föstudagur, mars 11, 2005

Úrslitakvöldið í Ædol runnið upp og ég hef fulla trú á því að rétt gella hljóti titilinn. Á meðan kosningin fer fram er sýndur nýr íslenskur leikinn þáttur. Afsakið, en hvað er málið með það að Íslendingar geti ekki búið til leikið sjónvarpsefni? Það verður alltaf afkáralegt, sama hvaða nafn er skráð fyrir því. Ofleikur anyone???

Annars er það helst í fréttum að ég mun leggja land undir fót í fyrramálið. Ferðinni er heitið til Austurlands og verður það vafalaust áhugavert. Þar sem ég er að fara að heimsækja 50% lögreglumanna á vakt í umdæminu þessa helgi verður ekki dekrað við mig frá morgni til kvölds. Hrgmf! Ég ætla mér hins vegar að nota tækifærið og heimsækja hana Svövu mína á Seyðisfjörð. Og misnota um leið aðstöðu mína gróflega og brjóta umferðarlög á leiðinni ;) Það eina sem er ekki á dagskrá helgarinnar er að vinna eða hugsa um vinnuna. Og að rekast á kunningja á förnum vegi, það eru víst litlar líkur á því. Eða fara á brjálað tjútt. Eða fara í bíó. Eða... Jæja, ég er hætt áður en heimboðið verður dregið til baka eða ég hætti við :) Góða helgi allesammen!