Föstudagskvöld og einhenti eyminginn bara heima í rulighederne. Ekki að það sé eitthvað fréttnæmt í seinni tíð, maður er orðinn soddan gamalmenni. Og/eða einfaldlega þreyttur á tjúttinu. Spurning. En nú er svo svaðaleg vinnuhelgi framundan að kvöldið fer í hugleiðslu og andlegan undirbúning held ég bara. Líkamlegur undirbúningur verður víst ekki mikill þar sem ég er enn í helv... gifsinu. Alveg orðið þreytt grín en ekki nema 6 dagar eftir! Mikið hlakka ég til að sjá hvítan samanskroppinn handlegginn minn koma úr dvala. Og mikið hlakka ég til að þvo hann! Það er alveg farið að klæja undan plastinu svona þegar sólin skín. Annars hef ég bara ekki undan neinu að kvarta. Búin að mæta í vinnu eins og ég get og byrja fulla vinnu á morgun, vona bara að það kom mér ekki í koll að hamast með gifsið... Svo skín sólin sem aldrei fyrr og lífið er bara ljúft. Það er svo merkilegt að þegar sólin lætur sjá sig steingleymir maður roki og rigningu undanfarinna vikna og Ísland er fallegast, best, bjartast og langfrábærast. Við gifsið erum einmitt búin að vera aktív í sólsetursgöngunum; algjör óþarfi að láta lappirnar drabbast niður líka! Næsta blogg verður pikkað inn með tíu fingrum og einhverfi eyminginn verður endanlega horfinn af yfirborði jarðar. Eftirmaður hans verður... Tvítóla töffarinn? Húsfrúin með handleggina? Anna armagóða? Fröken fingrafim? Einhverjar uppástungur??
föstudagur, júlí 21, 2006
laugardagur, júlí 15, 2006
Einhenta Einhverfukonan fer á deit
(eða: Enn ein ástæða þess að Anna er á lausu)
Ring... Ring...
(A): Já...
(B): Já... Hæ! Ég er fyrir utan!
(A): Ok, ég kem!
(B): Flott, bæ!
(A): Bæ!
A lokar pæjusímanum, fer í jakka yfir annan handlegginn og býst til brottfarar.
(A): Bless mamma!
(M): Bless elskan, góða skemmtun. Geturðu háttað þig sjálf þegar þú kemur heim?
(A): Ha? Já já, það reddast. Bæ!
A stekkur út, hendir rusli í tunnuna, labbar að bílnum, opnar hurðina farþegamegin og hlammar sér í sætið.
(A): Hallú!
(B): Hæ hæ! Gaman að sjá þig
(A): Takk, sömuleiðis! Hvað segist?
(B): Bara fínt. Hérna... Búið þið á fyrstu hæð?
(A): Uuuh, já. Af hverju spyrðu?
(B): Er þetta þá mamma þín úti í glugga að gægjast á milli gardínanna?

þriðjudagur, júlí 11, 2006
Hej do!
Nú vélrita ég hægt, vona að það skíni ekki í gegn. Ástæðan er sú að ég get bara vélritað með hægri. Ástæða þess er sú að sú vinstri er í gifsi frá fingrum upp að öxl. Og ástæðan fyrir því er sú að ég mölvaði á mér olnbogann. Og framhandlegginn.
Nú hugsið þið örugglega að ég hafi drýgt einhverja svakalega hetjudáð í vinnunni og bjargað barni frá drkknun eða örkumli með þessum afleiðingum. Eða, ef þið þekkið mig af öðrum vettvangi, að ég hafi drukkið frá mér allt vit og hafi hrunið niður tröppur á einhverju svaka tjútti. Ég get sagt ykkur það að báðar tilgátur eru rangar. Sannleikurinn er sá að ég hef enga afsökun. Ég var ekki að bjarga einum né neinum og ég hafði ekki einu sinni fengið mér kóksopa, hvað þá eitthvað sterkara.
Ég var að koma af fínindis veitingastað eftir frábæran málsverð og var að labba að bílnum með það í huga að kaupa ís í eftirrétt, þegar ég flækti fótinn í keðju. Niðri við höfn eru nefnilega lágir steypustólpar með keðju á milli -sem þjóna by the way nákvæmlega engum tilgangi- og var ég bara að stíga yfir keðjuna (ekki að hoppa eða stökkva eða hlaupa eða neitt Önnu-legt, heldur bara að stíga í rólegheitunum) þegar hællinn flæktist í keðjunni og ég skall kylliflöt framfyrir mig. Fyrst hélt ég að ég hefði bara sært stoltið aðeins en eftir smá stund kom í ljós að gat ekki hreyft á mér handlegginn. Eftir rúma tvo tíma á slysó var ég svo komin í þetta fína gifs og því þarf ég að státa í þrjár vikur. Jájá, ekkert sund, engar hjólreiðar, ekkert að eltast við einhverfu börnin mín, ekkert tjútt og bara ekkert stuð í þrjár vikur. Góð fréttirnar eru þó þær að ég fékk ísinn minn í eftirrétt þrátt fyrir allt.
Já hún Anna litla kann sko að búa sér til skemmtun í sumarfríinu, það vantar ekki.

laugardagur, júlí 01, 2006
Íslands þúsund ár
Jæja, ég er hætt í fýlu! Var reyndar löngu hætt í fýlu en hef ekki haft mikið að blogga um þar sem ég geri lítið annað en að vinna um þessar mundir. Var frekar ánægð þegar ég fékk útborgað þar sem skattmann tók ekkert af mér vúbdídú! Ég vissi að það væri eitthvað gott við að vera bara í skóla heilan vetur!! Ég er samt alveg að vinna fyrir peningnum sko og eiginlega meira en það. Vinnan er samt bara nokkuð skemmtileg og gömlu góðu taktarnir eru alveg komnir aftur á sjónsviðið. Er enn að standa mig í hjólreiðunum og er aktív í pottunum eftir vinnu. Enda saknaði ég þeirra ekki lítið í Rottuborg.
Bauð starfsfólki Sumarskólans í mat í gær og heppnaðist það bara nokkuð vel, fyrir utan þegar ein þeirra ældi í garðinn minn! Það var ekkert mjög töff. Við systur dönsum hér trylltan regndans í þeirri von að gubbið láti sig hverfa áður en móðir vor kemur aftur í bæinn. Hæ mamma! :o) Við fórum svo á Barinn og á Hressó og ég dansaði eins og ég hef ekki dansað lengi, mikið var það ótrúlega skemmtilegt! Íslensku lögin voru best, ég vissi ekki hversu mikið ég hafði saknað Bjögga Halldórs fyrr en ég heyrði þýða rödd hans óma á dansigólfinu. Labbaði svo heim í glampandi sól klukkan fimm og mikið þótti mér vænt um landið mitt þá! Það jafnast ekkert á við morgungöngu í sólinni svo ég tók nokkrar myndir og sendi til krakkanna úti, aðeins til að monta mig.
Fór svo á deit áðan í sundlaug!!! Veit ekki alveg hvaða fífldirfska það var að hitta mann í annað skipti ómáluð með blautt hár og hálfnakin en ég kunni sko ráð við því: Ég plataði hann bara með mér í rennibrautina og eftir nokkrar ferðir var hann orðinn svo ringlaður að hann sá varla hálfa sjón. Ha! Já, þetta er ungt og leikur sér gott fólk, ungt og leikur sér.