miðvikudagur, apríl 20, 2005

Hversu glatað er það að sitja inni þegar sól skín í heiði og allir í ísbíltúr og vinna yfirvinnu? Reyndar er það engum að kenna nema mér því ég er búin að vera algjör slúbbert í vinnunni upp á síðkastið. Það hefur ekkert komist að nema bara ópera ópera ópera. En nú er bara ein sýning eftir svo ég get farið að einbeita mér að skemmtilegri hlutum, eins og ráðningarsamningum og yfirvinnuútreikningum. Ha!
Frumsýningin gekk rosalega vel og önnur sýningin líka, þannig að álögunum hefur verið létt. Við fengum svakalega mikið hrós og allir eru í skýjunum með okkur. Mamma kom meira að segja á báðar sýningarnar, þannig að við erum varla svo hrikalega leiðinleg... Vonandi gengur þriðja og síðasta sýningin eins vel svo við getum fagnað af fullum krafti annað kvöld ;) Ég er búin að eiga marga góða gesti í sal Ýmis hingað til og held að það verði ekkert öðruvísi á morgun. Mikið er gott að eiga svona frábæra stuðningsaðila! Ég tala nú ekki um þegar fólk er tilbúið að krulla á manni hárið og strauja fyrir mann dívukjólinn þegar mikið liggur á, keyra alla leið frá Selfossi... nú eða koma fljúgandi austan úr óbyggðum :) Yndislegt fólk.