Við Dagný kíktum á kaffihús í gærkvöldi. Merkur áfangi þar sem ég hef ekki farið á kaffihús síðan ég veit ekki hvenær og ekki hitt Dagnýju í ár og daga. Á meðan við sátum og spjölluðum frá okkur allt vit voru óperugestir að týnast út af 2.sýningunni á Toscu. Vá, hvað ég hlakka til að sjá hana! Allt fína fólkið í pelsunum með silfurhárið gerði ekkert til að slá á tilhlökkun mína og það dró heldur ekkert úr henni við að sjá Toscu sjálfa labba framhjá! Ég sagði samt Dagnýju ekki frá þessari tilhlökkunarbylgju sem helltist yfir mig. Ég held að hún myndi hlæja að mér... ;-)
mánudagur, febrúar 14, 2005
Previous Posts
- Vertu velkominn mánudagur! Ég fagna þér og býð þér...
- Ég gerði merka uppgötvun í dag! Ég fór í Sóma og k...
- Ég þoli ekki Valetínusardaginn! Mér finnst hann as...
- Ég á svo bágt...Í þessum skrifuðum orðum eru allir...
- Hvað er málið með morgunþætti í útvarpinu? Í alvör...
- Til hamingju með afmælið í gær snuckilein!
- HRGMF Eyddi sprengideginum í rúminu og sófanum á ...
- Það er ótrúlega mikill föstudagur í mér í dag! Ég ...
- Sumir hafa meiri tíma en aðrir... ...eins og sést...
- Þar sem ég er komin með nett ógeð á skyr.is drykk ...

<< Home