sunnudagur, febrúar 20, 2005

Gleðilegan konudag elsku stelpur! :)

Ég átti ekki alveg dekurdaginn sem ég átti von á en ágætan dag engu að síður. Vinnan var erfið en ég fékk fullt af blautum kossum frá Klakanum mínum sem gerðu daginn bærilegri. Hápunktur dagsins var þó, án efa, þegar ég var að elta annan orkuboltann um ranghala Sundhallarinnar og endaði í sturtunum. Karla megin. Mér brá svo geðveikt að ég öskraði: Guð! Fyrirgefið! Ég sé ekki neitt! Svo hélt ég fyrir augun og dró aumingja barnið öskrandi á eftir mér út. Ég held að þetta sé merki númer 2 um að ég eigi að hætta að fara með einhverfa í sund... En engu að síður held ég að fátt toppi þetta sem konudagsgjöf ;)

föstudagur, febrúar 18, 2005

Fór að ráðum Séra Gunnars og kíkti á þessa síðu hér. Komst þó ekki lengra en á upphafssíðuna því þar ákvað ég að þetta væri ekki alveg nógu traustvekjandi. Á ég að trúa því að þetta fólk sé bara venjulegir Íslendingar í leit að ástinni? Huh! ...Hugsaðu þér bara! Fyrir svipað verð og að fara út að borða gætir þú fundið lífsförunaut þinn. Besta stefnumótið þitt frá upphafi bíður þín... Einmitt það já. Fyrir 7 þúsund krónur á mánuði get ég sem sagt hangið þarna inni og spjallað við misgifta, misgæfulega menn. Takk fyrir hintið Gunni minn, þetta var hressandi! Og vill einhver vinsamlegast segja mér hvaða brúnkukrem Ellý Ármanns notar? Þá get ég forðast að kaupa það.
Enn er runninn upp föstudagur og rómantísk helgi að ganga í garð. Konudagurinn á sunnudag og allir kærastar sveittir við að setja remindera í símana sína :) Blómaseljendur auglýsa á milljón og Nóatún með tilboð á kjúklingabringum. Ég legg þó bara til að kallar færi konunum morgunmat í rúmið og bjóði þeim svo í gönguferð í Heiðmörk eða eitthvað. Það er miklu skemmtilegra og rómantískara en að setja Selectblómvönd í vatn. Ég mun persónulega eyða konudeginum í félagsskap 4 myndarlegra karlmanna, 2 einhverfum og 2 svolítið spes. Þar ætla ég mér að misnota daginn gróflega og neita að vaska upp og skeina. Eftir það býst ég við að nota konudagsgjöfina mína og fara ein í bíó :)

þriðjudagur, febrúar 15, 2005

Ég sá einhvern Michael Moore þátt í gær og OJ BARA !!! Það var fólk að mótmæla samkynhneigðum í skjóli Biblíunnar (eða eitthvað) sem leyfði sér þvílíkt. Þau mæta m.a. á jarðarfarir homma með spjöld og dreifibréf og eitthvað... Á einu spjaldinu stóð AIDS cures gays og á öðru When a homo dies God laughs. Mér finnst þetta algjört ógeð. Mikið ótrúlega getur fólk verið heimskt og fordómafullt og fullt af hatri.
En MM mætti þeim á bleikri rútu fullri af glöðum samkynhneigðum gæjum og gellum og gerði bara grín að þeim. Trilljón stig fyrir hann!
Merkilegt hvað gamlir hlutir geta setið í manni. Eitthvað sem var sagt eða gert fyrir löngu síðan situr sem fastast og neitar að láta sig hverfa úr toppstykkinu.
Þegar ég var unglingur kölluðu strákarnir mig feitabollu. Myndir og gömul föt sýna það og sanna að ég var langt frá því að vera feitabolla. Það breytir því ekki að enn þann dag í dag finnst mér ég vera feit, þó svo að ég 'viti' að ég er það ekki. Gamall kærasti hætti með mér einn góðan veðurdag af því að hann nennti mér ekki lengur. Í dag er ég skíthrædd um að það gerist aftur, þó svo að rökhugsunin segi mér að líkurnar á því séu hverfandi.
Svona sitja þessir hlutir í manni og eru oft miklu sterkari en skynsemin, þó svo að af henni sé nóg ;-)

