mánudagur, ágúst 15, 2005

Jæja þá! Þetta var nú aldeilis fróðleg, skemmtileg og fáránlega erfið vika! Ertu að grínast, ég er alveg búin á því! Skrýtið að vera komin aftur á skrifstofuna eins og ekkert hafi í skorist. Ég er ekki alveg að skilja að heimurinn hér heima sé alveg eins og hann var áður en ég fór, það gerðist svo margt hjá mér en hér gerðist bara eiginlega ekki neitt :-)
Við vorum í algjörri einangrun þarna, ekki sjónvarp, engin dagblöð og ekki tölva og ég vissi stundum ekki hvaða dagur var. Reyndar hefði ég ekki haft neinn tíma til að fylgjast með atburðum líðandi stundar hvort sem ég, ég var svo upptekin af því að lifa vikuna af. Merkilegt að vera umkringdur söngvurum frá morgni kvölds og tala og hugsa varla um neitt annað í marga daga, mjög skemmtilegt en örlítið þreytandi á köflum. Við byrjuðum klukkan 8 á morgnana og kláruðum um 22 á kvöldin, ég var reyndar ekkert að syngja svo mikið en það tekur á að vera alltaf að meðtaka eitthvað nýtt og vera stressaður fyrir að þurfa að syngja seinna um daginn. Vil ekki þreyta ykkur með söngtali en þetta var mjög góð vika. Ég veit reyndar ekki hvort ég er eitthvað miklu betri söngkona núna en fyrir viku síðan en ég er allavega mikið meðvitaðri og ég lærði mikið um sjálfa mig á þessarri viku. Við vorum í heimavistarskóla (ekki ólíkum Hogwarts) á risastórri landareign og fórum ekkert út af henni nema rétt til að stökkva út í búð og kaupa vatnsflöskur. Risastórar máltíðir þrisvar á dag (smá breyting frá 6 litlum máltíðum) og allt steikt og brasað. Jakk, ekki alveg maturinn fyrir minn maga. Ég kynntist fullt af fínu fólki en það kom mér mjög á óvart að ég var bæði í eldri og feitari kantinum! Þetta voru ógurlegar dúkkur upp til hópa :-)
Þau litlu samskipti sem ég átti við heimahagana fóru fram með sms-sendingum og þrátt fyrir að þær hafi verið fáar voru þær mjög merkilegar! Ég frétti til dæmis í gegnum sms að Ryan Philipe væri á landinu, að samstarfsmaður minn væri kominn út úr skápnum og að ég hefði eignast litla frænku. Svo fékk ég sms frá gaurnum sem ég 'kynntist' á Kaffibarnum um daginn þar sem hann viðurkenndi fyrir mér að hann er aðeins yngri en hann sagðist vera. Mjög undarlegt sms, af hverju í ósköpunum ætti mér ekki að vera sama? En vonandi líður honum betur í samviskunni sinni...híhí ;-)
Allavega. Ég er komin heim í Heiðardalinn, til í að tækla 2 erfiðar vinnuvikur og undirbúa kveðjupartý!!! Meira um það síðar.