sunnudagur, júní 24, 2007

Murder on the dancefloor

Ætlaði út í eins og einn öl í gærkvöldi en endaði á dansgólfi Vegamóta, ef dansgólf skyldi kalla. Ég er greinilega alveg komin úr æfingu því ég var aldeilis ekki að haga mér samkvæmt óskráðum íslenskum djammreglum! Ég rifjaði upp þær helstu og ef einhver stúlka skyldi vera eins mis og ég, skelli ég þeim hér:

1. Þér má finnast gaman að dansa en það má ekki sjást. Alls, alls ekki! Stútur á munni og frekar pissed off svipur er málið, þú ert eiginlega of svöl til að dansa en lætur þig hafa það. Passaðu að hafa augun sífellt á hreyfingu við að skanna svæðið svo það sé ljóst að þú sért að leita, hvort sem það eru sætir strákar, allir vinirnir sem þú átt, eða DJinn sem þú vilt.
2. Þú mátt, undir engum kringumstæðum, dansa skringilega. Skrýtin spor sem þér finnast fyndin eru ekki í boði. Það er enginn fíflagangur hér!!! Hlidar saman hliðar í mesta lagi, en annars bara mjaðma- og nettar handahreyfingar.
3. Ef strák líst vel á þig mun hann dansa þétt upp við bakið á þér og nudda rassi sínum við bakið á þér. Ef þú hristir þig á móti mun hann snúa sér við og dansa upp við þig svo þú fáir að finna fyrir því sem hann hefur upp á að bjóða... Ef þér líst vel á það sem stingst í bakið á þér snýrð þú þér að honum og þið eruð komin með díl. Ef ekki dansar hann bara í burtu og byrjar að rassahristast utan í eitthvað annað bak.

Í stuttu máli var ég semsagt bara eins og fífl í gær! Klædd í vitlaus föt, dansaði bandvitlaus spor, horfði á fólkið sem ég var með og var ekki að fíla rassa upp við bakið á mér. En ég skemmti mér alveg hreint konunglega! ;o)