Við Eva fórum á tveirfyrireinníboðisímans forsýningu á Along came Polly á fimmtudaginn. Mæli með henni á vídeó bara, ekkert vera að hlaupa í bíó til að sjá hana. Planið var mjög þétt: Ég fór í tónheyrnarpróf kl.5. Eva sótti mig í skólann kl.6 og keyrði mig í Sporthúsið. Þar fór ég í kombat en lét mig hverfa áður en tímanum lauk, fór í ofurhraða sturtu og var komin út í bíl kl.7:30. Þar beið Eva með hálfkaldan Zingerborgara sem var samt góður. Við borðuðum ruslmat á planinu hjá Sporthúsinu og fengum ekkert samviskubit!!! Svo brunuðum við í Álfabakkann. Ótrúlega vel skipulagt þó við segjum sjálfar frá.
mánudagur, febrúar 23, 2004
Previous Posts
- Fór í forpróf í morgun... ekki alveg sátt við krít...
- Ég var nú bara driver á föstudagskvöldið sökum lan...
- Vá hvað það var gaman á tjúttinu í gær!!! Snilld. ...
- Í dag ætla ég að skunda á fund yfirmanna Stöðvar2 ...
- Það var ekki mikið stuð í combat í gær og kennarin...
- Ég er að hugsa um að stela hugmyndinni á bak við v...
- In the name of love... Alveg að hita upp fyrir kvö...
- Eva litla á afmæli á morgun. Hún verður 21 árs og ...
- Var að vinna í gær og gekk mjög vel, nema að ég er...
- Frétti það áðan að öðrum sem lögðu fyrir skemmtile...

<< Home