þriðjudagur, febrúar 26, 2008

On the road again...
Held af stad i tonleikaferdalag a morgun, 6 tonleikar a 3 dogum, thar af 3 a einum degi! Veit ekki alveg hvernig eg aetla ad lifa thad af. Thetta eru allt tonleikar fyrir heldri borgara og tho svo ad margir theirra seu frabaerir aheyrendur, tha segir mer svo hugur af lysingum af heimilinum ad thetta verdi meira svona folk sem situr og hlustar an thess ad horfa a mig og an thess ad gefa mikid af ser. Tha reynir a mig ad segja brandara og reyna ad spjalla og dansa og syngja af miklum mod til ad virkja lidid og thad getur alveg tekid a. En thetta verdur orugglega hin skemmtilegasta ferd! Og til fjar, thad skemmir ekkert. Ad henni lokinni fer eg svo til London i einn dag til ad hitta Leuh vinkonu sem verdur thar i brudkaupsferd. Vid hofum ekki sest i 2 ar eftir ad hafa verid algjorar samlokur fyrsta arid mitt her, svo spennan er ansi mikil sitthvoru megin vid hafid nuna.
Svo verd eg her i Rottuborg i 2 vikur, syng tonleika, fer a tonleika og dulla mer eitthvad adur en eg kem heim thann 16.mars! Verd heima i heilar tvaer vikur. Fer eitthvad vestur til ommu en annars held eg ad dagarnir munu fljuga hja vid ad skoda ibudir (3 vinkonur fluttar sidan um jol) og nyja fraendur (3 faeddir sidan um jol). Svo verdur audvitad ad halda upp a afmaelid, tho svo ad thad se ekkert adhlatursefni ad verda 28 ara. Hvad tha 28 ara en thurfa ad spyrja mommu hvort madur megi halda party.

sunnudagur, febrúar 24, 2008

Odruvisi mer adur bra

Eyddi gaerkvoldinu i Edinborg, sem er ekki frasogu faerandi nema kannski fyrir frabaeran felagsskap, ljuffengan mat og skemmtilega operusyningu. Ad syningu og nokkrum drykkjum loknum vorum vid ad labba i bilinn og eg ad senda sms til Irans mins, ad velta tvi fyrir mer hvort hann vaeri enn til ad hittast og elda saman sunnudagssteik. Fra honum fekk eg thetta svar:

Was opera good? Still on for tomorrow. Fuck or cinema? Your shout! X

Hm. Ok. Thad svona nett fauk i mig, enda ekki beint romantiskasta ordalagid og einnig thottu mer thetta frekar undarlegir valkostir. Eg sendi um hael:

EXCUSE ME?!?!

Og fekk sms til baka a methrada:

Oops so so sorry, you know that meant to say duck!! Would NEVER be so crude! So, so sorry my darling! I'll try again, duck or cinema?!!

Hann var semsagt bara ad spyrja hvort eg vildi elda eitthvad fljotlegt og fara i bio, eda andarsteik i rolegheitum... Blessi hann. Og blessi ordabokina i farsimum.

fimmtudagur, febrúar 21, 2008

Eg dro sambylismanninn med mer a pobb i gaerkvoldi til ad horfa a fotboltaleik. Thad tok hann sma stund ad atta sig a tvi ad Irinn var ekkert med i radum, heldur var thad bara eg sem vildi fara ad hofa a fotbolta umkringd sveittum kollum. En hann trudi mer ad lokum og vid heldum a einn af oteljandi hverfispobbum, Red Lizard. Thar var vel pakkad og agaetis stemmning. Celtic var semsagt ad keppa vid Barcelona, fyrir tha sem er ekki inni malunum. Vid fengum okkur bjor og saeti fyrir rest en einhvernveginn var eg ekki alveg ad komast inn i leikinn. Eg er bara voda litil bolta-glaps-kona nema Island eigi hlut ad mali, eda bara eitthvad land/lid sem mer er ekki alveg sama um. En mig langadi bara ad komast ut ur husi svona einu sinni, thad brennur svolitid vid thessa dagana ad eg er annadhvort ein a hotelherbergi, heima ad horfa a sjonvarpid eda heima hja Iranum ad horfa a tolvuna a kvoldin. Allavega, til ad gera leikinn adeins meira spennandi akvadum vid sambylismadurinn ad vedja um thad hvort Eidur yrdi settur inna. Ad vedi var pizza og bjor og eg var nokkud viss um ad thad yrdi enginn glokollur Spanverjamegin. Svo helt leikurinn afram og eg dundadi mer vid ymislegt an thess ad mikid baeri a; taldi kalla sem komu ut af klosettinu of fljott til ad hafa mogulega geta thvegid ser um hendurnar (7), stelpur sem voru a pobbnum i theirri von ad Celtic tapadi og orvingladir menn myndu kasta ser i fadm theirra (2), gaura sem er alveg sama um fotbolta en vilja falla i hopinn (11) og gaura sem voru dregnir a pobbinn af kvenmanni (1-sambylismadurinn). 87 minutur lidnar af leiknum og eg farin ad hugsa um hvernig pizzu mig langadi i... parmaskinku, gradost, sveppi, chilli... og pint of stella with lime. En nei!!!! Kemur tha ekki madurinn valhoppandi af gledi inna vollinn thegar tvaer minutur eru eftir af leiknum!!! Og til hvers i andskotanum? Atti hann ad koma galvaskur og skora 4 mork? Eda var bara verid ad frida einhverja samvisku? Eg er sko ekki satt. Sambylismadurinn segir ad glokollur hafi fengid vaena upphaed fyrir thessar 2 minutur, svo naesta skref er ad redda mer imeil adressunni hans og lata hann vita ad hann skuldi mer pizzu og bjor.

