Ég komst að því á föstudaginn að það er ekki leiðinlegt að framkvæma skoðanakönnun seinni part föstudags í Kringlunni. Það er leiðinlegast að framkvæma skoðanakönnun seinni part föstudags í Kringlunni. Þreyttir fætur og þreytt bak voru sko ekkert miðað við höfnunina sem ég upplifði þegar fólk labbaði frekar á blóm heldur en að horfa í augun á mér og þóttist vera að svara í símann þegar ég nálgaðist það... ótrúlega margir dularfullir símar í gangi þessa dagana, með hljóðlausar hringingar. Og það eina sem ég vildi vita var hversu mikið fólk drekkur, hvað það borgar fyrir það og hvar það kaupir áfengið! Tók enga stund að svara og ég var mjög vingjarnleg (nema kannski síðastu fjörutíu mínúturnar, þá var ég orðin frekar pissed). Það vildi enginn tala við mig, allavega engin kona... bara ungir gaurar (of ungir, því miður) eða gamlir kallar sem virtust, af lyktinni að dæma, vera að byrja partýið aðeins of snemma. Gaman gaman. Ef þið sjáið einhvern tímann einhvern vesaling á vappi með svarta möppu og kúlupenna á lofti bið ég ykkur, fyrir hönd allra sem hafa þurft að upplifa þessa hörmung, að stoppa og bjóða fram aðstoð ykkar. Ef það er til of mikils ætlast er lágmark að svara þegar ykkur er óskaður góður dagur!!!
sunnudagur, febrúar 01, 2004
Previous Posts
- Allt sem þig hefur langað til að vita um Toro en h...
- Nur für Dich!!! Ég sit í Lazyboy sófanum hans pabb...
- Í dag er frí!!! Frí í söngtíma af því að kennarin...
- Harðsperrur eru góðar. Mikið er langt síðan eg hef...
- Fór ein í óperuna á laugardaginn. Dugleg. Þekkti r...
- Jæja já... nóg að gera já, mikil ósköp. Ekki nóg m...
- Hmmm.... Hvað er í gangi? Ég fékk snilldareinkunn...
- O HAPPY DAY! Var að fá einkunnina úr Þroska barna ...
- Annars bara ágæt helgi, dreif mig í gymið á laugar...
- Idolstjarnan loksins fundin! Ég er alveg sátt við ...

<< Home