fimmtudagur, febrúar 26, 2004
Ég fékk forláta gull- og demantshring í jólagjöf frá mínum heittelskaða liðveisludreng. Hann var allt of stór á mig svo ég skellti mér með hann í minnkun. Ég fór með hann í Kringluna og var sagt að sækja hann eftir 10 daga! Greinilega mikið að gera á þeim stað en allt í lagi. Þegar ég sótti hann var ég rukkuð um 3200 krónur!!! 3200 krónur fyrir að klippa úr hringnum smá bút. Og nota bene þeir hirtu gullbútinn af því að ef þú hefðir vilja eiga bútinn hefðirðu þurft að segja okkur það fyrirfram. Einmitt það sem ég hefði gert hefði ég vitað hvað þetta myndi kosta... Ég er nú ekki sparsamasta manneskjan og alveg til í að borga fyrir að vera til en þetta fannst mér nú heldur rúmt tímakaup.
Paranoid City
Ég þoli ekki þegar ég logga mig inn á msn og sé hverjir eru skráðir inn og svo tveimur sekúndum seinna hverfur einhver. Ég fæ alltaf á tilfinninguna að það sé til að sleppa við að tala við mig. Svo hugsa ég: Hvaða vitleysa, hann/hún/það er örugglega búið að vera á netinu heillengi og þetta er algjör tilviljun... Eða: Kannski er hann/hún/það mjög upptekin manneskja og vill forðast að lenda í ótrúlega skemmtilegu samtali við mig því það gæti truflað vinnuna...
En samt, það kemur moment þar sem ég hugsa hmmm.... það er verið að forðast mig.

miðvikudagur, febrúar 25, 2004
Ég var að skrá mig í eitthvað heilsuútlitsmsnthingy sem sendir mér msn-skilaboð með hints and tips um þannig dótarí. Ég tók próf sem sagði að ég væri 'a gal who likes to have fun' ...hljómar eins og auglýsing á einkamál.is en allt í lagi. Svo kom í ljós að ég þarf bara 48 tíma prógramm til að verða spræk like a dyke svo nú sit ég bara spennt við tölvuna þar til klukkan hálf ellefu á föstudag. Þá mun ég standa upp af stólnum og vera eins fitt og falleg og hægt er að ímynda sér. Brill.
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
Erfingjum fjölgað
Svenni frændi eignaðist litla stelpu í gær. Við erum sko jafngömul og höfum því þekkst alla tíð. Þegar við urðum unglingar fór ég, eins og oft gerist, aðeins framúr honum á þroskaferlinu og var á undan að prófa allt; detta í það, fara á útihátíð, eiga kærasta, sofa hjá og svo videre. Núna hefur hann hins vegar tekið mjög mjög stórt stökk fram úr mér :-)
Ingibjörg frænka tilkynnir svo um óléttu sína hér og það er nokkuð ljóst að krílið hennar og Bernards verður listrænt í meira lagi.
Til hamingju mömmur og pabbar!!

mánudagur, febrúar 23, 2004
Mamma kom heim frá Köben á laugardaginn og gaf mér ekki einn, heldur tvo fagurgræna boli! Mikið var ég hamingjusöm. Og þeir komu sér vel í gær þegar ég söng á nemendatónleikum í Ými... ég er viss um að bolurinn hafði mikið með velgengni mína að gera.
Í gærkvöldi fékk ég svo langþráða afmælisgjöf: Leikhúsferðina sem Ólöf gaf mér í 23 ára afmælisgjöf (ég varð einmitt 23 ára 1.apríl 2003). Með gjöfinni sannaðist að góðir hlutir eru þess virði að bíða eftir því við skemmtum okkur konunglega á Chicago þó svo að sýningin hafi verið heldur löng í annan endann. Mér finnst ósanngjarnt að fólk geti dansað eins og pro-dansarar meðan það syngur án þess að blása úr nös. Ég á nógu andskoti erfitt með að syngja fallega á meðan ég stend kyrr!

