Jájájá! Allt að gerast! Rúmar þrjár vikur í brottför og allt á hvolfi í hausnum hennar Önnu litlu. Ég fór á svo svaðalegt djamm fyrir 10 dögum síðan að mér finnst ég enn vera hálfvönkuð... Ástandið varð nefnilega allsvaðalegt þarna um tíma, ég held jafnvel að ég hafi skaðað einhverjar heilastöðvar varanlega. Varð veik í kjölfarið, fékk 40 stiga hita og ég veit ekki hvað og hvað. Skömminni skárra að gera það hér heldur en úti þar sem ég mun ekki hafa neinn til að gefa mér kaldan þvottapoka og taka glataðar myndir á leigunni fyrir mig (við erum að tala um Hillary Duff mynd!!), takk samt mamma mín. Ég fór svo vestur núna um helgina og kúrði hjá ömmu í nokkra daga, mikið var það nú gott. Fór í skírn hjá frænku minni og í kaffiboð en annars vorum við amma bara í rólegheitum að lesa (ég), prjóna (hún) og gagnrýna dagskrána á Rás 1 (við báðar). Skemmtilegast var þegar hún sendi mig í sendiferðir, þá fannst mér ég alveg verða 10 ára aftur... Ótrúlega spennt að labba í Bjarnabúð með innkaupalistann í höfðinu og rifja upp aftur og aftur bananar, kringlur, smjörkaka, mjólk og grár lopi til að klikka nú ekki á neinu ;)
Í borg óttans ríkir ekki sama afslöppunin og í sveitinni, hér var ég á fullu í síðustu viku að koma nýjum umsjónarmanni græna hússins inn í starfið en svo hætti hann bara við! Synd og skömm. Svo nú fer þessi vika í að koma nýjum umsjónarmanni græna hússins inn í starfið. Dejavú, anyone?? Svo er ég á netinu dag og nótt við að reyna að redda mér húsnæði tamtaramm. Komin með fínindis íbúð í sigtið og bíð nú bara eftir að hún verði skoðuð fyrir mig, mér sagt að hún sé frábær og að allt sé klappað og klárt.
Annars er það helst að frétta að ég er byrjuð í sjúkraþjálfun eftir langt hlé, best að reyna að koma skrokknum í lag! Ég var búin að gleyma hvað sjúkraþjálfarar eru ógeðslega vondir pyntarar, oj bara! Ég var gráti næst og heillengi að jafna mig og svo þarf ég að fara aftur í fyrramálið. Eins gott að þessi sadisti hjálpi mér eitthvað til lengri tíma séð, annars er þetta bara sorglegt.