mánudagur, febrúar 14, 2005

Við Dagný kíktum á kaffihús í gærkvöldi. Merkur áfangi þar sem ég hef ekki farið á kaffihús síðan ég veit ekki hvenær og ekki hitt Dagnýju í ár og daga. Á meðan við sátum og spjölluðum frá okkur allt vit voru óperugestir að týnast út af 2.sýningunni á Toscu. Vá, hvað ég hlakka til að sjá hana! Allt fína fólkið í pelsunum með silfurhárið gerði ekkert til að slá á tilhlökkun mína og það dró heldur ekkert úr henni við að sjá Toscu sjálfa labba framhjá! Ég sagði samt Dagnýju ekki frá þessari tilhlökkunarbylgju sem helltist yfir mig. Ég held að hún myndi hlæja að mér... ;-)
Vertu velkominn mánudagur! Ég fagna þér og býð þér að gefa mér þitt allra besta. Ég óttast ekki vinnuvikuna sem hefst með þér, ó nei! Eftir að hafa tekið 5 spírulínur, 2 drottningarhunangstöflur, eina ofur-c-vítamíntöflu, 2 ólífulaufstöflur og 2 b-vítamínbombur óttast ég ekkert. Nema kannski það að ég sé fórnarlamb auglýsingaherferða vítamínframleiðenda... ;-)

föstudagur, febrúar 11, 2005

Ég gerði merka uppgötvun í dag! Ég fór í Sóma og keypti samlokur fyrir hellaferðarpakkið og þar sem ég stóð þar rann upp fyrir mér ljós... Nú veit ég af hverju þær heita Sómasamlokur! Þær eru nefnilega sómasamlega gerðar! hahaha
Ég þoli ekki Valetínusardaginn! Mér finnst hann asnalegt fyrirbæri. Allt í lagi fyrir Kanana, þeir hafa ekkert annað en við höfum bóndadag og konudag...sem er nota bene viku síðar en Valentínusardagurinn. Svo finnst mér eiginlega allir dagar þar sem okkur er sagt að gefa öðru fólki blóm svolítið mis. Við eigum að gefa blóm þegar fólk á minnst von á því, það er lang skemmtilegast! (Ég á til dæmis alls ekki von á því að fá blóm um helgina -hint-hint-). En þar sem það er búið að gera þvílíkt mál úr þessum dögum verður maður samt svolítið sár ef maður fær ekki neitt! Ljóta auglýsingarherferðarfólk.
Ég á svo bágt...

Í þessum skrifuðum orðum eru allir í vinnunni minni í hellaferð. Nema ég, eins og glöggir hafa kannski áttað sig á. Allir að síga oní helli með hjálma og höfuðljós og sómasamlokur og kakó og kerti og draugasögur og allt á meðan ég sit heima undir teppi. Ákvað að láta heilsuna ganga fyrir og sleppa því að kúldrast í blautum og köldum helli í nokkra tíma. Hugsa frekar um röddina og fara heim að leggja mig. En ég vorkenni mér þvílíkt að missa af öllu fjörinu... :(

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Hvað er málið með morgunþætti í útvarpinu? Í alvöru, hverjum finnst skemmtilegt að hlusta á fólk í hláturskasti yfir eigin einkahúmor eldsnemma á morgnana? Ég keyrði í vinnuna í dag og það var ekki ein útvarpsstöð sem ég gat hlustað á. Þegar ég flakkaði á milli stöðva heyrði ég þetta:
1. Gaurar að tala um endaþarmsmök unglingsstúlkna.
2. Fólk að missa sig yfir eigin fyndni. Ég hlustaði ekki nógu lengi til að heyra hver brandarinn var.
3. Fólk að tala um notaða bíla og hvað er hægt að gera við þá (annað en að keyra þá).
4. Einhverjir pólitíkusar að tjá sig.
5. og 6. Hrikaleg tónlist.

Þannig að ég gerði það eina mögulega í stöðunni; slökkti á útvarpinu og söng bara sjálf.