mánudagur, febrúar 18, 2008

Auditionid a fostudaginn gekk mjog vel! Gaman ad geta sagt fra tvi til tilbreytingar, thad gekk eins vel og thad hefdi getad gengid thann dag. Bara gaman og nu er spennandi ad sja hvort eitthvad kemur ut ur tvi.

Eg var i sma vandraedum med ad akveda i hverju eg aetti ad vera daginn adur, thad var nefnilega sma feitudagur a heimilinu. Eg matadi kjola fyrir Irann sem hafdi tekid ad ser ad vera serlegur radgjafi. Hann fekk mig til ad mata kjol sem eg hef eiginlega lagt tvi hann er of 'adfallandi' og sagdi ad tvi tilefni: 'I don't know what you're talking about darling, I think this dress does wonders for your figure!' Hann var rekinn a stadnum og tiskusyningunni var lokid. Blessi hann.

En i kjol (odrum kjol) song eg og var satt, eignadist nyja vinkonu (eftir ad vid komumst ad tvi ad vid vorum ekki ad saekjast eftir sama hlutverkinu) og for svo heim a hotel. Thar var eg svo naestum i heilan solarhring tvi thad helltist yfir mig thetta lika svakalega kvef. Gaeti verid seinni hlutinn af veirunni sem eg var med um daginn (raudu hundarnir sem voru ekki raudu hundarnir), eda bara syklarnir i London. Hotelherbergid var svo svadalega rikulega utbuid af gluggum og svalahurdum og finerii ad mer vard um og o thegar eg kom inn, og enn meira svo thegar eg fann ad enginn theirra lokadist! Eg svaf thannig eina nott en for daginn eftir i mottokuna og kveinkadi mer mjog kurteislega vid mottokudomurnar. Eg fekk engin vidbrogd. Thad vill oft brenna thannig vid finnst mer thegar stelpur a minum aldri afgreida mig, thaer eru ekki donalegar en alls ekki kurteisar; svona nett med nefid upp i loft og ekkert ad spreda i mann brosunum eda kurteisiskvedjum. Allavega, eg sagdist skilja ef thaer gaetu ekki gefid mer annad herbergi. Thaer horfdu enn a mig tomar a svip. Eg spurdi hvort thad vaeri haegt ad setja eitthvad fyrir gluggana. Engin vidbrogd, ekki einu sinni auga deplad. Eg spurdi hvort thad vaeri ad minnsta kosti haegt ad gefa mer auka-saeng svo eg laegi ekki skjalfandi, en fullklaedd, i ruminu alla nottina. Eg fae nog af tvi heima hja mer! (Sagdi thad ekki, en va hvad thad er satt) Tha loksins stundi onnur theirra med miklum leikraenum tilburdum og augnarulli: 'Jaja, eg get svosem athugad hvort eg finni einhversstadar saeng' Auka saeng? A hoteli? Gud, hverjar eru likurnar a tvi? En eg brosti minu blidasta og thakkadi kaerlega fyrir: Really? That would be great! Thank you so much, I really appreciate your troubles! Svo valhoppadi eg ut med pukasvip a vor: A thessu attirdu ekki von beljan thin!
Eg get ekki orda bundist yfir tvi hvad gotur Rottuborgar eru ogedslegar. Her er allt i hraka ut um allt. Hvad er malid med thad? Eg get talid skiptin a fingrum annarrar handar thegar eg hef ordid ad hraekja a gotuna, og yfirleitt tengdist thad reykingum og/eda drykkju. Hm. Her hraekir annar hver madur i tridja spori og goturnar eru blautar eftir tvi. Hrollur... Tyggjoklessur eru lika thad algengar ad stundum eru gangstettarnar jafn hvitar og thaer eru graar. Samt er nog af ruslafotum ut um allt, thad vantar ekkert. Hundaskitur er audvitad vida eins og storborg saemir og a vel voldum stodum ma sja storknad blod, serstaklega a sunnudogum. Um helgar er lika mikid um aelupolla a gotum borgarinnar, tha er veisla hja dufunum.
Thad sem er svo storkostlegast vid thetta allt saman er ad her er thad undantekning ef folk fer ur skonum vid ibudarhurdar. Flestir rolta um husin sin, sem eru morg hver teppalogd, i somu skonum og their voru i a thessum finu gotum. Splendid innit?

þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Gigg Gigg Gigg

Thad er svo mikid ad gera! Thad er aedi! Audition i fyrradag, gigg i morgun, 2 gigg a fimmtudag, stort audition a fostudag (strauma takk!) og svo London um helgina.

Song i Cineworld bioinu i morgun! Thar eru reglulega syndar beinar utsendingar fra Metropolitan operuhusinu og thetta var fjolmidlakynning a tvi. A svaedinu voru bladamenn og operuunnendur ymsir. Eg song i biosal, sem var pinu mis af tvi ad thar er ekkert bergmal (saetin gleypa thad allt) og ekkert ljos! Notnaflettarinn vard sko ad halda a vasaljosi svo pianistinn, sem spiladi a litid hljombord, gaeti sed noturnar! Hihi. En eg fekk kaffi og frimida a allar syningarnar ad launum, svo thessi surrealiska upplifun var vel thess virdi.

Eg er med pinu ahyggjur af bolum sem eru ad spretta upp um mig alla. Helt fyrst ad thaer vaeru skordyrabit en thar sem thaer halda bara afram ad birtast er mig farid ad gruna ad eg se komin med rauda hunda eda eitthvad... Getur thad verid? Veit ekki hvort er verra; ad vera med barna-sjukdom 27 ara eda med flaer i ruminu minu. Veit bara ad eg hef ekki tima til ad vera veik!

laugardagur, febrúar 09, 2008

Punkta-blogg
...til ad koma sem mestu a blad!

# Migrenishelvitid er ad gera mig grahaerda og lifsgaedi min ad engu. Nu er thad farid ad vekja mig a nottunni med skerandi verk og tilheyrandi blindu og lomun i utlimum. Eg lifi ymist i sarsauka eda lyfjamoki thessa dagana.

# Komst loks til laeknisins sem vildi setja mig aftur a hjartalyfin. Eg akvad ad profa fyrst nyja pillutegund af tvi ad thad ad taka eina tegund af lyfi sem er kannski bara ad leidretta annad lyf hljomar ekki mjog skynsamlega.

# Thegar eg kom heim akvad eg ad lesa nu baeklinginn med pillunni, thar sem eg hef ekki fengid nyja tegund i morg ar. Gaman ad sja hvernig thessi tegund a ad koma i veg fyrir ad eg verdi olett. Algengar aukaverkanir eru skapsveiflur, thyngdaraukning, oreglulegar blaedingar, bolur og minnkud kynkvot. Thessi pilla kemur semsagt i veg fyrir olettu med tvi ad koma i veg fyrir moguleikann a kynlifi. Snjallt!

# Eva litla atti afmaeli fyrradag og er hun ordin kvartaldar gomul, otrulegt en satt! Hun flutti ad heiman i afmaelisvikunni og mer thotti skondid thegar hun sagdi ad mamma hefdi bodid ser i afmaelismat! Greinilega buin ad bida ansi lengi eftir ad geta tekid svo til orda blessunin ;o)

# Namskeidid i Irlandi gekk vonum framar. Krakkarnir voru yndislegir og eg fekk ad rifja upp hvad mer finnst otrulega gaman ad vinna med bornum. Thau heldu tonleika sidasta daginn og heyrnarlausu unglingarnir sungu og taknudu Goda mamma! Thad var algjor snilld! Blindi hopurinn song 2 ensk log og their sem hofdu fengid einkatima hja okkur sungu einsong. Eg var eins og stolt ungamamma, med tarin i augunum.

# Eg laerdi ad keyra vinstra megin og gekk thad bara glimrandi vel, eftir fyrsta halftimann sem var mjog stressandi. Fyndnast var thegar eg var buin ad vera lengi a hradbraut og thurfti ad gira nidur, tha lamdi eg haegri hondinni alltaf hressilega i hurdina. Eins gott ad hafa hugann vid verkid...

# Mer finnst eg i fyrsta skipti med rettu getad kallad mig songkonu af tvi ad nu get eg i fyrsta skipti lifad af tvi bara ad syngja! Thad er bara meirihattar og LONGU timabaert ;o)

sunnudagur, febrúar 03, 2008

Fyrirgefid fjortan sinnum kaeru lesendur (aka Eva og Mamma)!
Eg er bara a alltof miklu flakki til ad blogga! Kom fra Irlandi a midvikudagskvold, flaug til London i gaermorgun og er a Stansted nuna, a heimleid. Flyg svo aftur til Irlands a morgun og kem til Rottuborgar seint a midvikudagskvold. Eg lofa ad skrifa eitthvad a fimmtudag, thad er amk af nogu ad taka eftir thessi oskop oll.
Ferdalangurinn er threyttur, med beyglad bak og pinu skakkur af migrenilyfjum, en allt gengur ljomandi vel! Helsta umkvortunarefnid, ef eg tharf ad finna eitthvad, er ad mer leidast flugvellir alveg ogurlega mikid.
Risaknus i snjoinn, eda er hann farinn??