föstudagur, apríl 15, 2005

Í tilefni af Ungfrú Reykjavík keppninni sem haldin verður í kvöld er alltaf verið að sýna keppendur í sjónvarpinu. Í auglýsingunni segja þær nafn sitt, aldur og áhugamál. Það sem vekur athygli mína er að þær eru allar með mjög grand áhugamál, eins og stangveiði, mótorhjól, flug, hestamennsku... Þar er komin enn ein ástæðan fyrir því að ég verð aldrei Ungfrú Reykjavík ;)