þriðjudagur, febrúar 08, 2005

Til hamingju með afmælið í gær snuckilein!
HRGMF
Eyddi sprengideginum í rúminu og sófanum á víxl. Búin að vera nett kvefuð um helgina en á meðan ég horfði á csi í gær gerðist eitthvað svaðalegt og ég varð bara allt í einu hundlasin. Vaknaði svo í morgun með mígreni til að toppa líðanina alveg. Sem sagt ekki mjög góður dagur hjá Önnu í Hlíð og glatað að láta suma þurfa að muna eftir mér svona næstu vikurnar...
En á morgun er nýr dagur og ég er þess fullviss að ég muni vakna eldsnemma af sjálfsdáðum, skella mér í ræktina fyrir vinnu, klára launaútreikningana á hálftíma, semja fyrirlestur um atferlismótun á svipað löngum tíma, undirbúa pleisið og skella mér í búning áður en krakkarnir mæta og taka svo á móti þeim með bros á vör. 4 tímum seinna mun ég enn vera brosandi þrátt fyrir að 20 unglingar í sykursjokki hafi þeyst um svæðið eins og hvirfilbylir í grímubúningum og drífa mig í skólann þar sem ég mun fyrst syngja í klukkutíma og svo glósa í klukkutíma. Eftir afmælismat í Fossvogi kem ég heim og sest niður við lærdóminn sem ég trassaði um helgina.

...held ég fari aftur í rúmið, ég er komin með óráð.

föstudagur, febrúar 04, 2005

Það er ótrúlega mikill föstudagur í mér í dag! Ég nenni ekki að vinna, sit bara og leik mér á netinu, spjalla á msn og eitthvað. Mig dreymir um hamborgara og franskar og bjór og rauðvín og snakk og nammi. Ef einhver kæmi með ostborgara handa mér núna yrði ég besti vinur hans að eilífu. Nenni ekki að vera í vinnunni til 5 og nenni ekki í söngskólann. Langar bara heim að horfa á vídeó, éta á mig gat af óhollum mat, klæða mig svo í ó-vinnuvæn föt og sjæna mig til, fá mér bjór og fara út að dansa þar til ég get ekki dansað meir.
Það eina góða við þennan föstudagsfíling er að það er actually föstudagur í dag!!! ;)

þriðjudagur, febrúar 01, 2005

Sumir hafa meiri tíma en aðrir...

...eins og sést hér. Hmmm...
Þar sem ég þekki ekki marga einstaklinga með vit á þessum málum og ekki marga einstaklinga sem nota orðið 'gaur' eins og góðum Garðbæingum sæmir var frekar fljótlegt að leysa gátuna.
Geymt en ekki gleymt elskan ;-)
Þar sem ég er komin með nett ógeð á skyr.is drykk og banana í hádegismat er núna átak í gangi. Átakið heitir Fjölbreyttara nesti!!! og fór í gang með trukki og dýfu í gær. Í gær og í dag hefur hádegismaturinn samanstaðið af hinum ýmsustu grænmetistegundum og fíneríi. Í dag er til dæmis á matseðlinum: ferskt spínat, túnfiskur, harðsoðið egg, maísbaunir og velhnetukjarnar. Gífurlega heilsusamlegt og örugglega gott fyrir allar frumurnar í kroppinum. Nema kannski tvær frumugerðir; bragð- og lyktarskynsfrumurnar. Þetta er ógeð.
Ég tók eitthvað próf á síðunni hans Harðar sem leiddi í ljós að ég er bara 4% nörd. Einhvernveginn finnst mér eins og það þýði að ég sé svolítið vitsmunalega challenged... En það þýðir vafalaust bara að ég sé töff ljóska með lúkkið í lagi ;-)
Ég fékk gjöf í gær. Mér finnst nú ekkert leiðinlegt að fá gjafir... En hvað ætli innihaldið hafi verið?

Bakpoki? Nei.
Nýtt og betra Cosí-skor? Nei.
Íþróttaskór? Nei.
Sokkar? Nei.
(Þetta eru btw allt hlutir sem mig vantar, ef einhver á nóg af pening).

Ilmvatn? Nei.
Blóm? Nei.
Dekur? Nei.
Nudd? Nei.
Erótískur dans? Nei.
(Þetta eru btw allt hlutir sem mér finnst gaman að fá).

Gjöfin var fitubrennsluefni. Tara!!!