Komin að vestan eftir mikla afslöppun og ömmumat. Ég hafði hugsað mér að lesa mikið en svo var ég bara allt í einu farin að hekla! Heklaði eins og vindurinn í 2 daga og er komin langt með gríðarmikið söngkonusjal. Þetta getur maður, kominn á gamals aldur! Eðal að sitja við hannyrðir með ömmu og hlusta á Rás 1, það gerist ekki mikið betra en að vera nokkra daga í Víkinni góðu.
Ég kom heim í gær og tók þátt í smá menningu og svo hellings ómenningu síðar sama dag. Hlustaði á Eddu syngja í Sævari Karli, fyrsta skipti sem ég heyri hana syngja. Öfundaði hana ekki af því að syngja meðan fólk var að versla og spjalla allt í kring um hana, en hún stóð sig vel stúlkan. Svo fór ég í vinnupartý (sem ég vil segja að hafi verið kveðjupartý fyrir mig, en það er aukaatriði). Þrátt fyrir frekar dræma mætingu var mikið stuð og eins og alltaf gerist í vinnustaðapartýum var vinnustaðurinn endurskilgreindur og allt innra skipulag bætt svo um munar. Hér má sjá hvað það var mikið stuð:

Helga gestgjafi og Ingi Jón forstöðumaður

Ásgeir að leika mig á sviði, mér til ómældrar gleði en Helgu S greinilega til furðu!
Eftir partýið fórum við Helga S og Eva mín á Ólíver og dönsuðum við SNILLDARtónlist þar til okkur var fleygt út (vegna þess að það var verið að loka sko). Edda var líka á svæðinu og sló met í að reyna við lúðalega gaura, okkur til mikillar hrellingar. Það var þó alveg sama hvað við sögðum, hún haggaðist ekki í staðfestu sinni og var viss um að við værum bara afbrýðisamar ;o) Í bænum var varla þverfótað fyrir brotnum flöskum og glösum og bara almennum viðbjóði. Fullt, fullt af fólki í bænum og gríðarlegt fjör á því fólki sem enn var með meðvitund. Við ákváðum að rölta bara heim á leið í stað þess að hætta okkur í geðveika taxaröð og vorum svo heppnar að hitta leigubíl sem vildi okkur. Við Eva hefðum nú léttilega haft það heim svosem, en Helga býr í Grafarvogi og var því mikið glöð.
Dagurinn í dag hefur farið í leti og hekl (verð amk að reyna að klára áður en ég fer!) en svo hefst mikil dagskrá á morgun og þar til ég fer. Það verður ekki eins mikið stress og ég hélt þar sem ég frestaði útför um 2 daga vegna vinnumála. Það er ýmislegt í potthorninu á því sviði og mun ég greina nánar frá því þegar allt er komið á hreint... durum...durum...

<< Home