Skotar láta sko ekki að sér hæða

John Smeaton, flugvallarstarfsmaður, var úti að reykja þegar bensínsprengjufylltur jeppi keyrði á flugvöllinn í Glasgow. John ákvað að tékka á því hvað væri í gangi og þegar hann kom nær sá hann að um hryðjuverk væri að ræða. Einn farþeganna stökk útúr bílnum og reyndi að berja á lögreglumanni, vopnaður bensínsprengju og hrópandi Allah, Allah! en John var sko ekki á því. Hann stöðvaði gæjann með einni nettri handasveiflu og þar með náði sá flótti ekki lengra. Já, Rottuborgarbúar láta sko ekki einhverja terrorista komast upp með múður. Þeir eru bara negldir niður eins og aðrir sem eru með skrílslæti á götum úti. John Smeaton er bara töff! Hann er nú þegar orðin mikil hetja í Rottuborg og munu frasar eins og: It's like when you throw a can of deodorant on a bonfire, except bigger. Og: This is Glasgow. We'll set about ye vafalaust verða lengi í minnum hafðir. Á þessari síðu, og þessari má lesa um hans afrek og sjá klippur úr fréttunum. Ég mæli sérstaklega með CNN viðtalinu. Að gamni má geta þess að við Johnny erum alveg með sama hreiminn!

<< Home