Hmmm.... Hvað er í gangi?
Ég fékk snilldareinkunn í fyrradag, fékk ritgerð til baka í gær sem fékk 9,5 og 'til hamingju með einstaklega vel unnið verk'... fékk fína krítík í óperudeild í gær og var nota bene bara uppi í tæplega korter sem er algjört met! Ég er sko alltaf lágmark hálftíma, jafnvel klukkutíma ef Gubbi er í stuði. Svo í dag sagði vitur maður mér það að ég ætti hiklaust að drífa mig til útlanda því ég myndi sko vel geta starfað sem söngkona eins og staðan er í dag. Þetta er alveg með ólíkindum! Lífið hreint út sagt leikur við mig þessa dagana!!!
En..... af því að ég er hjátrúarfull er ég viss um að eitthvað slæmt eða neikvætt muni gerast í kjölfar þessarrar velmegunar. Ég er búin að vera viss um það síðan á þriðjudag og ég bíð enn eftir einhverju sem veldur því að ég gleymi öllu sem gengur mér í hag. Mamma segir að þetta sé kjaftæði og að engar röklegar staðreyndir liggi að baki þessum hugsunum... hún segir líka: 'Ég hélt þú værir of skynsöm til að hugsa svona!' Hmmm....kannski er það neikvæða sem gerist það að mamma komist að því að dóttir hennar er ekki eins gáfuð og hún hélt???

<< Home