Við Eva fórum á tveirfyrireinníboðisímans forsýningu á Along came Polly á fimmtudaginn. Mæli með henni á vídeó bara, ekkert vera að hlaupa í bíó til að sjá hana. Planið var mjög þétt: Ég fór í tónheyrnarpróf kl.5. Eva sótti mig í skólann kl.6 og keyrði mig í Sporthúsið. Þar fór ég í kombat en lét mig hverfa áður en tímanum lauk, fór í ofurhraða sturtu og var komin út í bíl kl.7:30. Þar beið Eva með hálfkaldan Zingerborgara sem var samt góður. Við borðuðum ruslmat á planinu hjá Sporthúsinu og fengum ekkert samviskubit!!! Svo brunuðum við í Álfabakkann. Ótrúlega vel skipulagt þó við segjum sjálfar frá.
miðvikudagur, febrúar 18, 2004
Fór í forpróf í morgun... ekki alveg sátt við krítíkina sem ég fékk en ég fæ allavega að taka prófið. Helv andsk mígrenihausverkur að byrja aftur. Held þetta sé að verða krónískt vandamál. Vaknaði fyrir allar aldir og skellti mér í kombat til að vekja kroppinn, þá syngur maður betur sko. Úr þessum leikfimitíma sprettur heilræði dagsins: Ekki taka lýsistöflu rétt áður en þú ferð að sprikla. Oj!
þriðjudagur, febrúar 17, 2004
Ég var nú bara driver á föstudagskvöldið sökum langvinns mígrenis en ég var sko ekki driver á laugardagskvöldið. Ég, Dagný, Hugrún og Svanhildur lögðum af stað í leiðangur, fyrst í Kópavog, svo í Dugguvog og loks niður í bæ. Svanhildur er sko sálfræðinemi og mágkona Dagnýjar og Hugrún er lítill orkubolti með thang fyrir svörtum Bandaríkjamönnum, sérstaklega þeim sem spila körfubolta. Við tókum nett rökl og einhverra hluta vegna lentum við inni á Ellefunni. O my god. Meðalaldur 17 ár og veruleg hassvíma í gangi. Einhver belja hellti bjór yfir Dagnýju sem missti sig gjörsamlega og ætlaði barasta heim því djammið var ónýtt og hún var í brjáluðu skapi!!! Við Signý náðum á undarlegan hátt að koma henni í gott skap og við skunduðum á Sólon og treystum vor heit með smá Tekíla... Bara gaman að því. Einhver undarleg slagsmálabylgja í gangi í bænum, allir að slást eitthvað, frekar glatað. Ég hitti tvo verulega smooth gaura þegar ég var að tía mig heim, bara gaman að því. Þeir voru greinilega búnir að æfa línurnar vel en samt var ekkert að ganga hjá þeim greyjunum.
Sýnishorn eitt: Vá! Hvað þú ert með fallegt bros og skínandi augu! Það hreinlega geilsar af þér! Þú hlýtur að vera ástfangin. Nei? Ekki það? Sem sagt enginn kærasti?...
Sýnishorn tvö: Ég hef líka mikinn áhuga á ferðalögum. Það er nefnilega svo auðvelt að ferðast þegar maður er eins og ég: Á mjög góðum launum, ekki með konu, ekkert barn og engar skuldir...
SMOOOOOOOTH

sunnudagur, febrúar 15, 2004
Vá hvað það var gaman á tjúttinu í gær!!! Snilld. Hef ekki djammað með Dagnýju 'svona' síðan við vorum tvítugar eða eitthvað... frábært. Sökum svefnleysis og langs vinnudags í kjölfar þess nenni ég ekki að skrifa alla söguna en hún kemur, allavega stór partur af henni hehe. Þangað til má virða fyrir sér fagrar myndir: Hér má finna meðal annars mynd af mér með landsliðskonunni og eina sæta af Dagnýju og Hugrúnu dreifbýlisgellum.
