mánudagur, október 27, 2008

Feitan og Ljótan

Sviminn farinn! Húrra! Hann lofar að koma ekki í heimsókn aftur, nema kannski bara í stutta stund þegar ég er búin að snúa mér í of marga hringi... Ég er reyndar búin að vera hálf-heyrnarlaus undanfarna viku, held það séu eftirköst kristalla-tilfæringanna án þess að ég hafi nokkuð fyrir mér í því. Heldur bagalegt að vera heyrnarlaus þegar maður er ýmist í hlutverki söngvara eða símsvara.

Vinkonurnar tvær Ljótan og Feitan, sem eru sko ekki vinkonur mínar, komu svo í heimsókn í gær. Ég átti nú svosem alveg von á þeim þar sem ég bjó til kjöraðstæður fyrir þær: Ekki búin að fara í ræktina í heila viku sökum svima/ótta við svima og eyddi svo tveimur dögum ógreidd á joggingbuxum að læra (lesist: að borða nammi). Ég hef nú lúmskt gaman af heimsóknum þeirra þó þær séu frekar leiðinlegar greyin. Það er nefnilega svo helvíti gaman þegar þær fara! Og svo auðvelt að losa sig við þær! Eftir smá púl í ræktinni í morgun og eina umferð af maskara voru þær á bak og burt og ég var aftur sætAnna! Jei! ;o)

Það sem ég var að læra um helgina er alveg drauma-hlutverkið mitt, hefur verið það í mörg ár og ég hélt að ég myndi seint fá að syngja það sjálf (nema bara í dagdraumunum, þar sem ég söng af því sokkana!!). Nú er ég bara að læra það eins og ekkert sé eðlilegra! Súrrealískt... Og furðu erfitt! Ég stend mig að því að andvarpa stöku sinnum yfir skorinu og óska þess að blessuð hetjan mín deyi í fyrsta þætti en ekki í endann. En svo minni ég mig á að þetta er einmitt það sem ég óskaði mér og hætti að vera Kvartína. Enda þýðir ekkert að kveina, ekkert gott hefur nokkurn tíma hlotist af því! Þetta var predikun dagsins.

sunnudagur, október 19, 2008

You spin me right round baby, right round...

Enn og aftur laða ég að mér skringilega sjúkdóma. Í þetta sinn fór mig aðeins að svima í lok vinnudag á föstudag, en spáði svo sem ekki mikið í það þar sem svimi er oft undanfari mígrenis. Ég var svo heppin að vera á bíl því mamma var lasin heima, en í bílnum á leiðinni heim fór mig að svima meira en góðu hófi gegnir og sortna fyrir augum. Ekki þorði ég að bera ábyrgð á lífi og limum í því ástandi svo ég skellti bílnum inn á bílastæði og hringdi í gamle mor. Hún henti sér í úlpu yfir náttfötin og kom hlaupandi að sækja mig, greyið. Eftir nokkra tíma í sófanum með fáránlega mikinn svima og ógleði ákvað ég að fara á læknavaktina og mamma þorði ekki öðru en að fylgja mér inn til læknisdrengsins þar sem ég var í stórhættu á að ganga á veggi... Læknisdrengurinn ákvað þá að ég væri með mömmu með mér af því að ég væri ekki alveg með fullt bókasafn og því væri best að tala einungis við hana. Það var mjög skemmtileg innsýn í að vera fatlaður og/eða gamall að vera svona hressilega ignoruð. Note to self and y'all: Aldrei gera þetta! Hann henti mér nú samt til og frá og lét mig rúlla augunum og klappa og allskonar skemmtilegheit og komst út frá því að þeirri niðurstöðu að ég þjáðist af góðkynja stöðusvima. Í mjöööööög löngu máli sagði hann mömmu frá öllu sem því tengist: Ekki vitað af hverju það gerist, eitthvað um kristalla og sölt og innra eyrað sem er þrískipt og skemmtilegar æfingar sem þarf að gera. Ég rétt komst að til að biðja um lyf gegn ógleði, en annars var ég bara náfölt beddaskraut held ég ;o)
Þetta ömurlega leiðinlega ástand hefur nú staðið síðan, er reyndar mun betra í dag en í gær en ég er langt frá því að vera í eðlilegu ástandi. Svolítið eins og að vera stöðugt búin að drekka einu skoti af tekíla of mikið; með tilheyrandi svima og ógleði, en án dansins og gleðinnar og skandalanna. Ekki mjög góður díll...
Ég var samt nógu hress til að þola söngtíma áðan svo ég mun treysta mér í vinnuna á morgun, sem sannar enn á ný að ég er og verð ávallt Starfsmaður Mánaðarins - bara veik um helgar!!

miðvikudagur, október 08, 2008

Hvaðan stendur á mig veðrið?

