miðvikudagur, janúar 14, 2004

Hrós dagsins fær Body-combatkennarinn Gurrý. Það að standa fyrir fram mis fitt kellingar á miðvikudagsmorgni klukkan 6:40 og halda stuði heilan tíma er magnað. Sérstaklega þar sem ekki ein af hópnum tekur undir í hrópum eða köllum (nema ég, en ég gerði þau bara mistök bara einu sinni). Svo er hópurinn svo lítið spenntur fyrir prógramminu að ég virka klár í því! Sem er mjög gaman, svona til tilbreytingar. Hún píndi okkur svo í 2 attack-lög sem voru þrælerfið, allavega miðað við hvað klukkan var.... Hún fær alveg 8 stig :-)