Áskorunin fór fram í gær og þungu fargi er af mér létt. Þannig er mál með vexti að húsið 'mitt' -grænahúsið- skoraði á hin húsin (gula og rauða) í gær. Við mættum til þeirra eftir vinnu og kepptum í ýmsum þrautum. Yfir þessu hvíldi mikil leynd og við í græna vorum mjög dugleg að undirbúa okkur... hinir kalla það að svindla en við höldum fast í það að þetta hafi bara verið mjög góður undirbúningur. Til allrar hamingju voru allir í góðu stuði og skemmtu sér hið besta þrátt fyrir rigningu og kulda. Keppt var í actionary, ógeðismatsáti og ógeðisdrykkjadrykkju, bjórsmökkun og bjórþambi. Liðin áttu líka að búa til boli og fána, kunna nöfnin á starfsmönnum hinna húsanna og semja fallegt ljóð um liðsmennina. Ég verð að segja að græna húsið stóð sig langbest í þessum þrautum og ég var mjög stolt af mínu fólki! Til stóð að keppt yrði í sultukasti, þar sem það lið sem hitti meiri sultu á yfirmann sinn myndi vinna en sú keppni var felld niður. Ég var hálfsvekkt, ég er alveg til í leyfa fólki að grýta í mig sultu... Ef það eflir starfsandann það er að segja ;) Fólk var orðið frekar skrautlegt ansi snemma kvölds, nema ég sem bragðaði ekki dropa! Dugleg ha? Var að gaula frá 10 til 18 í dag og annað eins framundan á morgun svo þá er ekki hægt að vera í einhverju brennivínssulli, ó nei! Þá er það bara snemma í rúmið í sokkum og með trefil hmmm
laugardagur, apríl 09, 2005
Previous Posts
- Teknótæfan Ég er ekkert smá tæknileg núna! Sit við...
- Gömul og þunn en hamingjusöm...eru þau orð sem bes...
- Áður auglýstum hátíðarhöldum sem fram áttu að fara...
- Ég lýsi hér með frati á málshætti ársins. Ekki ver...
- Smá update úr sveitinni... Brjálað að gera sko, eð...
- Ég finn á mér...Ég get ekki sofnað vegna þess að é...
- 3 kreisí dagar framundan. Blessuð börnin í páskafr...
- Fór í ræktina áðan og var eitthvað að dúlla mér í ...
- Tíminn líður hratt á gervihnattaöld... Já, það er ...
- Ég er alveg ekki að fatta að það sé þriðjudagur í ...

<< Home