Ég bara veit það ekki, svei mér þá.

Mig hefur grunað í nokkra daga, og nú endanlega fengið staðfest, að ég sé hætt að senda frá mér Láttu-mig-vera-ég-er-í-ástarsorg bylgjur. Því má alls ekki taka sem svo að ég sendi frá mér Komdu-nú-og-kysstu-mig bylgjur, bara svona allt í gúddí bylgjur held ég. Sannanir þess rekur á fjörur mínar trekk í trekk þessa dagana í formi daður og viðreynslna. Fjarri mér að slá hendi á móti því á þessum síðustu og verstu, enda fátt jafn skemmtilegt og nett flört. En! Stórt En! Hvaða lúðasuga er ég orðin? Það rekur bara hver hellisgúndinn annan, svei mér þá. Er eitthvað skilti aftan á mér sem ég ekki sé? Eða var sendur út hóptölvupóstur? Í dag var það maður í vindbuxum. Innandyra. Ekki verkamaður. Ekki rigning úti. Hann var í fínum jakka, fínni peysu og vindbuxum. Ég legg ekki meira á ykkur. Held það sé svipað góð hugmynd að vera í vindbuxum í fyrirtækjastjórnunarvinnunni sinni og að reyna að heilla mig með því að kalla mig elskan og vinan. Ekki vænlegt til árangurs.

Tók upp tvær aríur sl laugardag, til að senda í sníkjuferðir fyrir mína hönd. Það er fáránlega erfitt að taka svona upp! Hjálpaði reyndar ekki að minn fyrrverandi sat við græjurnar og það er ansi erfitt að syngja meðan maður heldur inni bumbunni og reynir að vera sætur og kammó ;o) En svona grínlaust syng ég frekar fyrir tugi manns en einn hljóðnema. Það er eitthvað svo ógnandi við það að hljómurinn er geymdur inn í tæki að eilífu. Þegar ég syng fyrir fólk og eitthvað klúðrast hugga ég mig nefnilega við að það tók fljótt af fyrir eyru áheyrenda, bæti upp fyrir það með stóru brosi og gleymi því um leið (að undanskildum áheyrnarprufum, þá get ég skammað sjáfa mig fyrir slæmar nótur dögum saman). Afrakstur upptökunnar mun ég heyra á morgun og svo skila til styrkveitingarfólks hinn. Og þá er bara að vona að enginn annar hafi sótt um og að sjóðurinn hafi ekki verið hluthafi í íslenskum banka.

Ég nenni ómögulega að tjá mig um hræringar krónunnar og alla þessa geðveiki sem er í gangi, enda nóg af mun menntaðra fólki en ég er að tjá sig um það á veraldarvefnum. Ég vil miklu frekar tjá mig um strætótengdan skandal vikunnar:
Strákur í ökutíma (merkur kennslubíll, kall með aukaspegla við hlið hans) að tala í gemsa undir stýri!! Hvað?

mánudagur, október 06, 2008

Ekki alls varnað

Ég vildi að ég gæti sagt eitthvað háfleygt og inspirerandi í dag. En niðurrigndur og hálf-ringlaður eftir dag sem minnti helst á dramatík og veðralæti úr Wagneróperu er viskubrunnurinn hálf tómur. Ég, eins og allir, óttast hið versta en vona það besta. En maður verður bara að brosa og vera þakklátur fyrir það sem maður hefur. Ég er til dæmis ótrúlega þakklát fyrir að vera ekki lengur í námi erlendis -peningalega séð- og fyrir að vera ekki lengur á spítalanum á Stykkishólmi -svona almennt ;o)
Mér finnst frábært að dagskrá rúv núna seinni partinn, beinar útsendingar, hafi öll verið túlkuð jafnóðum á táknmál. Ferfalt húrra fyrir því!!

Allir velkomnir til mín í knús og kakó sem á þurfa að halda!