fimmtudagur, febrúar 12, 2004
Í dag ætla ég að skunda á fund yfirmanna Stöðvar2 og skrifa undir samning við þá. Samningurinn felur í sér að ég, mamma og Eva fáum allar fríar útlitsbreytingar gegn því að þær verði sýndar í beinni. Mamma og Eva fá reyndar bara lítið pláss í Ísland í dag; mamma skellir sér í Botox og Eva fær sér J-Lo rass og það tekur bara smá stund. Hins vegar verður mitt verkefni svona framhalds... enda nóg að gera: Hárlenging, augabrúnaháreyðing, nefminnkun, bollukinnaeyðing, varastækkun, tannhvíttun, hrukkufyllingar, undirhökusog, brjóstastækkun, fitusog, meiri háreyðing, rassalyfting og táréttingar eru bara the tip of the iceberg. Þegar verkefninu er svo lokið (áætluð verklok eru í mars 2005) og ég verð orðin gangandi barbídúkka er komið að skuldadögum. Þá verð ég að drífa mig að verða fræg poppstjarna, sem verður varla mikið mál eins sæt og ég verð orðin... Redda mér ferð í Júróvisíon og þar sem ég stend á sviðinu og syng af lífi og sál mun einn karldansaranna ganga að mér og rífa mig úr brjóstahaldaranum. Í risastórum sílíkonbrjósum mínum verður auðvitað piercing, en ekki sól eða stjarna eða neitt svoleiðis 'so five minutes ago' drasl. Úr geirvörtunum mun að sjálfsögðu hanga glitrandi Stöðvar2-lógó.
þriðjudagur, febrúar 10, 2004
Það var ekki mikið stuð í combat í gær og kennarinn var að reyna á milljón að fá fólk til að öskra en án árangurs. Hún brá því á það ráð að lækka alveg í tónlistinni á þeim stað þar sem allir áttu að hrópa 'thunder'. Undirtektir voru frekar dræmar og hún skammaði okkur og sagði okkur að láta í okkur heyra! Ég, sem professional noise-maker, tók það að sjálfsögðu til mín og næst þegar hún lækkaði kallaði ég eins hátt ég gat: THUNDER!!! Ég var sú eina í salnum sem gerði það.
mánudagur, febrúar 09, 2004
Ég er að hugsa um að stela hugmyndinni á bak við vinsælan sjónvarpsþátt og búa til nýjan, miklu skemmtilegri þátt. Hann myndi virka þannig að 5 lesbíur fara heim til einnar gagnkynhneigðar konu og taka líf hennar í gegn. Hár, förðun, fatastíll, húsgögn, matreiðsla og framkoma yrði tekið róttækt í gegn og gellan þjálfuð upp á nýtt. Þátturinn gæti td heitið Queer pal for the straight gal... Byrjað yrði á því að rífa af henni gervineglur og -hár ef það er til staðar. Svo yrði hár hennar klippt mjög stutt og litað með einum lit, jafnvel aflitað. Hár yrðu grædd í enni hennar til að gera augabrúnirnar náttúrulegar á ný og það sama yrði gert við aðra staði þar sem háreyðing hafði áður gengið út í öfgar. Farið yrði í gegn um fataskápinn hennar og mikið grín gert að bleikum blúndunærbuxum og gegnsæjum náttkjólum, þessum flíkum hent út og í staðinn settir kvenboxerar og KR-bolir. Matreiðslan yrði tekin í gegn en mikil áhersla lögð á að kenna the straight gal að drekka bjór. Öllum hárvörum yrði hent út um gluggann, sem og óþarfa makeupdrasli. Blót og skyrpingar yrðu einnig á dagskránni. Að öllu þessu veseni loknu væri svo endurgerða gellan kynnt fyrir vinum og vandamönnum sem allir falla að sjálfsögðu í stafi yfir nýja lúkkinu og á meðan skála lessurnar í bjór og gleðjast yfir góðum árangri. Ef þetta er ekki efni í metáhorfsþátt þá veit ég ekki hvað.
föstudagur, febrúar 06, 2004
In the name of love...
Alveg að hita upp fyrir kvöldið sko. Stefnan tekin á Nasa þar sem danska U2 coverbandið Die Herren mun leika fyrir dansi. Skilst að þeir séu eðal góðir eða 'mjög þéttir' svo ég vitni í Sigga Sam bassaleikara Írafárs hehehe Ég hlakka allavega til að dansa við gömlu góðu U2 lögin og syngja með... Reyndar er bannað að syngja á djamminu en ég ætla bara að syngja mjög veikt og með stuðningi, þá hlýtur það að vera í lagi. Einu sinni var mér hótað sambandsslitum ef ég myndi ekki læra að meta U2. Síðan þá er það uppáhaldshljómsveitin mín... þó svo að það séu mörg ár síðan sambandið slitnaði. Sem sannar enn og aftur að tónlist er sterkari en ást. Eða eitthvað.

