miðvikudagur, ágúst 29, 2007

Fult ad vera fullordin

Mer skilst ad thad fylgi tvi ad fullordnast ad bera abyrgd a gjordum sinum. Thad vill svo heppilega til fyrir mig ad oftast er thad bara gaman, thar sem gjordum minum er yfirleitt tekid vel af samborgurum minum. Thad vill tho til ad eg geri slaema, heimskulega eda vanhugsada hluti, otrulegt en satt (!), eda hluti sem adrir eru osattir vid og tha getur verid surt ad taka afleidingunum.
I dag vard eg ad taka a honum stora minum og vidurkenna fyrir vinkonu minni ad eg kom illa fram vid hana fyrir nokkrum manudum. Og er eiginlega enn ad tvi. Fyrir einhverjum arum hefdi eg sent henni imeil eda latid hana fretta thad einhvernveginn, en thad dugir skammt. Thegar madur er kominn hatt a thritugsaldur verdur madur vist ad ‘feisa’ malin. Thad er omurlegt ad valda folki vonbrigdum og bregdast trausti thess og ad sitja undir skommum sem eiga algjorlega rett a ser er otrulega erfitt. Thad er skitt ad vera vondi kallinn og eg aetla ekki ad gera thad aftur i brad.

föstudagur, ágúst 24, 2007

I know you like to think your shit don't stink...

Eg held ad akkurat hid andstaeda eigi vid Saeberg! Hann er allavega alveg hardur a tvi ad i tveggja svefnherbergja ibudinni okkar verdi ad vera tvo badherbergi (lesist: Tvo klosett, tvaer sturtur og tveir vaskar med tilheyrandi veggjum og hurdum). Thannig ibudir vaxa nu ekkert a trjanum eins og eg er ad komast ad nuna i ibudarleitinni miklu. Og thaer eru dyrar. Hmm audvelt ad vera med krofur thegar madur er ekki sa sem tharf ad standa i leitinni! En thetta kemur i ljos. Annars getur verid ad thad se mikid feilspor ad aetla ad bua med Saeberg...eg sagdi honum fyrr i vikunni ad eg vaeri enn kvefud og hann sagdist hafa lesid bloggid mitt og ad thad vaeri ljost ad eg hefdi spredad roddinni i fylleri EINS OG VENJULEGA!! Af tvi eg er svo rosalegur djammari nefnilega! Fekk pinu flash inn i framtidina og sa mig bara bua med pabbaeftirlikingu! Sem mun skamma mig thegar eg kem seint heim og svo videre. Reyndar haetti pabbi tvi fyrir 10 arum svo thetta verda mikil vidbrigdi, kannski thad kalli fram 17 ara Onnu aftur?? En thad er su Anna sem Saeberg kynntist fyrst svo hringnum verdu amk lokad!!!

En eg er allavega komin til Rottuborgar! Helgin verdur tekin i ad na ur mer kvefinu, leita ad ibud og finna studio og verkefni fyrir naesta vetur. Ekki enn komid i ljos hvort eg verd ad flakka milli Islands og Rottuborgar i vetur. Thetta er allt ad mondlast.

Knuses pa linien!

sunnudagur, ágúst 19, 2007

Komin að vestan eftir mikla afslöppun og ömmumat. Ég hafði hugsað mér að lesa mikið en svo var ég bara allt í einu farin að hekla! Heklaði eins og vindurinn í 2 daga og er komin langt með gríðarmikið söngkonusjal. Þetta getur maður, kominn á gamals aldur! Eðal að sitja við hannyrðir með ömmu og hlusta á Rás 1, það gerist ekki mikið betra en að vera nokkra daga í Víkinni góðu.

Ég kom heim í gær og tók þátt í smá menningu og svo hellings ómenningu síðar sama dag. Hlustaði á Eddu syngja í Sævari Karli, fyrsta skipti sem ég heyri hana syngja. Öfundaði hana ekki af því að syngja meðan fólk var að versla og spjalla allt í kring um hana, en hún stóð sig vel stúlkan. Svo fór ég í vinnupartý (sem ég vil segja að hafi verið kveðjupartý fyrir mig, en það er aukaatriði). Þrátt fyrir frekar dræma mætingu var mikið stuð og eins og alltaf gerist í vinnustaðapartýum var vinnustaðurinn endurskilgreindur og allt innra skipulag bætt svo um munar. Hér má sjá hvað það var mikið stuð:


Helga gestgjafi og Ingi Jón forstöðumaður


Ásgeir að leika mig á sviði, mér til ómældrar gleði en Helgu S greinilega til furðu!

Eftir partýið fórum við Helga S og Eva mín á Ólíver og dönsuðum við SNILLDARtónlist þar til okkur var fleygt út (vegna þess að það var verið að loka sko). Edda var líka á svæðinu og sló met í að reyna við lúðalega gaura, okkur til mikillar hrellingar. Það var þó alveg sama hvað við sögðum, hún haggaðist ekki í staðfestu sinni og var viss um að við værum bara afbrýðisamar ;o) Í bænum var varla þverfótað fyrir brotnum flöskum og glösum og bara almennum viðbjóði. Fullt, fullt af fólki í bænum og gríðarlegt fjör á því fólki sem enn var með meðvitund. Við ákváðum að rölta bara heim á leið í stað þess að hætta okkur í geðveika taxaröð og vorum svo heppnar að hitta leigubíl sem vildi okkur. Við Eva hefðum nú léttilega haft það heim svosem, en Helga býr í Grafarvogi og var því mikið glöð.

Dagurinn í dag hefur farið í leti og hekl (verð amk að reyna að klára áður en ég fer!) en svo hefst mikil dagskrá á morgun og þar til ég fer. Það verður ekki eins mikið stress og ég hélt þar sem ég frestaði útför um 2 daga vegna vinnumála. Það er ýmislegt í potthorninu á því sviði og mun ég greina nánar frá því þegar allt er komið á hreint... durum...durum...

sunnudagur, ágúst 12, 2007

Tilkynning! Tilkynning!



Goggur á bara 6 (SEX!) laus kvöld eftir í Reykjavíkurborg! Eftir það verður hann ekki sjáanlegur á götum þess bæjar í fjóra (FJÓRA!) mánuði! Þetta fína tilboð um félagsleg samskipti rennur því mjög fljótlega út og mælt er með því að fólk grípi gæsina á meðan hún gefst volg beint úr ofninum. Annars mun ég eyða tíma mínum öllum með Evu systur (as pictured above) og þrátt fyrir að hún sé bæði skemmtileg og þolinmóð, myndi hún fá alveg nóg af mér!

You have been warned.