föstudagur, mars 18, 2005

Tíminn líður hratt á gervihnattaöld...

Já, það er víst nokkuð til í því. Ég fékk nett áfall í morgun þegar ég áttaði mig á því að:

- Í dag eru 2 vikur þar til ég verð 25 ára -TVÆR VIKUR !!!
- Í gær var einn mánuður í frumsýningu óperunnar Cosí fan tutte í Ými
- Eftir 2 mánuði eru burtfararprófstónleikarnir mínir
- Eftir 6 mánuði og 9 daga hefst skólaganga mín á erlendri grund

Hvernig í ósköpunum getur tíminn flogið svona frá manni? Mér finnst ég ekki hafa afrekað neitt á þessu ári og samt eru að koma páskar. Geschlumpfiger Schlumpf!