Eva litla á afmæli á morgun. Hún verður 21 árs og ætlar að halda veislu á Prikinu, algjör töffari! Við mæðgur ætlum að hafa afmælismat í kvöld af því að okkur mömmu er sko ekki boðið í töffarapartýið. Ég held við þykjum ekki nógu svalar en það er augljóslega einhver misskilningur... Mamma er að fara á þorrablót Bolvíkingafélagsins og ég ætla að taka mér vídeóspólu eða eitthvað. Ekki nógu svalar hvað? Við erum holdgervingar svalleikans :-)
Var að vinna í gær og gekk mjög vel, nema að ég er heldur aum í hálsinum eftir undarlegar hálssperringar sem ég var látin gera aftur og aftur og aftur og aftur. Það er kosturinn við að vera einhverfur, maður fær seint leið á hlutum sem manni líkar vel við.
þriðjudagur, febrúar 03, 2004
Frétti það áðan að öðrum sem lögðu fyrir skemmtilegu skoðanakönnunina í verslunum ÁTVR á föstudaginn hafi ekki þótt það neitt mál og að það hafi ekki tekið nema tvo tíma eða svo. Það er nú bara mesta kjaftæði sem ég hef heyrt! Djöfull er ég handviss um að þau hafa bara fyllt listana út sjalf. Nema náttúrulega að fólk í Kringlunni sé almennt stressaðra en annars staðar, það gæti líka verið... Eitt er allavega víst. Aldrei aftur.
Ég setti inn link hér til vinstri á strákana og Sigrúnu í Raddbandafélagi Reykjavíkur. Það er góður hópur söngmanna sem áður hétu góðir í boði en þeir stunduðu svo boðin í óhófi og ákváðu að verða örlítið virðulegri. Það gekk bara vel hjá þeim
sunnudagur, febrúar 01, 2004
Þessi síða hér er algjör snilld. Alltaf gaman að skyggnast inn í hugarheima alvöru töffara (!) og svo eru þetta prýðis ráð sem þeir gefa ykkur strákar. OK nú segið þið örugglega; 'Kommon! Það er alltaf verið að blaðra um að við eigum að gera hitt og þetta í rúminu og við erum löngu komnir með allt á hreint. Þeir gaurar sem vita ekki staðsetningu mikilvægustu hluta og eru með klofhár niður á hné eru löngu útdauðir.' Já, maður hefði haldið það! En nei, ég verð að segja að því miður virðist það ekki vera svo. Það líður ekki sá stelpuhittingur að ekki laumist amk ein saga af misheppnuðum bólfélaga með í umræðuna. Og þið vitið hvernig það virkar; ef mannorðið er einu sinni mengað....... ;-)
Ég komst að því á föstudaginn að það er ekki leiðinlegt að framkvæma skoðanakönnun seinni part föstudags í Kringlunni. Það er leiðinlegast að framkvæma skoðanakönnun seinni part föstudags í Kringlunni. Þreyttir fætur og þreytt bak voru sko ekkert miðað við höfnunina sem ég upplifði þegar fólk labbaði frekar á blóm heldur en að horfa í augun á mér og þóttist vera að svara í símann þegar ég nálgaðist það... ótrúlega margir dularfullir símar í gangi þessa dagana, með hljóðlausar hringingar. Og það eina sem ég vildi vita var hversu mikið fólk drekkur, hvað það borgar fyrir það og hvar það kaupir áfengið! Tók enga stund að svara og ég var mjög vingjarnleg (nema kannski síðastu fjörutíu mínúturnar, þá var ég orðin frekar pissed). Það vildi enginn tala við mig, allavega engin kona... bara ungir gaurar (of ungir, því miður) eða gamlir kallar sem virtust, af lyktinni að dæma, vera að byrja partýið aðeins of snemma. Gaman gaman. Ef þið sjáið einhvern tímann einhvern vesaling á vappi með svarta möppu og kúlupenna á lofti bið ég ykkur, fyrir hönd allra sem hafa þurft að upplifa þessa hörmung, að stoppa og bjóða fram aðstoð ykkar. Ef það er til of mikils ætlast er lágmark að svara þegar ykkur er óskaður góður dagur!!!