Þá eru áramótin yfirstaðin, meira að segja án hryðjuverka. Ég er enn lasin og á voða voða bágt en verst var það samt á gamlársdag þegar ég fékk mígreni (ég hata að hafa rétt fyrir mér með svona!). Druslaðist á lappir rétt fyrir kvöldmat og hámaði í mig öndina namminamm. Mér fannst fréttaannáll Stöðvar2 gjörsamlega slá út Skaupið þetta árið og reyndar ekki í fyrsta sinn. Svo kíktum við í Öskjuhlíðina og dáðumst að annarra manna rakettum og forðuðumst gamla menn í newyearskissleit. Í fyrsta skipti síðan í 8.bekk (eða 7.? er ekki alveg viss) tók ég edrú á móti nýju ári og það hentaði Lasarusnum bara vel. Sæmdi sjálfa mig titilinum Ökumaður kvöldsins og kíkti í partý með Grétari sem í framhjáhlaupi tilkynnti mér um nokkur börn sem ég vissi ekki að gamlir vinir hefðu búið til undanfarið. Held að núverandi og fyrrverandi íbúar Hjallavegs séu tilvalin target fyrir næstu Durex-auglýsingaherferð, veitir ekki af smá fræðslu heyrist mér. Það var stórskemmtilegt að sitja edrú í partýi þar sem allir voru pör og pör sem þekktust vel nema ég og Grétar og Ómar (?). Lausa og liðuga fólkið safnaðist saman í kjallaranum og ekki leið á löngu þar til Grétar laumaði sér þangað og gleymdi öllu um mig. Þegar öll pörin voru farin ákvað ég að gera það sama, enda var þá trommarinn í hausnum á mér alveg kominn í stuð búmmbúmmbúmm. Það voru allir svo miður sín af sorg yfir að ég væri að kveðja samkvæmið að þau létu eins og ekkert væri og þóttust varla taka eftir kveðju minni. Svona birtist sorgin á ólíkan hátt...
Gott kvöld þrátt fyrir allt og merkilega skemmtilegt að eyða fyrsta degi nýs árs í eitthvað annað en þynnku. Gleðilegt nýtt ár!!!
Gott kvöld þrátt fyrir allt og merkilega skemmtilegt að eyða fyrsta degi nýs árs í eitthvað annað en þynnku. Gleðilegt nýtt ár!!!

<< Home