Mér finnst eins og öllum finnist ógeðslega fyndið að ég sé að fara í tómstundafræði. Kannski af því að enginn veit hvað það er... Eða líka finnst mér eins og fólk haldi að þetta sé eitthvað svona hálf-háskólanám sem er bara eitthvert gant. Ég er samt ansi spennt að byrja og sjá hvernig þetta er uppbyggt, ég veit allavega að kennslubækurnar eru mjög spennandi. Þær kostuðu alveg 20 þúsund krónur svo það er eins gott að þær verði opnaðar amk tvisvar fram að upplestrarfríi ;-)
Hitti Hörð rétthyrning í Bóksölunni og áttum við súrar samræður við bílastæðið. Ég held að honum finnist ég ekki eins fyndin og mér finnst hann... En það geta ekki allir verið vinir :-)
Sótti myndir úr framköllun og komst að því, mér til mikillar skelfingar, að ég er með gömlukallamaga. Sú uppgötvun orsakaði alveg 20 mín þunglyndi þar til ég mundi að þunglyndi getur valdið átkasti -tröstespisning- sem gæti aukið á gömlukallamagann svo ég hætti því bara. Sótti líka pilsið úr hreinsun og það er bara alveg jafn hvítt og áður og myndirnar enn á sínum stað! Mun Jói því ekki lengur vera þekktur sem Asna-Jói (í bili allavega...).
Ég er að fara í söngtíma nr.2 til Gunnars, nýja söngkennarans míns, á eftir. Fyndið að fara svona í fyrsta söngtímann til einhvers, það er eiginlega eins og læknisskoðun; 'Nú ætla ég að prófa þetta' 'Nú skulum við sjá efra raddsviðið' 'Mig langar að athuga neðra sviðið þitt' og svo framvegis. Og maður er geðveikt að vanda sig til þess að kennaranum finnist maður góður nemandi og vilji kenna manni áfram... Svo líður tíminn og eftir 2 mánuði kemur í ljós að maður er glataður nemandi en þá getur kennarinn ekkert gert. Múhahaha!