Ég finn á mér...
Ég get ekki sofnað vegna þess að ég hef á tilfinningunni að eitthvað slæmt sé í þann mund að fara að gerast.
Þar sem ég er þeirrar skoðunar að þegar maður 'finnur eitthvað á sér' sé það eitthvað sem maður veit að er að fara að gerast en vill ekki viðurkenna það fyrir sjálfum sér, er ég búin að velta því fyrir mér fram og tilbaka hvað það getur verið sem er að naga undirmeðvitundina mína. Mér dettur bara ekkert í hug. Það er ekki þar með sagt að ég lifi lífi án vandamála og áhyggna, langt því frá! Það er bara ekkert sem ætti að vera að bögga mig eitthvað meira núna en venjulega.
Mig langar að sofa.

<< Home