fimmtudagur, janúar 08, 2004

Eyðsludagur í dag... vonandi! Ætla að taka hring í Krinklunni og leita að buxum og peysu. Mest vantar mig reyndar úlpu en ég nenni ekki að leita að þannig. Svo er það intersport sem á vonandi almennileg gymföt handa mér, helst buxur og topp takk, þeir sem ég nota núna eru alveg við það að verða ónothæfir, jakk.
Svo er það combat í baðhúsinu, því miður. Mér finnst miklu miklu betra að fara í Sporthúsið en það er heldur löng ganga þangað fyrir minn smekk. Mikið er gaman að vera í svona dúlleríi allan daginn, ég ætla að muna hvernig tilfinning það er því eitthvað (!) segir mér að þessi stemmning sé um það bil að líða undir lok...hmmm.