Ég held svei mér þá að það sé bara komið sumar! Ég er allavega komin á hvíta strigaskó og pils í tilefni hækkandi sólar og komandi helgi. Ekki það að ég verði liðtæk í tjúttinu um helgina, próflestur og vinna á döfinni... En það má nú dressa sig upp fyrir því ;) Og, OG! Fór út að hlaupa í gærmorgun kl.6! Ok, kannski ekki hlaupa... en ég skokkaði! Mér finnst það einhvernveginn miku merkilegra en að fara í ræktina enda er þetta slatta erfiðara. Ánægð með mig núna sko!
Er búin að vera hrikalega leiðinlegur yfirmaður í vikunni, á námskeiðum eða fundum allan daginn en mæti svo í lok dags til að taka fólk fyrir. Believe it or not þá á ég mjög erfitt með að skamma fólkið mitt. Kvíði fyrir lengi á undan og er með hnút í maganum. En það tilheyrir víst, svona til að halda starfinu góðu. Var reyndar á fantafínu námskeiði í aðferðum til að efla félagshæfni einhverfra og þar lærði ég meðal annars að greina líðan á nokkuð nákvæman hátt. Ef einhver hefur áhuga á því myndi ég segja að akkúrat núna væri ég svona 7,5 glöð, 6 áhyggjufull, 9,5 montin og bara nokkuð græn í hegðun.