkert stórfengilega sniðugt svo hér kemur bara enn eitt bloggið um ekki neitt!

Það gerist auðvitað fullt af skemmtilegum hlutum á hverjum degi, en ekkert til að segja sérstaklega frá svosem. Ég er bara að vinna í vinnunni sem borgar svo hlægileg laun að ég fór næstum að gráta þegar ég fór á heimabankann í dag. Það verður víst ekki fyrr en 1.október sem ég get farið að leggja eitthvað fyrir... Það leggst allt á eitt núna, afborganir af námslánum, morðfjár fyrir að senda kassana mína heim, hár Euro-reikningur og svo hvarf auðvitað fullt peningum í gengisgrínið og það að borga heilan aukamánuð í leigu úti af góðmennsku við sambýlismanninn. Eins gott það sé endurgreitt í eilífðinni ;o) Ég tek svo eina og eina vakt í Strýtu til að hífa upp launin en hætti á ljósastofunni af því að ég neita að láta taka mig í bakaríið á tveggja vikna fresti.

Ég fer svo daglega í ræktina og það er ekkert lítið gott að vera komin aftur í gírinn! Ég vissi ekki hversu mikið ég hafði saknað þess sl ár! Reyndar er Baðhúsið enn pínu sjoppulegt, jafnvel eftir miklar breytingar. Enn sama ógeðisklóakfýlan á klósettunum, enn bara helmingur sturtanna með blöndunartækjum (hvað ER það?), bara 5 stöðvar í sjónvarpinu og enginn vatnshani á sömu hæð og tækin öll. Ræktin plús hjólreiðarnar plús matarræðið (sjá síðar) valda því að ég verð orðin mega-massi fyrr frekar en síðar.

Kassarnir eru komnir til landsins! Fullir af fötum og bókum bíða þeir þess að vera opnaðir en það verður ekki fyrr en ég hef tíma til að leggjast í ofurtiltekt. Það þarf víst eitthvað pláss þetta dót mitt. Ég er búin að veiða upp úr þeim nokkur skor, einn djammtopp og leikfimifötin svo það verður að duga í bili.

Ég fór til grasalæknis í síðustu viku til að tékka á því hvað er í gangi með minn helvíska haus og hans mígreni sem eru að fara með mig. Hún lét mig setjast með fæturna á járnplatta, halda í járnstangir og setti járn á hausinn á mér. Þannig sat ég í nokkrar mínútur (auðvitað að springa úr hlátri inní mér, who wouldn't?). Svo spýttust út allskyns plögg og hún fór að lesa í línurit og stöpla. Það var nokkuð nákvæmt hjá henni, hún sá að ég er bakbæklingur, var með harðsperrur þann dag, fæ oft sýkingar í kinnholur, var með barnaastma osv en svo hófst mælingin á því hvað ég má ekki borða, vilji ég verða mígrenilaus. Það var ágætis listi en aðal-bannvörurnar eru eftirfarandi: Hveiti, sykur, mjólkurvörur (kind of given, eru ekki allir og frændur þeirra með óþol fyrir því?), kakóduft og súkkulaði (ARG!), lakkrís (!!), tómatar, greip, appelsínur, svínakjöt (ok), E-efni sem eru í lituðu nammi, MSG (bless snakk!), rauðvín, bjór (sniff), aspartam sætuefni (TYGGJÓ!!!), laukur og hvítlaukur (þarna var ég farin að gráta). En þetta er byrjunarlisti, svo getur vel verið að ég þoli eitthvað af þessu þegar ég er komin í meira jafnvægi. En núna ætla ég að reyna að sneiða hjá þessu öllu í 4 vikur og setja svo eitt inn í einu til að finna mígreniþrjótana. Það er sko hægara sagt en gert, enda sykur/sætuefni/Eefni í öllum fjandanum og lítið gaman að sleppa lauknum! En ef það hjálpar verð ég bara að bíta í það súra epli (má það sko).

Þetta er nú það helsta úr Hlíðinni, sem er núna umvafin stillönsum svo sólin þarf ekkert að flýta sér að koma aftur!

ps. Fór á djammið á laugardaginn og sá sex (skrifað með bókstöfum svo ég komi upp í leitarvélunum haha) manneskjur í svart-hvít-röndóttum bolum! Er Daldónastemmningin málið í sumar? Spyr sú sem ekki veit.